24 stundir - 17.05.2008, Síða 1

24 stundir - 17.05.2008, Síða 1
„Núna sýnist mér augljóst að aðstæður hafi breyst á þann veg að samn- ingsstaða okkar sé farin að versna. Þá getum við ekki beðið lengur. Ég held að óhætt sé að segja að það sé hætt við því að íslensk fjármálafyr- irtæki og stórfyrirtæki, þar á meðal útrásarfyrirtæki, fari að flytjast frá Ís- landi. Það væri skelfilegt slys,“ segir Jón Sigurðsson, fyrrver- andi formaður Framsóknarflokksins. 24stundir /RAX „Skelfilegt slys ef fyrirtæki færu frá landinu“ »38 24stundirlaugardagur17. maí 200892. tölublað 4. árgangur Dr. Gunni heldur úti Okursíðu enda segist hann vera talsmaður þess að Íslendingar ættu að sniðganga dýr- ustu fyrirtækin. „Ef þjófur kemst upp með að stela er hætt við að hann haldi því áfram.“ Þjófar stela áfram VIÐTAL»46 Ágústa Johnson opnar myndaal- búm sitt fyrir lesendur að þessu sinni en Ágústa hefur verið tákn- mynd heilsu og hreysti í fjölda ára auk þess að vera eiginkona og móðir. Táknmynd hreysti MYNDAALBÚM»37 77% verðmunur á brjóstapúðum NEYTENDAVAKTIN »4 Sextug rúmensk kona hefur fengið vottorð frá kven- sjúkdómalækni sem sannar að hún sé hrein mey. Rodica Trandafir sendi öllum ná- grönnum sínum afrit af vott- orðinu til að hindra frekari slúðursögur um sig. „Þeir héldu því fram að stöðugur straumur karlmanna lægi heim til mín dag sem nótt. Fólkið er að tala um ættingja mína sem hafa aðstoðað mig við framkvæmdir í húsinu. Það er fásinna að halda því fram að ég sé lauslát.“ aí Rúmeni fær skírlífisvottun GENGI GJALDMIÐLA SALA % USD 74,66 -4,16  GBP 146,10 -3,51  DKK 15,61 -3,60  JPY 0,72 -3,34  EUR 116,47 -3,62  GENGISVÍSITALA 149,94 -3,70  ÚRVALSVÍSITALA 4.862,52 1,35  »14 6 7 3 5 5 VEÐRIÐ Í DAG »2 Eftir Elías Jón Guðjónsson elias@24stundir.is Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttar- lögmaður segir nýlega reglugerð Björns Bjarnasonar dómsmálaráð- herra um skilyrði gjafsóknar þrengja aðgengi einstaklinga að dómstólum enn frekar en gert var með lagabreytingu árið 2005. „Tekjumörkin í reglugerðinni eru bara út í hött. Höfundur þessarar reglugerðar, hver sem hann er, er greinilega algjörlega á móti gjaf- sóknarfyrirbrigðinu yfirhöfuð,“ segir Ragnar. 130 þúsund króna tekjumörk Í reglugerðinni er gert ráð fyrir að aðeins einstaklingar með tekjur upp á 130 þúsund krónur og minna eigi möguleika á gjafsókn. „Þetta er til þess að draga úr rétt- arvernd borgaranna gagnvart rík- inu,“ segir Ragnar. Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna og lögmaður, tekur undir með Ragnari. „Flestar málsóknir eru ofviða mönnum sem hafa und- ir 300 þúsund krónur í tekjur og stærri málsóknir kalla á meiri tekjur,“ segir hann. Til að draga úr útgjöldum Atli spurði dómsmálaráðherra út í markmið og tilgang tekju- markanna á Alþingi á fimmtudag. Því svaraði dómsmálaráðherra meðal annars: „Það hefur lengi ver- ið gagnrýnt að það séu of há út- gjöld úr ríkissjóði til þessara þátta og þetta er viðleitni af hálfu ráðu- neytisins til að taka utan um þann málaflokk þannig að það samrým- ist þeim heimildum sem sam- þykktar eru hér á þingi um fjár- útlát.“ Atli segir að ekki eigi að skerða mannréttindi vegna fjárhagssjón- armiða. „Aðgengi einstaklinga að dómstólum telst til mannréttinda. Þau hafa á síðustu árum verið skert,“ segir hann. Þrengt að réttinum til gjafsóknar  Hæstaréttarlögmaður segir reglugerð skerða aðgengi einstaklinga að dómstólum  Brot á mannréttindum, segir þingmaður HEFUR EKKI LAGASTOл8 ➤ Gjafsókn nýtist einkum ískaðabótamálum þar sem deilt er um skaðbótaskyldu. Sumir einstaklingar leggja ekki út í skaðbótamál ef vafi er um sök. ➤ Í forræðisdeilumálum semfara fyrir dómstóla hefur gjaf- sókn verið mikið notuð. ➤ Gjafsókn hefur einnig veriðmikið notuð í vinnulauna- málum. GJAFSÓKN Samkvæmt nýrri athugun slökkvi- liðsins hefur verið brotist inn í þrjú auð hús í miðborg Reykjavíkur, frá því að eigendum þeirra var gert að loka þeim. Nágranni vill að eig- endur verði skikkaðir til að vakta auð hús sín. Enn hústaka í miðborginni »2 „Greiðsluaðlögun hefur aldrei ver- ið brýnni,“ segir formaður Neyt- endasamtakanna. Hann harmar að frumvarp þar um hafi ekki verið tekið fyrir á Alþingi. Greiðslubyrði þyngist og sóttu 100 um ráðgjöf í apríl. Bið eftir fjár- málaráðgjöf »4 Listhúsinu Laugardal Reykjavík Sími: 581 2233 Dalsbraut 1 Akureyri Sími 461 1150 Eftir að ég fékk mér IQ-CARE hef ég ekki fundið til í bakinu! Sölvi Fannar Viðarsson Framkvæmdastjóri Heilsuráðgjafar Ég mæli hiklaust með 6 mán. vaxtalausa r raðgr.                                 !  Getum ekki beðið lengur

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.