24 stundir - 01.05.2008, Page 40
24stundir
Laugavegi 172-174 · 590 5000 · hekla.is · hekla@hekla.is · umboðsmenn um land allt
Nýja lága verðið tekur gildi strax í fyrramálið
Við höfum gert nýja og hagstæðari samninga við framleiðendur og getum því boðið
varanlega verðlækkun um allt að 17% á nýjum bílum. Nýtt verð á Volkswagen, Audi,
Skoda, Mitsubishi og KIA tekur gildi á morgun föstudag og svo verður sannkölluð
hátíðarstemmning um helgina. Komdu og taktu þátt í að keyra niður verðbólguna.
Erlend bílalán
Við bjóðum allt að 80% mynt-
körfulán á öllum nýjum bílum á
bestu mögulegu vöxtum.
Keyrum niður
verðbólguna.
Lækkum verð
á nýjum bílum
um allt að 17%!
F
ít
o
n
/
S
ÍA
? Íslensk vinkona mín á Ítalíu borgarleigu á þriggja mánaða fresti. Við sein-ustu greiðslu hafði upphæðin farið úr110.000 krónum í 153.000. Úps. Ég var í heimsókn á sama tíma ogfékk vægt áfall. Eftir að hafa röflað út íeitt yfir þessari 40% verðhækkun á öllusá ég að ef geðheilsan átti ekki að falla
álíka hratt og hin laskaða króna, var
ekki nema eitt í stöðunni. Að taka þetta
á jákvæðninni.
Hvað sem öllu leið gátu launin mín
enn fleytt mér langt, ég þurfti einungis
að halda mér á réttu stöðunum. Bara
við að hoppa upp í flugvél og stíga út úr
henni í landi þar sem mánaðarlaunin
voru ekki nema nokkrir þúsundkallar
varð ég ósjálfrátt að auðjöfri. Það hafði
ekkert breyst. Flugmiðar höfðu vissu-
lega hækkað verulega en á endanum
skipti ekki öllu hvort ég borgaði 33 eða
43 krónur fyrir máltíð í Kambódíu og
Kína. Á Íslandi átti ég kannski ekki
mikið en víða um heim var ég millj-
ónamæringur. 80 lönd höfðu minna en
20.000 krónur í landsframleiðslu á
mann á mánuði – 110 lönd minna en
40.000 krónur.
Það að búa á mínu dýra landi hafði
líka einn kost í för með sér: Allt annað
varð ódýrt í samanburðinum. Ég er til
dæmis að spá í að skella mér til Pakist-
ans. Pakistanskur félagi minn er að
safna fyrir ferð til Íslands. Hann er
ágætlega stæður en miðað við íslenska
verðlagið og íslensku launin eru hans
laun fjarskalega lág. Hann býst við að
komast hingað svona árið 2020.
Alveg milljón
Sigríður Víðis Jóns-
dóttir
synti í peningum
YFIR STRIKIÐ
Hvert viltu
fara?
24 LÍFIÐ
Uppeldisbræðurnir Bubbi og Beggi
Morthens fara fremstir í flokki
þegar Egó heldur tón-
leika á NASA í maí.
Uppeldisbróðir
Bubba aftur í Egó
»34
Kennarinn Esther Ösp neitar að
dreifa kynningarbæklingi fyrir
kristilegar sumarbúðir
til nemenda sinna.
Grunnskólakennari
en ekki trúboði
»38
Ingó og Veðurguðirnir eiga vinsæl-
asta lag landsins. Fæstir vita að þrír
meðlimir Veðurguðanna
eiga fortíð í rokkinu.
Veðurguðirnir fóru
úr rokkinu í poppið
»38
● Lifi Þróttur
„Ég er þakklát
traustinu sem
mér er sýnt
með þessari
kosningu Lifi
Þróttur!“ segir
Jórunn Frí-
mannsdóttir,
sem kosin var formaður
íþróttafélagsins Þróttar á aðal-
fundi félagsins í gær og verður
þar með fyrsta konan til að
gegna stöðu formanns í einu af
stóru félögunum í Reykjavík.
Með Jórunni í stjórn verða Sig-
urbjörn Jónasson, Hafliði
Helgason, Egill Heiðar Gíslason
og Andrea Þormar.
● Fjárnám
„Sú hugmynd hef-
ur verið rædd að
spila fyrir skattinn
á árshátíð í stað-
inn, en af því
verður líklega
ekki,“ segir Bóas
Hallgrímsson, for-
söngvari Reykjavíkur! en skatta-
yfirvöld gerðu tilraun til fjárnáms,
þar sem liðsmenn höfðu ítrekað
hunsað gluggapóst sinn um mis-
ræmi í skattaskýrslu, sökum fjár-
hagslegrar þroskaskerðingar og
tölulegrar lesblindu. Og liðsmenn
Reykjavíkur munu fagna áfang-
anum með því spila á Kaffibarnum
laugardaginn 3. maí klukkan
20.30. Frjáls framlög vel þegin.
● 120 ágrip
Uppskeruhátíð
vísindafólks við
Landspítalann er
hafin og að þessu
sinni kynna yfir
350 vísindamenn
og samstarfsaðilar
þeirra nið-
urstöður rannsókna á spítalanum.
„Veggspjaldakynningin í anddyri
K-byggingar hefur vaxið mikið að
umfangi. Fyrstu tvö árin voru nið-
urstöður 55 rannsókna kynntar en
í ár voru send inn 120 ágrip,“ segir
Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir,
sviðsstjóri vísinda- og rann-
sóknaþjónustu Landspítala.
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við