24 stundir - 01.05.2008, Blaðsíða 25
24stundir FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2008 25
Sumrin eru aðalbrúðkaupstíminn og
margir munu fara í brúðkaupsveislu helgi
eftir helgi í sumar. Eftir þriðja brúðkaupið
verða kökurnar og fingramaturinn líklega
orðin ansi óspennandi. Brúðhjón sem vilja
leggja mikið í matinn og gera veisluna eft-
irminnilega ættu að hafa samband við veislu-
þjónustur sem bjóða upp á ekta grillveislur.
Hamborgari eða svínakjöt á grillið
Grillveisla í stað hinnar hefðbundnu
kökuveislu býður upp á marga skemmtilega
möguleika. Til dæmis er hægt að fresta veisl-
unni fram á kvöld og bera grillmatinn fram
sem kvöldmat. Brúðkaupið sjálft færi þá
fram um kaffileytið og svo tæki við safarík
kjötveisla. Alvöru grillþjónusta mun tryggja
að allir fái eitthvað við sitt hæfi, hvort sem
gestirnir vilja pylsur, hamborgara eða svína-
kjöt með bökuðum kartöflum og maís-
stöngli.
Öðruvísi stemning
Stemningin í brúðkaupinu stjórnast oft af
því hvernig matur er borinn fram enda
öðruvísi að standa með fingramat og kampa-
vín í eftirmiðdaginn en að sitja með grillað
svínakjöt og kaldan bjór um kvöldmat. Ung
hjón sem vilja hafa létta og skemmtilega
partístemningu ná örugglega upp réttum
anda með því að bjóða í grillveislu þar sem
hver og einn mætir í hæfilega fínum klæðn-
aði. Eftir matinn er svo kjörið að bera brúð-
artertuna fram í eftirrétt.
iris@24stundir.is
Grill eru ekki bara góð í bakgarðinum
Grillbrúðkaup í stað hefðbundinnar kökuveislu
Brúðkaupsdagurinn Veislan
skiptir miklu máli fyrir parið.
4 nauta rib eye, 250 g sneiðar
2 bakkar rótargrænmetisblanda,
Nóatúns kryddað rótargrænmeti
4 grillkartöflur.
1 krukka köld Nóatúns
villisveppasósa
Leiðbeiningar
Mikilvægt er að kjötið sé látið
standa það lengi úti að það nái
stofuhita í kjarna. Grillið er hitað
upp öðrum megin. Kjötið er
kryddað með Maldon-salti og ný-
möluðum pipar og svo grillað í 1
mín. á hvorri hlið á mesta hita á vel
hituðu grilli. Svo er það fært yfir á
þann hluta sem er ekki með eldi
undir og grillað áfram í 5-6 mín. á
hvorri hlið. Svo er kjötið tekið af
grillinu og látið standa á fati í 3-5
mín. og látið jafna sig áður en
skorið er í það. Rótargrænmetið og
kartöflurnar er hitað upp í 15 mín.
á meðalheitu grilli.
Uppskrift fengin á www.noat-
un.is.
Grilluð
nautasteik
1 kg lambafillet
Sósa:
10 ferskir graslauksstilkar
pipar
0.5 tsk. þurrkað saffran
salt.
200 g sýrður rjómi
1 msk. heitt vatn
10 fersk basillauf
Leiðbeiningar
Lambafillet Toskana og fyllt
lambafillet er grillað við mikinn
hita í 1 mínútur á hvorri hlið og
svo í 4-5 mínútur á hvorri hlið við
minnsta hita.
Sósan: Saffran er sett út í heitt
vatn og látið standa í 3 mínútur.
Sýrði rjóminn er hrærður þar til
hann verður mjúkur og vatninu
með saffraninu er bætt út í. Gras-
laukurinn er klipptur smátt með
skærum. Basillaufin eru rifin smátt
og sett saman við. Kryddað með
salti og pipar eftir smekk.
Uppskrift af www.noatun.is
Ómótstæðilegt
fyllt lambafillet