24 stundir - 06.05.2008, Blaðsíða 32

24 stundir - 06.05.2008, Blaðsíða 32
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Rhodos 7. júní frá kr. 57.945 Ath. aðeins 8 íbúðir í boði! Bjóðum nú frábært sértilboð í viku á Sun Beach Resort á Rhodos. Sun Beach Resort er frábær valkostur fyrir þá sem vilja gististað með mikilli þjónustu og frábærri aðstöðu. Hér getur þú valið um tvo garða, strönd, íþróttaaðstöðu, verslun, veitingastaði, íþróttadagskrá, skemmtidagskrá á daginn og á kvöldin. Í boði eru stúdíóíbúðir og íbúðir með 1 svefnherbergi. Góðar íbúðir með baðherbergi, eldhúskrók, loftkælingu, sjónvarpi, síma og svölum. Í stofu er svefnsófi fyrir tvö börn. Íbúðir eru innréttaðar á látlausan en smekklegan hátt. Mikið af veitinga- og skemmtistöðum eru í næsta nágrenni við hótelið og strætó sem gengur inní miðbæ Rhodos stoppar við hótelið. Ath. Mjög takmarkaður fjöldi íbúða í boði á þessu frábæra verði. Tryggðu þér starx þetta einstaka tilboð og skelltu þér með fjölskylduna til Rhodos óg njóttu góðs aðbúnaðar í fríinu eyju sólarinnar. Verð kr. 57.945 - 1 vika Netverð á mann , m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð á Sun Beach Resort í viku. M bl 1 00 20 10 Sértilboð á Sun Beach Resort Frábær gisting **** Verð kr. 68.445 - 2 vikur Netverð á mann , m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð á Sun Beach Resort í 2 vikur. 32 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 24stundir Eftir Elínu Albertsdóttur elin@24stundir.is Unnið hefur verið að því í langan tíma að semja við kanadísk flug- málayfirvöld um áætlunarflug til Toronto og voru því miklir fagn- aðarfundir hjá Icelandair þegar þeir samningar voru í höfn. Flug til Halifax hefur verið á áætlunarleið um nokkurra ára skeið en að sögn Þorsteins Egilssonar, svæðisstjóra Icelandair í Norður-Ameríku, er mikill áhugi meðal Íslendinga að ferðast til Kanada. „Viðtökurnar hafa verið mjög góðar og algjörlega í takt við það sem við höfðum búist við. Það er því með mikilli ánægju sem við bjóðum upp á ferðir til To- ronto,“ segir Þorsteinn, sem stund- aði framhaldsnám í verkfræði í Halifax og er öllum hnútum kunn- ur í Kanada. Toronto er stórborg. Hún minn- ir um margt á New York og þá sér- staklega hinir fjölmörgu skýjakljúf- ar sem liggja þétt í miðborginni. Fyrir þá sem hafa gaman af stór- borgarferðum er Toronto enn einn möguleikinn því borgin hefur upp á flest það að bjóða sem aðrar stór- ar borgir hafa. Mjög litríkt mann- líf, stórar verslanamiðstöðvar, góð veitingahús og skemmtileg kenni- leiti. Eitt það merkilegasta er CN- turninn sem allt fram til ársins í fyrra var hæsti turn heims, um 554 metrar á hæð. Um tvær milljónir manna koma í turninn á ári hverju til að virða fyrir sér útsýnið en á góðum dögum má sjá yfir til New York úr turninum. Í 350 metra hæð er glæsilegt veitingahús sem snýst hraðar en Perlan meðan menn gæða sér á veitingum. Það er gríð- arlega skemmtilegt að virða fyrir sér útsýnið yfir borgina meðan set- ið er yfir góðum mat, sérstaklega á björtum sumarkvöldum. Í Toronto búa mörg þjóðarbrot eins og annars staðar í Kanada. Í borginni eru þrjú Kínahverfi og þar er einnig Litla-Ítalía og skemmti- legt grískt hverfi þar sem kvik- myndin My Big Fat Greek Wedd- ing var tekin upp en Toronto er einnig oft kölluð Litla-Hollywood vegna þess hversu margar kvik- myndir eru teknar upp þar. Sumir þættir CSI hafa einnig verið teknir þar upp. Fyrir ferðalanga er gaman að rölta um þessi hverfi, skoða fjöl- breytt mannlífið og versla. Í aðeins eins og hálfs klukkutíma fjarlægð eru hinir ægifögru Niag- ara-fossar sem enginn ætti að sleppa að skoða. Hótelin útvega miða í ferðir þangað svo og í sigl- ingar og fleira sem ferðamenn hafa áhuga á. Þótt veturnir séu kaldir í Toronto þá eru sumrin hlý og heit. Þá draga veitingahúsin borð og stóla út undir bert loft og skemmti- leg stemning myndast. Skýjakljúfar Toronto er vinsæl borg meðal kvikmyndagerð- armanna og margar frægar kvik- myndir hafa verið teknar upp þar. Icelandair býður áætlunarflug til Toronto Iðandi mannlíf undir skýjakljúfum Icelandair hefur opnað Ís- lendingum dyr að einni stærstu borg Norður- Ameríku, Toronto í Kan- ada, en flug þangað hófst sl. föstudag og verður fimm sinnum í viku í sum- ar. Sérstök móttöku- athöfn var fyrir gesti og áhöfn á flugvellinum þegar lent var í Toronto en meðal fyrstu farþega var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráð- herra. ➤ Toronto er oft kölluð Litla-New York. ➤ CN-turninn var hæsta bygg-ing heims þar til í fyrra er byggt var hærra í Dubaí. ➤ Fyrir utan borgina eru 70 litl-ar eyjar sem er vinsælt að heimsækja. ➤ Í Toronto búa mörg þjóð-arbrot, t.d. frá Asíu, Írlandi, Englandi, Afríku og Kar- íbahafinu. TORONTO Flughræðsla er án efa ein algeng- asta tegund hræðslu enda þekkja flestir einhvern sem þjáist af flug- hræðslu á einhverju stigi. Icelandair hefur um árabil hald- ið námskeið fyrir þá sem þjást af flughræðslu og hafa námskeiðin gefið mörgum þátttakendum alveg nýtt tækifæri í lífinu. Tækifæri til þess að ferðast áhyggjulaust og sjá hvað heimurinn hefur að bjóða. Námskeiðin eru haldin í sam- vinnu við Sálfræðistöðina en Álf- heiður Steinþórsdóttir sálfræðing- ur er einn af leiðbeinendum námskeiðisins ásamt Páli Stefáns- syni flugstjóra. Á námskeiðinu eru kenndar að- ferðir til að vinna bug á kvíða og hræðslu og farið yfir þætti sem tengjast flugvélinni og fluginu sjálfu. Að lokum fer hópurinn í flugferð til eins af áfangastöðum Icelandair í Evrópu. Nánari upplýsingar um nám- skeiðin er að finna á www.salfraed- istodin.is en skráning fer fram með tölvupósti á flug@icelandair.is. iris@24stundir.is Fjöldi Íslendinga þjáist af flughræðslu Lærðu að takast á við hræðsluna Martröð? Margir upp- lifa skelfingu í hvert sinn sem þeir fljúga. Ítalía – Njóttu hennar betur er einkar áhugavert og gagnlegt námskeið fyrir ferðalanga á leið til Ítalíu. Auðvelt að skrá sig Námskeiðið er í tveimur hlut- um og fer fram í Menningar- miðstöðinni Gerðubergi, Breið- holti. Margrét Gunnarsdóttir fararstjóri leiðir námskeiðið sem fer fram 13. og 15. maí og skrán- ing fer fram í gegnum tölvupóst á ferdalangur@simnet.is. Áhuga- samir þurfa aðeins að senda póst með nafni, netfangi og síma á netfangið. Að námskeiði loknu munu þátttakendur fá tækifæri til að spyrja spurninga og fá ráð- leggingar um staði og leiðir. Þetta námskeið hentar sérstak- lega vel þeim sem: eru að ferðast til Ítalíu í fyrsta sinn eða þekkja landið lítið, ætla að aka um á bílaleigubíl, vilja fá hugmyndir um eftirsóknarverða staði og akstursleiðir, vilja kunna að lesa úr ítölskum matseðlum, vilja fróðleik á léttum nótum um land og þjóð, venjur og siði, vilja læra einföld orð og setningar (heilsast og kveðja, búðaráp, á veitinga- staðnum, tölurnar o.fl.) sem og þeim sem vilja kynnast nokkrum af fegurstu svæðum Ítalíu s.s. Gardavatninu, Toskana, Umbriu og Le Marche og eyjunum Sard- iníu og Sikiley. Allt um Ítalíu á vefnum Innifalið í námskeiðsverði er kaffi og te, námskeiðsgögn og að- gangur að sérstökum vef sem fylgir námskeiðinu. iris@24stundir.is Hvað viltu vita um Ítalíu? LÍFSSTÍLLFERÐIR ferdir@24stundir.is a Viðtökurnar hafa verið mjög góðar og algjörlega í takt við það sem við höfðum búist við.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.