24 stundir - 06.05.2008, Blaðsíða 33
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 33
Íslenski fjallahjólaklúbburinn fagnar vor-
inu í kvöld með því að fara í fyrstu hjólaferð
sumarsins. Lagt er af stað frá Mjóddinni, þar
sem strætó stoppar, kl. 20 og hjólaðar valdar
fallegar leiðir um borgina.
Fjölskylduferð
Ferðirnar eru miðaðar við þátttöku fjöl-
skyldufólks og verður hjólað til að njóta. Um
leið hefst líka keppnin um mætingarbikar-
inn, sem er eina hjólreiðakeppnin sem
stunduð er innan raða Fjallahjólaklúbbsins.
Til þess að ná þessum eftirsótta bikar, þarf að
eiga flestar mætingar í þriðjudagshjólaferðir
sumarsins.
Að þessu sinni verður að sjálfsögðu hjólað
frá Mjódd og í klúbbhús Íslenska fjallahjóla-
klúbbsins í Vesturbænum þar sem boðið
verður upp á nýbakaðar vöfflur og meðlæti.
„Hjólað í vinnuna“ að hefjast
Úr Mjóddinni eru ótal skemmtilegar
hjólaleiðir vestur í bæ. Hvort heldur hjólað
er um Elliðarárdalinn og Sæbraut vestur í
bæ, eða farið um Kópavog og Kársnesið eða
einfaldlega í gegnum Fossvoginn og eftir
Ægisíðustígnum sem stendur til að stækka
og breikka og gera að fyrsta alvöru hjólastíg
borgarinnar. Þessi fyrsta kvöldhjólaferð er
einmitt daginn fyrir upphaf vinsælustu hjól-
reiðakeppni allra landsmanna, Hjólað í
vinnuna. Nú er um að gera að taka hjólið úr
geymslunni og koma vöðvunum aftur í
form. iris@24stundir.is
Fjallahjólaklúbburinn fagnar sumrinu
Hjólreiðamenn hjóla um borgina í kvöld
*Vörur fylgja ekki með
• Húðin okkar er viðkvæm og veðráttan á
Íslandi getur verið húðinni erfið.
• Decubal er mjög vel rannsökuð húðlína og
þróuð í samvinnu við norræna húðlækna.
• Decubal viðheldur heilbrigði og ferskleika
húðarinnar – allt árið um kring.
• Kynntu þér eiginleika Decubal og kveddu
þurra húð.
KAUPAUKI
Glæsileg rauð snyrtitaska
fylgir ef keypt er fyrir
2500 kr. eða meira.
Tilboðið gildir til 10. maí
eða meðan birgðir endast.*
Decubal húðvörurnar fást í
öllum apótekum.
Ferðahandbók
utanlandsfara
Ferðaskrifstofan Ferðalangur gaf
nýverið út glænýja ferðahandbók
sem hægt er að nálgast á vefsíð-
unni www.ferdalangur.is. Bókin
er 30 síður og uppfull af upplýs-
ingum handa þeim sem undirbúa
ferðalög til útlanda.
Meðal efnis eru ábendingar varð-
andi farangur og pökkun, geng-
ismál, heilsuna á ferðalagi og
margt fleira.
Áhugasamir geta prentað bókina
út og haft hana með í ferðalagið
en öllum er frjálst að eiga hana og
gefa hana öðrum.
Aðdáendur Sex and the City-
þáttanna ættu að kynna sér Sex
and the City-skoðunarferðina
sem boðið er upp á í New York.
Í ferðinni er rúntað um borgina
og komið við á merkum stöðum
eins og byggingunni sem Carrie
bjó í, galleríinu sem Charlotte
starfaði í og húsgagnaversluninni
hans Aidans. Pantanir fara fram á
vefsíðunni www.screentours.com
en um þessar mundir er einnig
boðið upp á ferðir tengdar Sex
and the City-kvikmyndinni, t.d.
sérstaka ferð í lok maí þar sem
farið verður á sérstaka sýningu á
kvikmyndinni og þaðan á einn
flottasta bar borgarinnar. iav
Sex and the
City-ferðin