24 stundir - 06.05.2008, Page 27

24 stundir - 06.05.2008, Page 27
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 27 Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@24stundir.is Fyrstu þrjár umferðirnar keppir Daníel með aðstoðaröku- manninum Ísaki Guðjónssyni, en þeir hafa nú lokið tveimur umferð- um af sjö. Í fjórðu umferð í lok maí mun Ásta, yngri systir Daníels, síð- an taka við sæti Ísaks og keyra við hlið bróður síns það sem eftir lifir árs. Hún var aðeins 16 ára þegar hún settist fyrst í aðstoðar- ökumannssætið og segir Daníel hana fædda í hlutverkið. Í fimmta sæti „Við ákváðum að taka þátt í bresku meistarakeppninni þetta ár- ið og sleppa því að vera með á Ís- landsmeistaramótinu þar sem við höfðum þegar unnið það tvö ár í röð. Í fyrstu umferðinni úti gekk glimrandi vel þar til bilun dæmdi okkur úr leik. Í annarri umferð lentum við hins vegar í fimmta sæti og fengum stig en það eru síðan stigahæstu ökumennirnir sem sigra í lok ársins,“ segir Daníel. Keppn- irnar eru haldnar í Englandi og Ír- landi en Daníel segir helsta muninn á slíkri keppni þar og hér vera þann að samkeppnin og fjöldi keppenda sé tífalt það sem hann hefur vanist hér heima. Þá sé öll umgjörð og ut- anumhald mótsins stórt í sniðum og nærri jafn margir komi til að horfa á rall og enska boltann. Líkamlegt form mikilvægt „Maður nær árangri með því að vera einbeittur og sýna fram á hraða. Rall er íþrótt og við erum íþróttafólk og tökum okkur alvar- lega en það er dálítið erfitt að láta taka sig alvarlega í mótorsporti hér á landi þar sem það er ekki sérlega hátt skrifað. Að keyra í rallbíl er í raun eins og að vera ber í kokteil- hristara og því höldum við okkur í feiknagóðu líkamlegu formi. Það hefur mikið að segja þar sem akst- urinn er mjög erfiður fyrir hendur, háls og herðar. Eins segi ég að í raun geti ekkert komið fyrir mann ef líkaminn er í góðu formi því maður er með allan öryggisbúnað sem til þarf en skaði getur hlotist af því að hendast um í bílnum ef lík- aminn er veikburða. Almennur agi í neyslu er líka mikilvægur og síðan liggur maður yfir vídeó með tækni- æfingum,“ segir Daníel um und- irbúning fyrir keppni. En hann seg- ir helsta ókostinn við íþróttina miðað við margar aðrar vera þann að æfingin fari að mestu leyti fram í keppni. Lögreglan skilningsrík Aðstæður ytra eru allt öðruvísi en íslensku ökumennirnir eiga að venjast og læra þarf að keyra mjóa vegi með trjám þar sem útsýnið er lítið sem ekkert. Þá er keppt í mal- biksralli ytra sem ekki er keppt í hér á landi og breiddin í allri aksturs- tækni er því mun meiri. Næsta um- ferð mótsins nú í byrjun maí verð- ur malbikskeppni og segist Daníel ekki eiga von á ævintýralegum ár- angri þó aldrei sé að vita. Æf- ingasvæði hér á landi eru af skorn- um skammti og segir Daníel að nýlega hafi verið hringt í lögregluna þar sem þeir félagar voru við æfing- ar á malbikaðri lóð í Hafnarfirði. Þó njóti þeir ákveðins skilnings hjá lögreglunni og til að mynda hafi annar lögreglumaðurinn sagt með- an hann skrifaði vettvangsskýrsl- una að hann væri trommari en fengi hvergi að æfa sig, lagabókstaf- inn megi hins vegar ekki brjóta. Verðlaunin ársstarf Daníel hefur keyrt í áratug og á þeim tíma unnið flesta titla sem til eru hérlendis. Frá árinu 2006 hefur hann keyrt fjórhjóladrifinn bíl en fyrir breska meistaramótið keypti hann nýjan Mitsubishi Lancer EVO 9. Íslenskar áhafnir hafa nokkrum sinnum keppt erlendis en enginn tekið þátt í heilli meistarakeppni áður að því er best er vitað. Verð- launin í meistaramótinu eru árs- starf fyrir verksmiðjulið og sam- keppnin því hörð en Daníel segir íslenska liðið þegar hafa sýnt akst- urstækni sem setji liðið í fremstu röð og mikill metnaður fyrir keppninni sé fyrir hendi. Daníel Dittar að bílnum. Rall eins og að vera ber í kokteilhristara Reynir mjög á líkamann Daníel Sigurðarson hefur lokið tveimur umferðum af átta í bresku meist- arakeppninni. Hann er einn fárra Íslendinga sem lagt hafa í víking til að keppa í rallakstri. ➤ Aksturinn reynir á hendur,háls og herðar og líkamlegt form því mikilvægt. ➤ Umgjörð og utanumhaldmótsins ytra er mun stærra í sniðum en gengur og gerist hérlendis. RALLAKSTUR Meirapróf Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 Næsta námskeið byrjar 5. marsNæsta ná skeið byrjar 7. maí

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.