24 stundir - 06.05.2008, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 24stundir
Allir fimm starfsmenn fiski-
mjölsverksmiðju HB Granda á
Akranesi fengu uppsagnarbréf í
gær. Er ástæðan sú að ekki hefur
náðst sá árangur í rekstrinum sem
vonast var til, að sögn Eggerts Guð-
mundssonar forstjóra.
Ekki er verið að leggja niður
rekstur verksmiðjunnar á Akranesi
því ráðnir verða fjórir starfsmenn í
stað þeirra sem sagt hefur verið
upp. „Þetta er bara svona í fyrir-
tækjum, það þarf stundum að
breyta til,“ segir Eggert.
„Það er óhætt að segja að sá
fantaskapur sem forsvarsmenn HB
Granda sýna okkur Skagamönnum
ætli engan endi að taka,“ segir Vil-
hjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, á heima-
síðu félagsins. þkþ
Skipta út öllum
starfsmönnum
Uppsagnir hjá verksmiðju HB Granda
Eftir Hlyn Orra Stefánsson og
Elías Jón Guðjónsson
„Það er greinilega kominn upp
mjög alvarlegur brestur innan
meirihlutans í borgarstjórn,“ segir
Dagur B. Eggertsson, oddviti Sam-
fylkingar í borgarstjórn, um nei-
kvæð ummæli Ólafs F. Magnús-
sonar borgarstjóra um
vinningstillögu um skipulagningu
Vatnsmýrarinnar á íbúafundum í
Hlíðahverfi, Laugardal og mið-
borginni um helgina.
Klúður í uppsiglingu
„Það jaðrar við, ef þessi tillaga
fer ekki að hætta að trufla skipu-
lagsvinnu hér í borginni, að það
geti verið í uppsiglingu skipulags-
klúður sem hefði alvarlegar afleið-
ingar fyrir framtíðarþróun og upp-
byggingu í Vatnsmýrinni, hvort
sem við erum hlynnt því að flug-
völlurinn verði þar áfram eða
ekki,“ sagði Ólafur á íbúafundi í
miðborginni og bætti því við að
hann sem borgarstjóri hafi meira
að segja um það hvernig staðið
verði að uppbyggingu í Vatnsmýr-
inni en verðlaunahöfundarnir.
Talar gegn eigin tillögu
„Hann lagði þrjá stóra íbúafundi
undir það að tala gegn því sem
hann sjálfur lagði til að yrði unnið,
og tala gegn samstarfsfólki sínu í
borgarstjórn,“ segir Björk Vil-
helmsdóttir, borgarfulltrúi Sam-
fylkingarinnar, og vísar til þess að
stýrihópur til að vinna að skipu-
lagningu Vatnsmýrarinnar á
grundvelli vinningstillögunnar hafi
verið skipaður að tillögu Ólafs.
Mistúlkaður
Ólafur segir í yfirlýsingu sem
hann sendi frá sér í gær að ekki sé
rétt að túlka orð sín á íbúafund-
unum sem svo að hann hafi skipt
um skoðun varðandi verðlaunatil-
löguna þó að hann telji brýnt að
laga hana að ákveðnu leyti „Það
liggur fyrir og er ekkert nýtt að ég
hef talið að framtíðarþróun Vatns-
mýrarinnar eigi ekki að fela í sér
flutning flugvallar, eins og verð-
launatillagan gerir ráð fyrir,“ segir
hann.
Sjálfstæðismenn styðja tillögu
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks
hafa, eins og aðrir borgarfulltrúar,
lýst yfir ánægju með vinningstil-
löguna. Þorbjörg Helga Vigfús-
dóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokks, segir afstöðu borgarfulltrúa
flokksins ekki hafa breyst í þessum
efnum.
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og
formaður stýrihóps um skipulag
Vatnsmýrarinnar, segir gagnrýni
Ólafs á vinningstillöguna hafa legið
lengi fyrir og að hún hafi ekki af-
gerandi áhrif á starf hópsins, enda
sé innan hans verið að skoða þá
þætti sem borgarstjórinn gagnrýn-
ir. „Tillagan inniheldur kosti og
galla og helstu kostir hennar eru
hversu sveigjanleg hún er.“
Borgarstjóri
einangraður
Borgarstjóri er einn á báti í andstöðu við skipulag Vatnsmýrar
Gagnrýnin ekki ný af nálinni segir Hanna Birna Kristjánsdóttir
➤ Vinningstillagan var valin úrhópi 136 hugmynda um fram-
tíðarskipulag Vatnsmýr-
arinnar og var kynnt almenn-
ingi 14. febrúar.
➤ Á grundvelli hennar hefurstýrihópur unnið að framtíð-
arskipulagningu svæðisins.
VINNINGSTILLAGAN
24stundir/Ómar
Einangraður Ólafur
F. Magnússon er
einn á báti í borg-
arstjórn.
Endurupptökubeiðni
þeirra Sigrúnar Stef-
ánsdóttur og Þórhalls
Gunnarssonar um að Úr-
skurðarnefnd um upplýs-
ingamál taki á ný fyrir
synjun Ríkisútvarpsins
um birtingu ráðning-
arsamninga þeirra hefur
verið hafnað af Úrskurð-
arnefnd um upplýsinga-
mál.
Ríkisútvarpið hefur hingað til neitað að láta umræddar upplýsingar í
té en ritstjóri Vísis kærði synjunina til nefndarinnar sem úrskurðaði
að RÚV væri skylt að láta upplýsingarnar af hendi.
Lögmaður Sigrúnar og Þórhalls fór þá fram á endurupptöku á málinu
á þeirri forsendu að samningarnir nytu verndar samkvæmt lögum um
persónuvernd.
Úrskurðarnefndin hafnaði umræddri endurupptökubeiðni og telur
Sigrúnu og Þórhall ekki aðila að málinu.
RÚV upplýsi um laun
Verð á vörukörfu ASÍ hækkaði
um 5-7% í lágvöruverðsversl-
ununum milli 2. og 4. vikunnar í
apríl. Mest hækkaði verð vöru-
körfunnar í Bónus um 7,1%, í
Nettó nam hækkunin 6,6%, í
Kaskó 5,7% og í Krónunni 5,4%.
ASÍ segir, að mun minni breyt-
ingar hafi orðið á verði vörukörf-
unnar í öðrum verslunarkeðjum
en þar hækkaði karfan um
0,5-1% á sama tímabili.
Vörukarfan
5-7% dýrari
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Kannað var verð á kúplingsdiskasetti í Toyota Yaris ár-
gerð 2005. Í settinu er pressa, diskur og lega. Það
fundust 5 verslanir sem áttu settið til og verðmunur
var tæp 43%. Toyota-umboðið var með hæsta verð en
Fálkinn var með lægsta verð.
Ekki er heimilt að vitna í verðkönnun þessa í auglýsingum.
43% munur á kúplingunni
Þuríður
Hjartardóttir
NEYTENDAVAKTIN
Kúplingsdiskur í Toyota Yaris árg. 2005
Verslun Verð Verðmunur
Fálkinn 22.793
Poulsen 26.600 16,7 %
Stilling 27.500 20,7 %
N1 28.753 26,1 %
Toyota 32.518 42,7 %
Óskum eftir að kaupa sumarbústað,
fokheldan eða fullbúinn,
tilbúinn til fluttninga
gegn staðgreiðslu
uppl í síma 840-6100