24 stundir - 06.05.2008, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 24stundir
24stundir
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árvakur hf.
Ólafur Þ. Stephensen
Björg Eva Erlendsdóttir
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is,
Prentun: Landsprent ehf.
Þótt aðild Íslands að Evrópusambandinu sé ekki á dagskrá ríkisstjórn-
arinnar verður umræðan sífellt fyrirferðarmeiri og háværari. Andstæð-
ingar Evrópusambandsins eru órólegir og hafa ástæðu til. Þeim er orðið
ljóst að umræðan verður ekki stöðvuð.
Það er alkunna að Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, er
þjóðlegastur stjórnmálamanna og hallur undir einangrunar- og hafta-
stefnu sem hann telur landi og lýð til heilla. Meira að segja Guðni sér nú
ekkert annað ráð en að opna fyrir umræðu um Evrópusambandið í eigin
flokki. Þetta gerir Guðni vitanlega nauðugur viljugur. Evrópusinnar í
flokki hans hafa færst í aukana í málflutningi sínum og til þessa hóps verð-
ur að taka tillit eigi flokkurinn ekki að eyðast í enn einum innanflokks-
átökunum.
Hin merkilega vending er sú að einu sinni hefðu harðir andstæðingar
Evrópusambandsins, stjórnmálamenn á borð við Guðna, einbeitt sér að
því að deyfa Evrópuumræðuna en nú er eina leið þeirra að opna fyrir um-
ræðuna og vona að þjóðin yppti öxlum og láti sig málið litlu varða. Ólík-
legt er að þessum hópi manna verði að ósk sinni. Umræðan um Evrópu-
sambandsaðild er ekki á dagskrá þessara stjórnmálamanna en hún er á
dagskrá hjá almenningi, verkalýðshreyfingu og atvinnurekendum. Hún er
líka á dagskrá hjá framsýnum stjórnmálamönnum í öllum flokkum. Vilj-
inn er sterkastur hjá Samfylkingu en engin ástæða er til að vanmeta bar-
áttuhug Evrópusinnaðra sjálfstæðismanna.
Þjóðin er búin að fá nóg af háu matvælaverði, ofurvöxtum og ónýtum
gjaldmiðli sem varla er hægt að tala um ógrátandi. Þjóðin er orðin leið á
að hlusta á málflutning þess efnis að haftastefna eigi sérlega vel við á Ís-
landi vegna þess að hér gildi önnur efnahagslögmál en
alls staðar annars staðar í heiminum. Þjóðin er orðin
þreytt á stöðugum fullyrðingum um að hún eigi ekki
heima í Evrópusambandinu af því hún hafi svo mikla
sérstöðu umfram aðrar þjóðir og geti því ekki plumað
sig í samstarfi.
Skynsömum mönnum ætti að vera ljóst að aðild Ís-
lands að Evrópusambandinu er einungis spurning
um tíma. Andstæðingar Evrópusambandsins eiga eft-
ir að hamast gegn aðild en rök þeirra hafa fram að
þessu ekki verið sannfærandi. Vitanlega er það þjóðin
sem mun að lokum kjósa um aðild í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Vilji meirihluta þjóðarinnar sýnist ljós. Rík-
isstjórnin hefur ekki efni á að vera lengi í biðstöðu.
Skynsemin ræður
SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST
Ég er reyndar þeirrar skoðunar
að augljóst ósamlyndi innan
þingflokks Samfylkingar um
stefnu varðandi
væntanlega/
fyrirhugaða upp-
byggingu á stór-
iðju í Helguvík
og/eða Húsavík
hafi ekki síður
áhrif. Það fer ekki
framhjá neinum
að þingflokk-
urinn er algjörlega klofinn í af-
stöðu sinni til málsins. Fallið hef-
ur á stefnuna um hið „Fagra
Ísland“, sem átti sinn þátt í að
draga umhverfissinna frá Vinstri
grænum á lokasprettinum í kosn-
ingabaráttunni fyrir réttu ári. Er
þetta fólk að einhverju leyti að
snúa aftur til VG?
Ásta Möller
astamoller.is
BLOGGARINN
Ósamlyndi
Takist ráðherrum Samfylking-
arinnar að slá allar virkjanir í
neðri hluta Þjórsár af mun ég
hrósa þeim og
fagna því með
mörgum fleiri
héraðsbúum.
Torséð er þó
hvaða leiðir eru
til þess færar.
Hitt er enginn
vafi að ráðherrar
Samfylkingar
hafa það í hendi sér að milda til
muna umhverfisspjöll virkjana á
þessu svæði og geta þar leitt sam-
an að samningaborði umhverf-
issinna og hina virkjanaglöðu.
Notað þar samráðsstjórnmálin til
annars en loforða. Hér hefur ver-
ið drepið á virkjanaandstæðinga í
Flóahreppi …
Bjarni Harðarson
bjarnihardar.blog.is
Hafa í hendi sér
Ríkisstjórn hins mesta meirihluta
á Alþingi er harla máttlítil vegna
innri ágreinings um veigamikil
mál. Nefna má
sem dæmi ágrein-
ing um þessi mál:
stóriðju og virkj-
un fallvatna eða
jarðhita, eign-
arhald á orku-
lindum, gagnrýni
mannréttinda-
nefndar Samein-
uðu þjóðanna á kvótakerfið í
sjávarútvegi, stefnuna í loftslags-
málum, aðgerðir í efnahags-
málum og nú síðast um Evrópu-
sambandið. Formaður
Samfylkingarinnar hefur ítrekað
lagt áherslu á það að stjórnarsátt-
málinn komi ekki í veg fyrir að
sótt verði um aðild að ESB.
Kristinn H.Gunnarsson
kristinn.is
Máttlítil stjórn
Ummæli borgarstjóra um verðlauna-
tillögu í Vatnsmýri vekja athygli en ekki
síður skortur á viðbrögðum sjálfstæðismanna í meiri-
hlutanum. Afstaða borgarstjóra til flugvallarins kemur
ekki á óvart. Í kosningum 2006 gerði hann með sví-
virðilegum hætti út á örugg atkvæðamið flugvall-
arsinna með sértæka einkahagsmuni, sem vilja við-
halda í Vatnsmýri stærsta leikvelli norðan Alpafjalla.
Þannig gekk hann þvert gegn mikilverðustu hags-
munum borgarbúa. Hann var samkvæmur sjálfum sér
í sáttmála núverandi meirihluta og enn heldur hann
sig við efnið, þvert gegn betri vitund því lengi hefur
legið fyrir gnótt upplýsinga, sem taka af öll tvímæli
um að hagsmunir borgarbúa af því að losna við flug-
völl úr Vatnsmýri eru yfirgnæfandi. Óreiða í stjórn-
sýslu borgarinnar hefur vaxið hratt sl. áratugi, ekki síst
á sviði skipulagsmála. Nú er svo komið að daglegur
veruleiki í ráðhúsinu tekur ýktustu órum í leikhúsi fá-
ránleikans langt fram. Orsökin er einföld. Samkvæmt
norrænum lögum ættu borgarfulltrúar í Reykjavík að
vera a.m.k. 45 í nafni lýðræðis og opinnar og skilvirkr-
ar stjórnsýslu. En þeir eru enn 15 líkt og fyrir 100 ár-
um þó umsvif borgarinnar hafi tvö- til þrjúhundr-
uðfaldast frá 1908 (fólksfjölgun fimmtánföld,
landsframleiðsla á íbúa fimmtánföld og alþjóðlegar
kröfur um lýðræði og gagnsæi margfaldar). Og í raun
koma aðeins 8 fulltrúar meirihluta að stjórn borg-
arinnar, hinir sjö sitja með hendur í skauti. Borg-
arstjórinn heldur borgarstjórn í gíslingu. En sem póli-
tískur einstæðingur án baklands og sýnilegrar
pólitískrar framtíðar axlar hann vart ábyrgð. Ábyrgðin
er sjálfstæðismannanna sjö. Og hún er mikil. Á lýð-
veldistímanum hefur D-listinn lengst
af farið með völd í borginni. Árið
1984 stóð hann einn að fækkun borg-
arfulltrúa og árið 2008 kom hann
fjandmanni borgarsamfélagsins í stól
borgarstjóra fyrir valdagræðgina
eina. Heiðarlegir borgarfulltrúar allra
flokka ættu að sameinast um að losa
borgarbúa undan okinu og vinna
saman að hagfelldu borgarskipulagi
út kjörtímabilið.
Höfundur er arkitekt
Óþolandi óreiða
ÁLIT
Örn
Sigurðsson
arkorn@internet.is
Suðurlandsbraut 10 • Reykjavík • 2. hæð
Sími 568 3920 og 897 1715
Áratuga reynsla
skólanna sýna að
fótboltaspil frá FAS
endast og endast
www.billiard.is
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
• Nudd- og meðferðabekkir
• Rafdrifnir og samanleggjanlegir
• Nuddolíur og pappír
Tilboðsdagar
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@24stundir.is