24 stundir - 01.05.2008, Síða 28
28 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2008 24stundir
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Þetta tekst allt með hjálp góðra vina
en auðvitað er ég á höttunum eftir
styrktaraðila enda engir djúpir vasar hjá
ungum stelpum eins og okkur.
Það eru gömul sannindi og ný að það sem skilur að
frábær knattspyrnulið og hin sem lulla ævinlega áfram
í hlutlausum er hæfileiki leikmanna þeirra til að skora
mörk og vinna leiki. Hvern hefði grunað í upphafi
leiktíðarinnar að félagslið eins og Barcelona með
hverja stórstjörnuna á fætur annarri í framlínunni léki
tæplega fimm leiki, 404 mínútur, án þess að skora eitt
einasta mark?
Það er engu að síður staðreyndin eftir 1-0 tapið fyrir
Manchester United í Meistaradeildinni en þau úrslit
þýða samkvæmt öllum heimildum spænskra fjölmiðla
að dagar Frank Rijkaards eru endanlega taldir og nýr
stjóri verður kynntur til sögunnar fyrr en síðar. Fimm
til sex leikmenn liðsins hið minnsta hafa þráfaldlega
verið orðaðir við önnur félög og munu áreiðanlega
fara einnig eftir hörmulegt tímabil Börsunga á
spænskan mælikvarða. Er Eiður Guðjohnsen meðal
þeirra.
Eitthvað verulega rotið í Barcelona
404 mínútur án marka
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
„Við erum ekkert að taka þátt til að
dúllast neitt heldur sýna strákun-
um að rallið er engu minna
kvennasport og af því tilefni verður
bíllinn okkar eins bleikur og hægt
er,“ segir Ásta Sigurðardóttir rall-
kappi. Ljóst er nú orðið að hún
tekur ásamt vinkonu sinni Stein-
unni Gústafsdóttur þátt í Íslands-
mótinu í ralli í sumar og þær stöll-
ur taka verkefnið alvarlega. Hefur
til að mynda verið keyptur bíll sér-
staklega vegna þessa og hver stund
nú fer í að útbúa bílinn þannig að
hann uppfylli staðla og kröfur og
ekki síst að hægt sé að sigra strák-
ana á honum.
Hvergi bangin
Ástu þekkja flestir áhugamenn
um rall og bílaíþróttir þótt ung sé
að árum en hún er nú á nítjánda
aldursári. Hún hefur verið aðstoð-
armaður bróður síns, Daníels Sig-
urðarsonar, í ralli um alllangt skeið
og saman hafa þau hampað Ís-
landsmeistaratitli og reynt fyrir sér
erlendis. Ásta hefur þó ekki keppt
sjálf undir stýri hingað til en getur
vart beðið eftir tækifærinu. „Þetta
verður frábært sama hvernig fer en
við teljum okkur í ágætum málum.
Við skiptum út Suzuki-bíl, sem
upphaflega var hugmyndin að
keppa á, fyrir Cheerokee-jeppa og
það er ekki ökutæki af verri end-
anum. Nú sitjum við sveittar ásamt
mörgum vinum okkar að breyta og
bæta og náum því alveg enda fyrsta
mót ekki fyrr en seint í maí og við
verðum klárar þá.“
Bleikt er málið
Ekki er óþekkt að Ásta gangi um
með skærbleikt hár sjálf á tíðum og
segir hún engan annan lit koma til
greina á jeppann fyrir keppnismót
sumarsins. „Okkur er mikið í mun
að sýna að rall er ekki aðeins fyrir
stráka og karla heldur geta stelpur
þetta líka og liturinn segir ákveðna
hluti í því sambandi og vekur von-
andi einhverja til umhugsunar.“
Vantar styrktaraðila
Rekstur rallbíls á Íslandsmótinu
er ekki alveg gefins. Ástu telst til að
grófur kostnaður við að taka þátt
hlaupi á hundruðum þúsunda og
mikilvægt að finna styrktaraðila ef
allt á að ganga upp. „Bíllinn kost-
aði sitt þótt verðið á honum hafi
verið mjög sanngjarnt og annar
kostnaður við breytingar og slíkt er
um þrjú hundruð þúsund. Þetta
tekst nú með hjálp góðra vina en
auðvitað er ég á höttunum eftir
einhverjum til að styrkja framtakið
enda engir verulega djúpir vasar
hjá ungum stelpum eins og okkur.
Öll slík aðstoð er mjög vel þegin.“
Ráð er fyrir gert að fyrsta rallmót
sumarsins fari fram eftir þrjár vik-
ur.
Ung en reynslumikil Ásta
hefur um tíma verið aðstoðar-
ökumaður bróður síns og
gengið verið frábært.
Strákarnir
eftir í rykinu
Hin nítján ára Ásta Sigurðardóttir og jafnaldra hennar og vin-
kona Steinunn Gústafsdóttir taka slaginn við strákanna í rallinu í
sumar Ætla að sýna að rallið er kvennasport
Hræðist ekkert Ásta getur ekki beðið
eftir að setjast undir stýri fyrsta sinni.
Það er meira
í Mogganum
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
í dag
Fimmtudagur 1. maí 2008
Þeir Bubbi og Beggi Morthens ætla
að endurvekja hljómsveitina Egó.
Sukkið setti strik í reikninginn á
sínum tíma.
» Meira í Morgunblaðinu
Bræður í bandi
Jóhanna Guðrún,
öðru nafni Yoh-
anna, gerir harða
atlögu að topp-
sæti Tónlistans,
en nær ekki að
velta hinum þaul-
sætna Vilhjá́lmi
Vilhjálmssyni og Myndinni af þér
úr sessi.
» Meira í Morgunblaðinu
Nálgast toppsætið
Gagnrýnandi
Morgunblaðs-
ins gefur In the
Valley of Elah
fjórar og hálfa
stjörnu og seg-
ir hana heið-
arlegustu mynd ársins. Tommy Lee
Jones og Charlize Theron fara á
kostum í aðalhlutverkunum.
» Meira í Morgunblaðinu
Heiðarleg mynd
reykjavíkreykjavík