24 stundir - 01.05.2008, Side 24
Nesbyggð
Reykjanesbær
Okkur vantar múrara eða menn
vana múrverki.
Upplýsingar í síma
840 6101 á íslensku og
840 6102 á pólsku
24 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Írisi Ölmu Vilbergsdóttur
iris@24stundir.is
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands, er að eigin sögn öfgafullur
kolagrillari. „Ég grilla meira og
minna allt árið en ég læt það þó
eiga sig í mestu vetrarhörkunum.
Grillið er á svölunum hjá mér
þannig að veðrið þarf að vera mjög
slæmt til þess að ég komist ekki að
grillinu,“ segir Ólafur og bætir við
að hann grilli eingöngu á kolagrilli.
Vill ekki eldavél á svalirnar
„Við keyptum gasgrill fyrir
nokkrum árum en ég var fljótur að
átta mig á því að gasgrill er lítið
annað en eldavél og ég sé enga
ástæðu til þess að vera með eldavél
á svölunum. Mér finnst maturinn
alls ekki bragðast rétt ef hann er
grillaður á gasgrilli. Við gáfum því
gasgrillið eftir að hafa reynt það í
eitt til tvö ár og keyptum okkur
stórt og fínt Weber-kolagrill.“
Tæknin skiptir máli
„Grillið okkar er með réttu lagi
og býður upp á að hægt sé að grilla
bæði beint og óbeint.“
Að grilla beint þýðir að sögn
Ólafs að setja matinn beint yfir eld-
inn en ef þú setur bakka undir
matinn og kolin til hliðar ert þú að
grilla óbeint. „Fitan lekur þá niður
í bakkann og það myndast hringrás
í grillinu þegar lokið er á og hitinn
dreifist um grillið. Þessi grillaðferð
minnkar töluvert líkurnar á því að
það kvikni í matnum og þetta er
því sérstaklega öflug grillaðferð. Ef
þessi aðferð er notuð er til dæmis
hægt að grilla heilt læri eða hrygg
án þess að vefja kjötið inn í álpapp-
ír. Kjötið er þá alveg óvarið á grill-
inu og verður þeim mun bragð-
betra fyrir vikið.“
Lærði að grilla í BNA
Ólafur hefur staðið við grillið í
tæp 20 ár en hann smitaðist af
grillbakteríunni þegar hann bjó í
Bandaríkjunum. „Ameríkanar eru
miklir sérfræðingar í grillum og
grilla mjög mikið. Hjördís eigin-
kona mín er listamaður í eldhúsinu
og ég hef fengið að aðstoða hana
aðeins þar en þar sem ég er ekki
nógu hæfileikaríkur þar, í saman-
burði við Hjördísi, hef ég mest
staðið við grillið. Við vinnum þó
að sjálfsögðu saman enda sér Hjör-
dís oft um að krydda kjötið og ég
tek svo við því og grilla það,“ segir
meistaragrillarinn Ólafur að lok-
um.
Grilláhugamenn eru ekki allir hrifnir af nýjustu gasgrillunum
Grillar eingöngu
á kolagrilli
Gasgrillin eru á margan
hátt þægilegri en kola-
grillin og því betri fyrir
þá sem ekki nenna að
stússa mikið við grillið.
Ekki eru þó allir tilbúnir
að segja skilið við kola-
grillin enda vill fólk ekki
missa þetta sérstaka
bragð sem kemur af kol-
unum.
➤ Njóta mikilla vinsælda íBandaríkjunum og hér á
landi.
➤ Er bæði hægt að fá með gasiog einnig sem kolagrill.
➤ Býður meðal annars upp ásérstakt grill til að reykja
matinn en það er tveggja
hæða og því er hægt að
reykja tvær máltíðir í einu.
➤ Býður upp á ferðakolagrill ogsvokölluð búgarðsgrill sem
eiga að vera sérstaklega
hentug fyrir stóra hópa.
WEBER-GRILL
Ertu að flytja, láttu fagmenn
sjá um verkið fyrir þig
Örugg og trygg
þjónusta
VORIÐGRILLIÐ
lifsstill@24stundir.is a
Við gáfum því gasgrillið eftir
að hafa reynt það í eitt til tvö ár
og keyptum okkur stórt og fínt We-
ber-kolagrill.“
Grillkóngur Ólafur hefur staðið við
grillið í 20 ár.