24 stundir - 06.05.2008, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 24stundir
Í fjölbýlishúsum eru tíðir
árekstrar vegna bílastæða. Bílaleign
hefur margfaldast og ekki bætir úr
skák faraldur húsbíla, hjólhýsa,
tjaldvagna og tjaldhýsa. Og til að
bæta gráu ofan á svart eru alls kyns
viðhengi; kerrur fyrir hesta, snjó-
sleða, fjórhjól og mótorhjól og
báta. Einnig geyma menn vinnu-
bíla á sameiginlegu bílastæði
Stundum er um vígatrukka eða
aðra stóra og plássfreka bíla að
ræða.
Þegar menn eru frekari á stæði
en eðlilegt getur talist þá er stutt í
deilur og illindi. Miklar tilfinn-
ingar tengjast bílum og bílastæð-
um og oft er skeggöld og skálmöld
á bílastæðum. Bílastæðamál verða
gjarnan mjög eldfim og harðvítug.
Er stutt í fullan fjandskap þar sem
deilt er um allt og öllum vopnum
beitt. Þá næst ekki samstaða um
neitt, hús grotna niður og húsfélög
lamast.
Sameiginleg stæði
Bílastæði eru sameiginleg nema
þinglýstar heimildir kveði á um
annað. Bílastæði eru með tvennu
móti: Sameiginleg sem er meg-
inreglan og sérstæði. Eigandi hefur
einkarétt á stæði sínu og öðrum
eigendum ber að virða rétt hans.
Hann hefur þó ekki frjálsar hendur
og honum ber að virða hagsmuni
annarra eigenda og fara að settum
reglum og gæta þess að valda öðr-
um eigendum ekki óþægindum og
ónæði.
Meginreglur
Þegar gæði eru minni en svo að
allir fái nægju sína er óhjá-
kvæmilegt að setja reglur um af-
notaskiptingu. Hvað sameign fjöl-
býlishúsa varðar, þ.á.m. bílastæði,
hefur löggjafinn í fjöleign-
arhúsalögunum frá 1994 sett meg-
inreglur og grundvallarsjónarmið
sem varða veginn og leggja grunn-
inn að nánari reglum sem húsfélög
geta sett sér eftir aðstæðum í
hverju húsi og vilja eigenda. Hafi
húsfélag ekki sett sérstakar reglur
um hagnýtingu bílastæða verður
að horfa til óskráðra meginreglna
og dómafordæma.
Jafn afnotaréttur
Réttur eigenda til hagnýtingar
óskiptra bílastæða er lögum sam-
kvæmt jafn og óháður hlutfalls-
tölu. Allir eigendur hafa jafnan rétt
til bílastæða og sá sem á stærri hlut
í húsinu hefur ekki meiri rétt. Ein-
stökum eigendum verður ekki
veittur aukinn réttur til bílastæða
umfram aðra eigendur nema allir
samþykki.
Húsreglur
Setja skal reglur um afnot sam-
eiginlegra bílastæða. Þegar settar
eru reglur um afnot sameiginlegra
bílastæða verður að gæta þess að
þær séu málefnalegar og gæta
verður fyllsta jafnræðis og að af-
notaskipting og reglur um hagnýt-
ingu raski ekki eðlilegum og sann-
gjörnum forsendum eigenda.
Venjuleg notkun
Bílastæði eru, eins og nafnið ber
með sér, fyrir bíla til að standa á.
Bílastæði eru ekki ætluð til að vera
geymsla fyrir tæki, tól og drasl.
Fjöleignarhúsalögin segja að
óheimilt sé að nota sameiginlega
lóð til annars en hún er ætluð.
Samkvæmt því eru bílastæði helg-
uð bílum, bílum í venjulegri notk-
un. Bílastæði eru ekki til að geyma
t.d. óskráða bíla, bílhræ, kerrur og
tól til lengri tíma. Eiganda er skylt
að taka sanngjarnt og eðlilegt tillit
til annarra eigenda við hagnýtingu
bílastæða og fara í hvívetna eftir
lögum, reglum og ákvörðunum
húsfélagsins. Ekkert sem er til lýta
og spillir ásýnd lóðar eða er til
vansa og trafala má vera á lóðinni
nema samkvæmt leyfi stjórnar í
skamman tíma og af sérstökum
ástæðum.
Óheimil notkun, brottnám
Eigendum er óheimilt að leggja
undir sig sameiginleg bílastæði.
Eigandi getur ekki eignast sér-
stakan eða aukinn rétt til sam-
eignar á grundvelli hefðar. Óheim-
ilt er að nota einkastæði til að
geyma þar annað en skráð öku-
tæki. Er óheimilt að geyma á bíla-
stæðum að staðaldri óskráða bíla,
vinnuvélar, tæki, bílhluta, bílhræ,
aðra hluti eða lausamuni og dót og
drasl, sem veldur sjónmengun,
óþrifnaði, slysahættu og ama.
Óheimilt er að hafa nokkuð það á
stæði eða í aðkeyrslu sem valdið
getur truflun á umferð og aðkomu.
Óheimilt er að láta bíla, kerrur og
annað standa út fyrir stæðamerk-
ingar og skaga inn á önnur næstu
stæði. Er stjórn eftir atvikum
heimilt að fjarlægja slíka muni á
kostnað viðkomandi ef hann sinnir
ekki áskorun um að gera það sjálf-
ur. Er mikilvægt fyrir húsfélög að
standa rétt að málum áður en þau
grípa til slíkra ráðstafana, ella geta
þau bakað sér ábyrgð.
Sameiginleg stæði
Í húsreglum skulu vera ákvæði
um afnot sameiginlegra bílastæða.
Þetta verður að túlka með hliðsjón
af lagafyrirmælum um að bílastæði
séu sameiginleg og óskipt nema
annað sé ákveðið í þinglýstum
heimildum og að þeim verði ekki
skipt nema allir eigendur sam-
þykki. Þar er átt við formlega
eignaskiptingu en meirihluti eig-
enda getur sett reglur um afnot og
hagnýtingu á sameiginlegum bíla-
stæðum og um afnotaskiptingu
þeirra. Slíkar reglur verða að vera
sanngjarnar í garð allra eigenda og
gæta verður jafnræðis. Sameig-
inlegum bílastæðum verður ekki
skipt formlega nema allir sem hlut
eiga að máli samþykki. Einnig
þyrfti samþykki borgaryfirvalda.
Um sérstæði
Húsfélagið getur líka sett reglur
um sérstæði. Séu þær málefnalegar
og sanngjarnar og reistar á jafn-
ræðisgrundvell er eigendum skylt
að hlíta þeim og fyrirmælum
stjórnarinnar á grundvelli þeirra.
Eigendur verða að hlíta því að
þeim séu settar skorður. Eigandi
hefur einkarétt til hagnýtingar og
umráða yfir séreign sinni og hús-
félagið getur ekki tekið ákvarðanir
eða sett reglur sem fela í sér víð-
tækari takmarkanir á eignarráðum
hans en leiðir af lögum. Húsfélag
hefur þrengri heimildir til að setja
reglur um sérstæði en sameiginleg.
Sérstæði, þinglýstar heimildir
Einkabílastæði byggjast yfirleitt
á þinglýstum heimildum en einnig
geta þau byggst á eðli máls. Svo er
um einkastæði fyrir framan bíl-
skúra sem teljast séreign viðkom-
andi bílskúrseiganda. Sama getur
átt við um innkeyrslur að bíl-
skúrum. Þær eru þó með ýmsu
móti og verður að skoða hvert til-
vik til að meta hvort og í hvaða
mæli aðrir eigendur mega hagnýta
sér þær. Í öllu falli eiga bílskúrseig-
endur kröfu á því að bílum sé ekki
lagt í innkeyrsluna sem hindra eða
teppa aðkomu þeirra að bíl-
skúrnum.
Tíðir árekstrar í fjölbýlishúsum vegna bílastæða
Í fjölbýlishúsum eru tíðir
árekstrar vegna bíla-
stæða. Bílaleign hefur
margfaldast og ekki bæt-
ir úr skák faraldur hús-
bíla, hjólhýsa, tjaldvagna
og tjaldhýsa. Og til að
bæta gráu ofan á svart
eru alls kyns viðhengi;
kerrur fyrir hesta, snjó-
sleða, fjórhjól og mót-
orhjól og báta. Einnig
geyma menn vinnubíla á
sameiginlegu bílastæði
Stundum er um víga-
trukka eða aðra stóra og
plássfreka bíla að ræða.
Bara fyrir bíla Bílastæði
eru ekki til að geyma t.d.
óskráða bíla, bílhræ, kerrur
og tól til lengri tíma.
Sigurður Helgi
Guðjónsson,
formaður Húseig-
endafélagsins
HÚSHORNIÐ
Bitist um bílastæði
Ef varan er ekki til á lager er
örstuttur afgreiðslufrestur.
Einnig bremsuhlutir
í flestar gerðir fólksbíla og jeppa.
Eigum til sérsmíðaða vatnskassa
fyrir breyttan Nissan Patrol.
Sendum út bílatölvur til viðgerðar.
Vatnskassar og
millikælar
í allar gerðir vinnuvéla og bifreiða
Varahlutalagerinn ehf s. 699 3737
Bílaþjónninn ehf s. 567 0660
Smiðjuvegi 4a • www.bilathjonninn.com
www.kistufell.com
Pakkningar og heddboltar í flestar gerðir bíla
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
VARAHLUTAVERSLUN
kistufell@centrum.is
Tangarhöfða 13 Sími 577 1313