24 stundir - 01.05.2008, Síða 38
38 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2008 24stundir
„Jahá, það er bara að verða liðin
fjögur ár frá síðasta Evrópumóti í
fótbolta. Ég valdi Grikki og fylgdi
þeim til loka. Mínir menn brugð-
ust mér ekki 2004 og ekki ætla ég
að svíkja þá núna. Grikkland
mun koma öllum á óvart og verja
titilinn! Sá hlær best sem síðast
hlær.“
Stefán Pálsson
kaninka.net/stefan
„Jónína Ben hefur staðið að de-
tox-meðferðum til Póllands. Nú
hefur Edda Björgvins tekið sig til
og býður upp á detox-námskeið á
Sólheimum. ...ég er byrjaður að
undirbúa „short version“ af
„short version“ Eddu. Í stað rist-
ilhreinsunar og hláturæfingar hef
ég kynningu á skrautskrift.“
Jens Kr. Guðmundsson
jensgud.blog.is
„Ingó Idol er ekkert súr þótt fúlir
bloggar fíli ekki lagið hans. Gott
mál að vera með 10.000 fjórtán
ára gellur sem aðdáendur og
fremja tónlistarhryðjuverk. Alltaf
fundist fyndið að gaurinn sé
kenndur við Idol. Sem er ekkert
miðað við gaurinn sem verður
kenndur við Bubba alla sína ævi.“
Tómas Ha
tomasha.blog.is
BLOGGARINN
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
„Poppið er allt öðruvísi markaður
en rokkið. Það bókar enginn Halta
hóru á árshátíð,“ segir Valgeir Þor-
steinsson, smiður, faðir og
trommuleikari Veðurguðanna.
Veðurguðirnir, með Ingó úr
Idolinu í fararbroddi, er ein heit-
asta hljómsveit landsins um þessar
mundir. Sumarsmellur sveit-
arinnar Bahama situr í efsta sæti á
lista yfir vinsælustu lög landsins
sem birtist í Morgunblaðinu í dag.
Fæstir vita að þrír meðlimir Veð-
urguðanna fóru mikinn í rokk-
sveitinni Haltri hóru fyrir nokkr-
um misserum, en í dag hafa þeir
breytt um stíl, enda virðulegir fjöl-
skyldumenn meðal meðlima
hljómsveitarinnar.
Pabbahljómsveit
„Já, það eru tveir ungir piltar
komnir,“ segir Valgeir spurður um
nýlegar barneignir meðlima Veð-
urguðanna. Frumburður Valgeirs
og Tinnu, kærustu hans, kom í
heiminn á dögunum. Magnús, gít-
arleikari hljómsveitarinnar, er öllu
reyndari í föðurhlutverkinu. Hann
og Hjördís, kærasta hans, eign-
uðust frumburð sinn fyrir tæpum
tveimur árum. En hvernig ætli
gangi að samræma popp-
arahlutverkið því krefjandi
hlutskipti að vera ungur
faðir?
„Það gengur upp og of-
an. Maður þarf að skipu-
leggja sig vel,“ segir Val-
geir og bætir við að það sé
aldrei of mikið að gera.
„Það er gaman að hafa nóg
að gera!“
Magnús, gítarleikari Veð-
urguðanna, segist sakna
rokksins, en þarf ekki
að hugsa sig um
lengi til að finna
kosti poppsins.
„Rokkið er gef-
andi fyrir líkama
og sál, en poppið
er gefandi fyrir
líkama og buddu,“ segir hann í
léttum dúr. „Þegar maður er orð-
inn ráðsettur faðir í námi er
þetta flottasta vinna sem
maður getur fengið.“
Aðspurður hvort son-
urinn fái tónlistarlegt
uppeldi segist Magnús
ekki ætla að setja á hann
pressu. „Hann verður fyr-
ir sterkum áhrifum þegar
ég er að glamra heima á
gítar og píanó,“ seg-
ir Magnús.
„En hann
fær að
velja sín
áhuga-
mál
sjálfur.“
Fjölskyldumennirnir í Veðurguðunum eiga fortíð í rokkinu
Höltu hórurnar
komnar í guðatölu
Veðurguðirnir er ein heit-
asta hljómsveit landsins.
Þrír meðlimir sveitarinnar
voru áður í rokksveitinni
Haltri hóru, en hafa snúið
sér að poppinu og föð-
urhlutverkinu
Hölt hóra Drengirnir þrír í miðjunni
eru nú í Veðurguðunum og syngja
um bikiní-stelpurnar á Bahama.
Ingó Syngur popp með
fyrrverandi rokkurum.
Mynd/Valli T-Rex
HEYRST HEFUR …
Meistari Mugison hélt ásamt hljómsveit sinni áleið-
is til Kanada um helgina og kom fram á tónleikum í
Vancouver í gærkvöldi. Mugison og félagar hita upp
fyrir hina heimsfrægu bandarísku hljómsveit
Queens of the Stone Age, sem er leidd af honum
skelegga rauðhaus Josh Homme. Félagarnir eiga án
efa eftir að slá í gegn meðal íbúa vesturheims, sem
taka Íslendingunum örugglega fagnandi. afb
Eins og Mugison verða Lilja og félagar í Bloodgro-
up á farandsfæti í sumar. Hljómsveitin heldur í tón-
leikaferð til Englands í maí og kemur fram í Lond-
on, Manchester, Nottingham og Brighton. Þá
heldur sveitin til Danmerkur í júlí og spilar Á Hró-
arskeldu-hátíðinni. Loks heyrist að Bloodgroup eigi
í viðræðum við danshljómsveitina CSS um að hita
upp fyrir sveitina á væntanlegri tónleikaferð. afb
Hlustendaverðlaun FM 957 verða veitt í Há-
skólabíói á laugardagskvöld. Meðal hljómsveita sem
koma fram eru vöðvatröllin í Merzedes Club, en
brúnkukremið mun án efa krauma í salnum. Sagan
segir að Valgeir Magnússon, talsmaður og spuna-
meistari Merzedes Club, hafi boðið fyrrverandi
dönsurum Eurobandsins að dansa með sinni sveit á
hátíðinni, en að þeir hafi neitað pent. afb
„Ætlast var til þess að ég myndi
dreifa þessum bæklingi til krakk-
anna í bekknum mínum. Það
harðneita ég að gera,“ segir kenn-
arinn Esther Ösp Gunnarsdóttir á
bloggi sínu en hún hefur neitað að
dreifa kynningarbæklingi fyrir
kristilegar sumarbúðir til nemenda
sinna.
Esther, sem kennir 7. bekk við
Grunnskólann á Egilsstöðum,
sagði í samtali við 24 Stundir að
sér þætti það vafasamt á tímum
trúfrelsis að skólinn stæði í svona
kynningarstarfsemi. „Mér finnst
þetta bara svolítið hæpið í ljósi
þess að hér á að ríkja trúfrelsi og
sífellt að verða lögð meiri áhersla á
umburðarlyndi gagnvart öllum
trúarbrögðum og fólki af hvaða
uppruna sem er. Sem er bara af
hinu góða. En þá stangast þetta á
við það þegar skólinn er farinn að
taka að sér að dreifa kynning-
arbæklingum um trúarlegt starf.“
Esther segir að stjórnendur
grunnskólans hafi sýnt ákvörðun
hennar fullan skilning en hún set-
ur spurningarmerki við það hvort
ákvörðun hennar teljist vera frétta-
efni, en nú þegar hefur héraðs-
fréttablaðið Austurglugginn gert
ákvörðun hennar góð skil. „Ég veit
ekki alveg hvort þetta er fréttnæmt.
Ég hugsa að það hafi fleiri kenn-
arar en ég gert þetta í gegnum tíð-
ina.“
Esther bætir við að sér finnist al-
gjör óþarfi að kennarar sinni einn-
ig starfi bréfbera. „Kennarar hafa
nóg að gera þó þeir fari ekki að
taka að sér hlutverk póstburð-
arfólks líka, bara til þess að spara
kirkjunni örfáar krónur.“ vij
Kennari neitar að dreifa trúarbæklingi
Tekur ekki að sér
starf bréfbera
Ekki bréfberi Esther tekur ekki í mál að
dreifa trúarbæklingi til nemenda sinna.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
9 7 2 6 8 4 5 1 3
3 8 5 2 7 1 4 9 6
4 1 6 5 9 3 2 7 8
1 2 9 7 3 6 8 4 5
5 3 4 8 2 9 1 6 7
7 6 8 4 1 5 9 3 2
6 5 3 9 4 2 7 8 1
8 4 1 3 5 7 6 2 9
2 9 7 1 6 8 3 5 4
Hann vill tala við mann með klofna tungu.
Ég býst við að hann eigi við lögfræðing.
24FÓLK
folk@24stundir.is a
Já, þar er allt hvítt! En
vonandi verður allt
grænt bráðlega.
Eiríkur, nú er það svart?
Eiríkur B. Björgvinsson, er bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs,
þar sem vetur konungur hefur gert vart við sig með snjó-
komu undanfarið, meðan veður hefur verið frekar milt um
allt land.