24 stundir - 01.05.2008, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2008 24stundir
SUMARAFSLÁTTUR
20% AFSLÁTTUR
af öllum vörum
föstudag og laugardag
Bæjarlind 6, s.554-7030, Eddufell 2, s.557-1730
Opið virka daga 10.00-18.00
laugardaga Bæjarlind 10.00-16.00, Eddufell 10.00-14.00
Bestseller
mod. 285.
5995.-
Face
mod. 171.
9995.-
Softwalk
Mod. 198.
7995.-
Aerosoles
mod. 189.
9995.-
Softwalk
mod. 197.
9995.-
Softwalk
mod. 201.
9995.-
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Ávörp
Félagshyggjuverðlaun Ungra jafnaðarmanna
Tónlist
Veitingar
Bandaríkjamanninum James Wo-
odward var sleppt úr fangelsi í
Dallas á þriðju-
daginn eftir að
hafa setið þar
saklaus í 27 ár.
Niðurstöður ný-
legs lífsýnis
sýndu fram á
sakleysi hins 55
ára Woodward,
en hann var
dæmdur fyrir morð og nauðgun á
kærustu sinni. Niðurstöður lífs-
sýna hafa nú forðað átján mönn-
um frá frekari fangelsisvist í Dall-
as, og er fjöldinn hvergi meiri í
Bandaríkjunum. aí
Bandaríkin
Sat saklaus í
fangelsi í 27 ár
NATO hefur varað rússnesk
stjórnvöld við að aðgerðir stjórn-
arhers Rússa í héruðunum Abk-
asíu og Suður-Ossetíu grafi und-
an fullveldi Georgíu. Héruðin
hafa bæði sagt sig úr lögum við
Georgíu og hafa Rússar nú fjölg-
að friðargæsluliðum sínum þar.
Talsmaður NATO segir að yfirlýs-
ingar og aðgerðir Rússa muni
auka spennu á svæðinu. aí
Ástandið í Georgíu
Vara Rússa við
Evrópusambandið hefur fagnað
lagabreytingu tyrkneska þingsins
um að rýmka tjáningarfrelsi í
landinu og segir
það velkomið
framfaraskref.
Fjöldi fræði-
manna og rithöf-
unda, þar á meðal
Nóbelsverðlauna-
hafinn Orhan Pa-
muk, hafa verið
ákærðir með vís-
un í umrædd lög, fyrir að „móðga
það sem tyrkneskt er“.
Evrópusambandið hafði áður lýst
því yfir að lagabreyting í þessa
veru væri nauðsynleg ætluðu
Tyrkir sér að gerast fullgildir að-
ilar að sambandinu. aí
Frelsi aukið í Tyrklandi
Fagna breytingu
Eftir Atla Ísleifsson
atlii@24stundir.is
Mikil hátíðarhöld voru í kínversku
höfuðborginni Peking í gær þegar
byrjað var að telja niður þá hundr-
að daga sem eru til Ólympíuleik-
anna sem hefjast í borginni þann 8.
ágúst. Borgarbúar fögnuðu endur-
komu ólympíukyndilsins á kín-
verska jörð með söng, bænahaldi
og fjöldahlaupi, en för kyndilsins
um heiminn hefur ekki gengið
þrautalaust fyrir sig þar sem mót-
mælendur Kínastjórnar hafa ítrek-
að látið til skarar skríða.
Ólíkt síðustu Ólympíuleikum
hefur undirbúningurinn að þessu
sinni gengið mjög vel og hafa fram-
kvæmdir og endurbætur á leik-
vöngum víða klárast fyrr en reikn-
að var með.
Eftirvænting
Jacques Rogge, forseti Alþjóða-
ólympíunefndarinnar, sagði að
aukin eftirvænting og kraftur muni
einkenna næstu hundrað daga í
Peking. „Borgarbúar og gestir
munu sjá borgina halda áfram að
umbreytast, er hún tekur á móti
íþróttafólki, fjölmiðlum og áhorf-
endum á síðustu æfingaviðburð-
unum og svo á leikunum sjálfum.“
Um tíu þúsund Pekingbúar tóku
þátt í fjöldahlaupinu í gær þar sem
hlaupið var í kringum Ólympíu-
garðinn, en með því vildu skipu-
leggjendur sýna að leikarnir verði
alþýðunnar.
Ólympíukyndillinn kom til
Hong Kong í gær. Kínversk yfirvöld
hafa sætt mikilli gagnrýni fyrir að
hafa bannað fjölda fólks að koma
til borgarinnar. Öryggisgæsla vegna
komandi Ólympíuleika hefur verið
hert verulega að undanförnu, en
kyndillinn mun nú fara um öll 23
héruð landsins áður en hlaupið
verður með hann inn á Þjóðarleik-
vanginn í Peking, Fuglahreiðrið,
þar sem leikarnir verða settir að
kvöldi 8. ágúst.
Hundrað dagar
til Ólympíuleika
Dagarnir fram að leikunum munu einkennast af auknum krafti
og eftirvæntingu Ólympíukyndillinn aftur kominn til Kína
© GRAPHIC NEWS
ÓLYMPÍULEIKARNIR Í PEKING 2008
08/08/08, kl. 20:08
Tímasetning setningarhátíðar
Ólympíuleikanna 2008- átta er
happatala í kínverskri þjóðtrú.
25 milljarðar
Upphæð varið til öryggismála. Öryggis-
gæsla kostaði um 100 milljarða á leik-
unum 2004.
10.708
80.000
Fjöldi lögreglumanna að
störfum á leikunum.
1,5 milljón
Fjöldi íbúa borgarinnar sem
hafa verið færðir til, í þeim
tilgangi að rýma fyrir nýjum
byggingum. Þetta er um
tíundi hver borgarbúi og
helmingi fleiri en voru
færðir til fyrir leikana í Seúl
í Suður-Kóreu árið 1988.
1 milljón
Fjöldi bíla sem hefur verið
bannað að aka um götur
Peking á meðan á leikunum
stendur.
70.000
Fjöldi sjálfboða-
liða á leikunum.
302
Fjöldi gullverðlauna í 28
greinum á 37 keppnisstöðum.
1,7 milljónir
Væntanlegir gestir.
2.800 milljarðar
Kostnaðurinn við byggingar
og endurbætur á
leikvöngum og
samgöngukerfi
Pekingborgar. Upphæðin
er um tvisvar sinnum hærri
en sú sem Grikkir vörðu
fyrir leikana 2004. Tólf
leikvangar hafa verið byggðir
frá grunni, ellefu endurbættir
og átta eru tímabundnir.
Heimildir: Kínverska ólympíunefndin, Kyodo News, COHRE
Fjöldi íþróttamanna.
Natascha Kampusch hefur
gagnrýnt austurrísk yfirvöld fyrir
að fjarlægja börn Elisabethar Fritzl
skyndilega úr kjallaranum þar sem
þau höfðu dvalið allt sitt líf.
Kampusch var sjálfri haldið fang-
inni í kjallara manns um átta ára
skeið, en losnaði úr prísundinni
árið 2006, þá átján ára að aldri.
Kampusch segir jafnframt að
best sé fyrir þá sem veittu „svokall-
að sérfræðiálit“ að halda sér sam-
an, „þar sem þeir hafa líklega
rangt fyrir sér“. Í viðtali við sjón-
varpsstöðina Puls 4 sagði Kamp-
usch að Fritzl-börnin yrðu að
venjast nýju lífi og að það myndi
ekki hjálpa þeim að ýta þeim í
skyndi út í nýjan og framandi
heim.
Kanslari Austurríkis, Alfred Gu-
senbauer, sagði að loknum ríkis-
stjórnarfundi í gær að orðspor
landsins hefði beðið hnekki vegna
málsins í bænum Amstetten. aí
Natascha Kampusch gagnrýnir yfirvöld
Fritzl-börnin dvelji
lengur í kjallaranum
STUTT
● Hættir Carl I. Hagen, fyrrver-
andi formaður norska Fram-
faraflokksins, hefur ákveðið að
bjóða sig ekki fram í þingkosn-
ingum á næsta ári og hætta þá
stjórnmálaafskiptum.
● Vopnahlé Tólf fylkingar Pal-
estínumanna hafa samþykkt
tillögur um vopnahlé við Ísr-
aela. Gert er ráð fyrir að það
taki gildi fyrst á Gasa og svo á
Vesturbakkanum.
● Símaat Dýragarður í Dublin
hefur neyðst til að loka fyrir
símann eftir að hafa borist um
100 þúsund símaöt síðustu vik-
urnar. Að sögn fóru sms-skeyti
manna í millum þar sem fólk
hvar sagt að hringja í gefið
símanúmer og spyrja eftir „Mr.
Rory Lion“, „G. Raffe“, „C.
Lion“ og öðru í svipuðum dúr.