24 stundir - 01.05.2008, Qupperneq 15
24stundir FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2008 15
Komdu til okkar,
taktu með
eða borðaðu
á staðnum
Alltaf góð
ur!
Kjúklingastaðurinn
Suðurveri
Nú er
orðin
n stór
Hinar vinsælu
dönsku bókahillur
komnar aftur
Tekk - Kirsuberja - Hlynur - Coffee
Hringið og biðjið um mynda- og verðlista
HÚSGAGNAVERSLUN V/HALLARMÚLA - 108 REYKJAVÍK
SÍMI 553 8177 & 553 1400 - www.heimilisprydi.is
Baráttudags verkalýðsins varminnst af Agli Helgasyni ívikunni. Hann tengir dag-
inn við bernsku sína og pönnu-
kökur, því hann fór
með ömmu sinni í
kaffi hjá Kristni-
boðsfélagi kvenna
og man enn hvað
pönnukökurnar
voru góðar. Egill
lætur sig þó málefni verkalýðsins
varða og spyr: „Getur einhver út-
skýrt fyrir mér um hvað deila
hjúkrunarfræðinga snýst? Á ég til
dæmis að hafa meiri samúð með
þeim en vörubílstjórum?“ Ekki
stóð á svari því verkalýðsforkólf-
urinn Guðmundur Gunnarsson
svaraði Agli að bragði og útskýrði
fyrir honum grunnþætti í verka-
lýðsbaráttunni.
Þótt fleiri en Egill Helgasontengi fyrsta maí við annaðen kröfugöngur kunna
flestir vel að meta frídaginn. Sú
óheppilega tilhögun að hann skuli
falla saman við
uppstigningardag í
þetta skipti gerir
mörgum launþeg-
anum gramt í geði.
En nú flýgur fyrir að
dagurinn geti orðið
eftirminnilegri en um langt skeið.
Beðið er eftir því, að nýr liðsmaður
verkalýðsbaráttunnar, Sturla Jóns-
son trukkabílstjóri, grípi til frum-
legra aðgerða á alþjóðlegum bar-
áttudegi verkalýðsins. Spurt er
hvort trukkar og hjúkkur steli sen-
unni í kröfugöngu dagsins, frá
verkalýðshetjunum gömlu sem
þraukuðu góðærið fámennar á
Ingólfstorgi. Ögmundur Jónasson
er í Vestmannaeyjum í dag.
Kaupþing og SPRON ætla aðákveða á næstu fjórumvikum hvort hægt er að
sameinast. Almennur gálgahúmor
hefur gripið um sig í
garð íslenskra banka
og bloggarar leggja
til að nýi bankinn fái
nafnið Skaupþing
eða Spronþing,
Glaumþing, Kron
eða Spring. Bún-
aðarbanki skal hann ávallt heita
segja aðrir. Í gær bárust svo fréttir
af niðurskurði í Seðlabankanum,
sem hefur keypt sér 7,7 milljóna
króna Landcruiser-jeppa til að
nota í almennt snatt á vegum
bankans. DV útskýrir niðurskurð-
inn og segir þetta kreppujeppa af
því að hann er ódýrari en Range
Rover sem bankinn hefur hingað
til notað til snúninga.
beva@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Allsherjarnefnd Alþingis fjallaði í
gær um atburðina, sem áttu sér
stað við Suðurlandsveg þann 23.
apríl. Til fundarins var boðað sam-
kvæmt ósk þriggja fulltrúa stjórn-
arandstöðunnar í nefndinni. Sam-
kvæmt þingsköpum ber að verða
við slíkri beiðni svo fljótt sem auðið
er og var það gert. Tilgangur fund-
arins var að upplýsa nefndarmenn
um atburðarásina þennan dag,
mótmæli vörubílstjóra, tilefni og
framkvæmd lögregluaðgerða af því
tilefni og önnur atvik sem máli
skiptu í þessu sambandi. Málefnið
snertir verksvið allsherjarnefndar
með þeim hætti, að hún er sú þing-
nefnd sem fjallar með almennum
hætti um lög og reglur sem varða
lögreglu, réttarvörslu og skyld mál-
efni. Það liggur hins vegar líka ljóst
fyrir að nefndin hefur ekki það
hlutverk að rannsaka einstök tilvik,
eftir atvikum einstakar lögregluað-
gerðir, eða að kveða upp úrskurði í
ágreiningsefnum sem af þeim
kunna að rísa. Lögreglunni ber
auðvitað jafnan sjálfri að fara yfir
mál í tilvikum sem þessum, ríkis-
saksóknari getur einnig tekið ein-
stök mál upp ef ástæða er til að ætla
að lögregla hafi gengið lengra í að-
gerðum sínum en efni stóðu til og
þeim sem telja sig harðræði beitta
af hálfu lögreglu með einhverjum
hætti er svo auðvitað alltaf heimilt
að bera sín mál undir dómstóla, þar
sem hin endanlega úrlausn slíkra
ágreiningsmála á sér stað. Þá geta
borgararnir líka leitað eftir áliti
umboðsmanns Alþingis varðandi
einstaka þætti mála af þessu tagi.
Vera kann að á einhverja þætti at-
burðanna við Suðurlandsveg reyni
með einhverjum hætti. Það skýrist
að öllum líkindum á næstunni. Á
fundi sínum í gær hlýddi allsherj-
arnefnd á lýsingu lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu á atburða-
rásinni og svör varðandi einstök at-
vik, lagaheimildir og annað sem
nefndarmenn töldu nauðsynlegt að
fá fram varðandi málið. Jafnframt
hlustaði nefndin á sjónarmið vöru-
bílstjóra, en fyrir nefndina komu
menn sem verið hafa í forystu fyrir
mótmælaaðgerðum af þeirra hálfu
að undanförnu. Sýn þeirra á at-
burðina 23. apríl er sem kunnugt er
talsvert frábrugðin lýsingu lögregl-
unnar en þrátt fyrir að mikið hafi
borið á milli í frásögnum gesta
nefndarinnar var fundurinn upp-
lýsandi. Ekki verður um frekari
vinnslu málsins að ræða af hálfu
allsherjarnefndar, fyrir utan að ósk
barst frá einum nefndarmanni um
að hún fengi í hendur myndbands-
upptökur sem til eru af atburðum.
Nefndin mun því ekki skila neinu
áliti eða formlegri niðurstöðu af
umfjöllun sinni. Það er ekki hennar
hlutverk. Það er hins vegar skoðun
mín, að fullt tilefni hafi verið til að-
gerða lögreglunnar í þessu tilviki og
raunar fleirum sem tengjast mót-
mælum vörubílstjóra að undan-
förnu. Það er jafnframt skoðun mín
að atburðarás og aðstæður á vett-
vangi hafi í þessu tilviki kallað á
meiri viðbúnað og harðari aðgerðir
af hálfu lögreglunnar en við eigum
almennt að venjast. Ekkert kom
fram á fundinum í gær sem breytir
þeirri afstöðu minni. Mitt mat er að
þessar aðgerðir lögreglu og þær að-
ferðir sem hún beitti þoli alla skoð-
un en það er auðvitað annarra að
kveða endanlega upp úr um það. Í
mínum huga er kjarninn þessi: Í
lýðræðisþjóðfélagi eins og okkar
eiga allir rétt á að tjá skoðanir sínar
og mótmæla. Rétturinn til þess er
verndaður af stjórnarskrá og ekkert
í lögum hindrar menn í slíkri tján-
ingu. Það er hins vegar jafnljóst, að
reiði einstakra manna í garð stjórn-
valda, hagsmunabarátta þeirra eða
hver svo sem undirrót mótmæl-
anna kann að vera, réttlætir ekki að
þeir brjóti lög, virði að vettugi lög-
mæt og eðlileg fyrirmæli lögreglu
eða reyni að hindra hana í störfum
sínum. Lögreglu ber að sjálfsögðu
að gæta meðalhófs í öllum aðgerð-
um sínum en því alvarlegri sem að-
stæður og atburðarás er hverju
sinni, þeim mun meira tilefni er til
harðra lögregluaðgerða. Hags-
munabarátta og stjórnmálabarátta
á að fara fram eftir leikreglum lýð-
ræðisins, innan ramma laganna, en
ekki með ólögmætum aðgerðum á
götum úti.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Lögregluaðgerðirnar
þola skoðun
VIÐHORF aBirgir Ármannsson
Það er hins
vegar skoðun
mín, að fullt
tilefni hafi
verið til að-
gerða lög-
reglunnar í
þessu tilviki.