24 stundir - 01.05.2008, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2008 24stundir
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Þegar á hótelið var komið reyndist Ronaldo
hafa keypt köttinn í sekknum, eða réttara
sagt karlinn í kjólnum, því allar vændiskonurnar
reyndust vera karlmenn.
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
Brasilíska knattspyrnugoðið
Ronaldo komst heldur betur í
hann krappan um síðastliðna
helgi eftir að upp úr sauð á milli
hans og þriggja vændiskvenna í
Rio de Janeiro. Ronaldo, sem er
um þessar mundir á heimaslóð-
um að jafna sig eftir hnéaðgerð,
hitti þrjár föngulegar vænd-
iskonur á bar í Rio og eftir stutt-
ar samningaviðræður var ákveð-
ið að halda upp á hótelherbergi
kappans þar sem leikurinn
skyldi hefjast.
Þegar á hótelið var komið
reyndist Ronaldo hafa keypt
köttinn í sekknum, eða réttara
sagt karlinn í kjólnum, því allar
vændiskonurnar reyndust vera
karlmenn. Upphófst þá mikið
rifrildi sem endaði með því að
kallað var eftir aðstoð lögreglu
og voru allir deiluaðilar færðir á
lögreglustöð til skýrslutöku.
Fjárkúgun og fíkniefni
Að sögn Ronaldos reyndi hann að
borga vændiskörlunum til að fara um
leið og hann uppgötvaði rétt kyn til-
vonandi bólfélaga sinna. Tveir af þeim
þáðu andvirði 45.000 króna fyrir að
yfirgefa svæðið og þegja um atburð-
inn en þriðji hórkarlinn fór fram á
mun hærri fjárhæð, um 2,3 milljónir
króna, til að yfirgefa svæðið. Vænd-
iskonur sögðu við yfirheyrslu að Ro-
naldo hefði neytt fíkniefna með þeim
en þeirri fullyrðingu neita talsmenn
knattspyrnuhetjunnar alfarið.
Ekki sakhæfur
Samkvæmt brasilískum lögum er
vændisstarfsemi eða kaup á þessar
háttar þjónustu ekki refsiverð og því
þarf Ronaldo ekki að svara til saka
fyrir þetta óheppilega atvik. „Hann
vildi bara skemmta sér og hitta fólk
sem stæði utan við hans dæmigerða
umhverfi. Honum er nokkuð
brugðið. Hann sagði mér að hann
glímdi við andlega erfiðleika sökum
meiðsla sinna,“ sagði lögregluþjónn-
inn Carlos Augusto Nogueira þegar
hann ræddi við brasilíska fjölmiðla
um rannsókn málsins.
Hann bætti því við að Ronaldo
þyrfti engu að kvíða varðandi rann-
sókn málsins en það verður rann-
sakað sem tilraun til fjárkúgunar af
hálfu vændiskarlanna.
Knattspyrnuhetjan Ronaldo í vandræðum með vændiskonur
Of margir menn
inni á vellinum
➤ Ronaldo hóf atvinnuferil sinní knattspyrnu með liðinu Cru-
zeiro Esporte Clube í Brasilíu.
➤ Hann hefur tvívegis orðiðheimsmeistari með brasilíska
landsliðinu, 1994 og 2002.
➤ Hann leikur nú með A.C. Mil-an á Ítalíu.
RONALDO
Knattspyrnugoðið Ro-
naldo komst í kast við
lögin eftir að lögregla
þurfti að hafa afskipti af
heiftarlegu rifrildi kapp-
ans við þrjár vænd-
iskonur. Ástæða rifrild-
isins var sú að tilvonandi
hjásvæfur reyndust vera
karlmenn.
Vill enga hórkarla
Ronaldo var ekki sátt-
ur þegar upp komst
um rétt kynferði
vændiskvennanna.
Mynd/Getty Images
Jamie Lynne Spears, litla systir
Britney Spears, gengur með
stelpu, samkvæmt bandaríska
tímaritinu Life & Style. Stúlkan á
að koma í heiminn 29. júní. Móð-
ir systranna ku vera í skýjunum
yfir því að fá litla ömmustelpu,
en hún á fyrir tvo litla ömm-
stráka. Life & Style segir einnig að
kærasti Jamie Lynne Spears sé af
einhverjum ástæðum stressaður
yfir því að eiga von á stúlku.
Litla Spears
eignast dóttur
Ofurparið Angel-
ina Jolie og Brad
Pitt lentu í Frakk-
landi í vikunni
ásamt börnum
sínum fjórum.
Angelina krafðist
þess að barnið
sem hún ber und-
ir belti kæmi í heiminn í Frakk-
landi, en þau dvelja í glæsivillu
Pauls Allens, eins af stofnendum
Microsoft, meðan á dvölinni
stendur. Parið ætlar að láta sjá sig
á Cannes-kvikmyndahátíðinni
um miðjan maí og ætlar ekki að
yfirgefa landið fyrr en barnið
fæðist.
Ætlar að fæða
í Frakklandi
MYNDASÖGUR
Aðþrengdur Afsakið að ég er til!
WATSON
KOMDU! ÉG
ÞARF AÐ TALA
VIÐ ÞIG!
GERA ÞESSAR BUXUR MIG FEITARI?
Bizzaró
Í nútíma heimi, Clark, eru eimreiðar
ekki nógu kraftmiklar OG hraði
byssukúlunnar er HÆGUR miðað
við hraða leiservopna. Ég held að við
verðum að endurskoða ímynd þína.
UMBOÐSMAÐUR SUPERMANS
FYRIR ENSKU, VELDU E INN -
EÐA SKI LDU EFTIR SKILABOÐ - EÐA
LEGGÐU FRÁ ÞÉR ÞENNAN
ASNALEGA S ÍMA OG SNÚÐU ÞÉR
VIÐ OG TALAÐU VIÐ MIG.
Pause Café
Sætir bolir og toppar
í sumar
Stærðir 34 -52
Suðurlandsbraut 50
(Bláu húsunum Fákafeni)
www.gala.is • S:588 9925
Opið 11-18 og 11-16 lau.
HEILL HEIMUR
AF SKEMMTUN
Opið sunnudaga til fimmtudaga
11.00 -24.00
Opið föstudagaoglaugardaga
11.00 - 02.00
Skólavörðustíg 21 – Sími 551 4050 – Reykjavík
Sængur og koddar
Allar stærðir
Hlíðasmára 14 • 201 Kópavogur
Opið mán-lau kl. 11-17
Sendum frítt um land allt
NÁTTÚRULÆKNINGABÚÐIN
ULL OG SILKI
Nærfatnaður
fyrir útivistina
Skíði, golf,
vélsleða, veiði
o.m.fl.