24 stundir - 01.05.2008, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2008 24stundir
LÍFSSTÍLLHEILSA
heilsa@24stundir.is a
Þetta gerir mann líka að einhverju leyti
hugrakkari þannig að maður er miklu hæf-
ari til að takast á við daglega lífið auk þess sem
það ver mann gegn áreiti í kringum mann.
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Daði Guðbjörnsson listmálari hef-
ur stundað sahaja-jóga í tæp þrjú
ár og finnur mikinn mun á sér.
Löngun í áfengi hvarf og það sama
má segja um ýmis líkamleg vanda-
mál. „Þegar ég var búinn að stunda
þetta í tvo mánuði fann ég að mig
langaði ekkert lengur í áfengi. Það
er eins og þessi löngun hafi bara
horfið. Ég var svo sem engin rosa-
leg fyllibytta en það hefði mátt vera
meira hóf á þeim hlutum,“ segir
Daði og bætir við að það hafi ekki
verið mjög gott fyrir heilsuna. „Ég
hafði líka verið með stoðkerfis-
vandamál og vöðvabólgur. Það hef-
ur lagast mjög mikið. Ég var á
blóðþrýstingsmeðulum en nú er
blóðþrýstingurinn kominn í lag,“
segir Daði.
Losnar við reiði
Reynsla Daða er ekkert eins-
dæmi því að læknisfræðilegar
rannsóknir hafa sýnt fram á góð
áhrif sahaja-jóga á ýmsa sjúkdóma
allt frá fíknisjúkdómum til þung-
lyndis og kvíða. „Maður verður
miklu jákvæðari og losnar við
þessa innibyrgðu reiði sem maður
er með. Þetta gerir mann líka að
einhverju leyti hugrakkari þannig
að maður er miklu hæfari til að
takast á við daglega lífið auk þess
sem það ver mann gegn áreiti í
kringum mann,“ bætir hann við.
Kúndalíni virkjað
Sahaja-jóga gengur út á að virkja
hina svo kölluðu kundalíniorku
sem þekkt er í öllum trúarbrögð-
um undir mismunandi nöfnum. „Í
fyrsta tímanum finnur maður fyrir
mjög djúpri slökun og að manni
líður betur. En maður þarf að
stunda þetta helst tvisvar á dag til
að það fari að virka,“ segir Daði og
bætir við að í raun geti menn
stundað jóga heima hjá sér en gott
sé að mæta á fund einu sinni í viku
þar sem maður nái dýpri slökun.
Þá hefur hópurinn einnig sín áhrif.
„Það er í raun vilji okkar að það séu
sem flestir í þessu því að það styrkir
kúndalínistreymið ef fleiri taka
þátt,“ segir Daði Guðbjörnsson að
lokum.
Tímar í sahaja-jóga eru án end-
urgjalds. Þeir sem vilja kynna sér
það betur geta nálgast upplýsingar
á vefsíðunum www.sahajayoga.is
og www.meditationresearch.co.uk.
Sahaja-jóga hefur haft góð áhrif á Daða Guðbjörnsson
Verður jákvæðari
og losnar við reiði
Hætti að drekka
Daði Guðbjörns-
son missti áhuga á
áfengi eftir að
hann fór að stunda
sahaja-jóga.
Daða Guðbjörnssyni
finnst hann vera hæfari
til að takast á við daglegt
líf og verjast áreiti eftir
að hann fór að stunda sa-
haja-jóga. Löngun í
áfengi hvarf og það sama
má segja um ýmis lík-
amleg vandamál.
➤ Öll námskeið í sahaja-jóga,jafnt byrjenda- sem fram-
haldsnámskeið, eru án end-
urgjalds.
➤ Hér á landi er hægt að sækjatíma í Reykjavík og á Ak-
ureyri.
SAHAJA-JÓGA
Þeir sem hafa hug á að hjóla sér
til heilsubótar í sumar geta mætt
á kynningu á íslenskum hjól-
reiðafélögum í kvöld. Á annan
tug félaga starfar á landinu og
kynna þau starfsemi sína í hús-
næði Íslenska fjallahjólaklúbbs-
ins að Brekkustíg 2. Allir vel-
komnir.
Hjólað í sumar
Indverjinn Shri Mataji Nirmala
Devi er upphafsmaður Sahaja-
jóga. Hún hefur haldið þúsundir
fyrirlestra frá árinu 1970 og
kennt milljónum manna að til-
einka sér þessa hugleiðsluaðferð.
Hún fæddist árið 1923 í Chindw-
ara, nam læknisfræði og tók þátt í
sjálfstæðisbaráttu Indlands á
námsárum sínum. Hún hefur
jafnframt stofnað og sett á lagg-
irnar fjölda hjálpar- og hjúkr-
unarstofnana. Shri Mataji hlaut
Friðarverðlaun Sameinuðu þjóð-
anna árið 1989 og hefur verið til-
nefnd til friðarverðlauna Nóbels
fyrir störf sín.
Upphafsmaður
Sahaja-jóga
Heilsumeistarinn.is og Young Living á Íslandi verða með kynningu á
sýningunni Heilsa, húð og hár í Smáralindinni helgina 3.-4. maí.
Boðið verður upp á NigXia Red-safann og ýmis tilboð. Ávaxtasafinn
NingXia Red er gerður úr hinum kröftugu úlfaberjum eða goji-
berjum frá NigXia-dalnum í Kína. Þetta afbrigði úlfaberjanna býr
yfir miklum andoxunarkrafti og inniheldur ýmis efni sem hafa góð
áhrif á líkamann, m.a. á sjónina og blóðsykurinn, og styrkir ónæm-
iskerfið.
Heilsa og hár
Lagerstjóri óskast í fullt starf á lager Rúmfatalagersins í Skeifunni.
Æskilegt er að umsækjandi sé skipulagður, útsjónasamur, hafi góða þjónustulund og
einnig einhverja reynslu af lagerstarfi. Góð laun í boði.
Áhugasamir vinsamlegast hafi samband við verslunarstjóra í síma 820-8003.
Eða í verslun okkar Rúmfatalagernum Skeifunni 13.
FRAMTÍÐARSTARF - LAGERSTJÓRI
ATVINNA