24 stundir - 17.05.2008, Síða 4
100 sóttu um fjármálaráðgjöf í apríl Greiðsluaðlögun aldrei
verið brýnni, segir formaður Neytendasamtakanna
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, harmar að
frumvarp um greiðsluaðlögun skuli
ekki hafa verið tekið fyrir á þingi í
vetur. „Það hefur sennilega aldrei
verið brýnna að fá þessi lög í gegn en
nú. Það er mjög bagalegt að þetta
skuli dragast vegna þess ástands sem
ríkir nú.“
Jóhannes bendir á að Neytenda-
samtökin hafi barist fyrir greiðslu-
aðlögun í um 15 ár. „Þegar við tók-
um upp baráttuna hafði svona
fyrirkomulag verið um langan tíma
annars staðar á Norðurlöndum.“
Ítrekaðar tilraunir
Ítrekaðar tilraunir Jóhönnu Sig-
urðardóttur, félags- og trygginga-
málaráðherra, til að fá frumvörp um
greiðsluaðlögun afgreidd á þingi á
undanförnum árum báru ekki ár-
angur. Í mars í fyrra skipaði hins
vegar Jón Sigurðsson, þáverandi
viðskiptaráðherra, nefnd til að vinna
drög að frumvarpi til sérstakra laga
um greiðsluaðlögun einstaklinga.
Róðurinn að þyngjast
Ásta S. Helgadóttir, forstöðumað-
ur Ráðgjafarstofu um fjármál heim-
ilanna, átti sæti í nefndinni sem lauk
vinnu sinni um áramótin. „Það er
mikil nauðsyn á að koma þessu úr-
ræði á á Íslandi,“ segir Ásta sem
bætir því við að mikið annríki hafi
verið hjá ráðgjafarstofunni undan-
farna mánuði.
„Það er greinilegt að róðurinn er
að þyngjast. Yfirleitt bóka 40 til 60
manns á mánuði tíma hjá okkur. Í
apríl síðastliðnum óskuðu yfir 100
manns eftir viðtali og það er full-
bókað út maí. Þeir sem panta tíma
núna þurfa að bíða fram í júní. Það
er mjög slæmt að fólk skuli þurfa að
bíða svona lengi loksins þegar það
hefur samband við okkur.“
Þeir sem leita til ráðgjafarstof-
unnar eru í sumum tilfellum tækni-
lega gjaldþrota, eins og Ásta orðar
það, þótt þeir hafi ekki verið úr-
skurðaðir gjaldþrota. „Greiðslu-
byrði fólks hefur aukist. Fólk hefur
verið að kaupa á 100 prósenta lán-
um og getur svo ekki borgað af lán-
unum.“
Allir hagnast
Formaður Neytendasamtakanna
tekur það fram að hafi greiðslumat
ekki verið þeim mun betra hljóti
ábyrgðin einnig að liggja hjá lánveit-
endum. „Að sjálfsögðu verða þeir að
gefa eftir með greiðsluaðlögun en
þegar upp er staðið fá þeir meira
heldur en þegar einstaklingar verða
gjaldþrota. Það munu allir hagnast á
þessu.“
Bið eftir fjár-
málaráðgjöf
➤ Magnús Stefánsson, fyrrver-andi félagsmálaráðherra,
sagði mikilvægt að tryggja
skuldurum samningsrétt, rétt
til að halda eftir ákveðnu lág-
marki tekna til framfærslu og
heimilisrétt sem tryggði hús-
næði sem uppfyllti lágmarks-
kröfur.
➤ Félagsmálaráðherra ræddiþetta við viðskiptaráðherra
sem skipaði nefnd um málið í
mars í fyrra.
GREIÐSLUAÐLÖGUN
24stundir/Þorkell
Þyngri róður Lántakendur
ráða ekki við afborganir.
4 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 24stundir
Jóhanna Sigurðardóttir, félags-
og tryggingamálaráðherra, boðar
endurskoðun á reglugerð um bif-
reiðamál hreyfihamlaðra en fjár-
hæðir uppbóta og styrkja hafa ekki
hækkað í mörg ár. Í ávarpi á þingi
Sjálfsbjargar í gær kvaðst hún
reiðubúin að ræða hvort rétt væri
að útvíkka skilgreiningu á hugtak-
inu „hreyfihömlun“ og jafnframt
skoða mögulegar breytingar á skil-
yrðum fyrir styrk sem nú byggjast á
því að viðkomandi eða annar
heimilismaður hafi ökuréttindi.
Benti ráðherrann á að slíkt gæti
komið sér illa fyrir ungt fólk sem
býr á sambýli. „Svo má velta fyrir
sér allt öðru fyrirkomulagi, til
dæmis að binda greiðslur til hreyfi-
hamlaðra einstaklinga ekki við
ökutæki, heldur tengja þær ein-
staklingum sem uppfylla tiltekin
skilyrði.“
ibs
Bifreiðamál hreyfihamlaðra
Styrkir endurskoðaðir
Verð á vörukörfu ASÍ breyttist lít-
ið í flestum verslunum milli síð-
ustu viku aprílmánaðar og ann-
arrar viku í maí. Mest hækkaði
verð vörukörfunnar í Nóatúni,
um 1,9%, í 11-11 um 1,5% og í
Samkaupum-Úrval um tæpt 1%.
Mest lækkaði verð körfunnar í
Nettó, um 2,7%.
Litlar breytingar urðu á verði
vörukörfunnar í öðrum versl-
anakeðjum, en þar reyndist
breytingin innan við 0,5% á tíma-
bilinu en ASÍ hefur á síðustu vik-
um fylgst með verðbreytingum í
matvöruverslunum.
Litlar verðbreytingar
samkvæmt könnun ASÍ
Hæstiréttur staðfesti nýlega dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur að ís-
lenska ríkið sé skaðabótaskylt
gagnvart Hópbílaleigunni vegna
missis hagnaðar, sem fyrirtækið
hefði notið, hefði Vegagerðin ekki
ákveðið að hafna tilboðum Hóp-
bílaleigunnar í sérleyfisakstur og
skólaakstur bæði á Suðurlandi og
Suðurnesjum árið 2005.
Jóhannes Karl Sveinsson, lög-
maður Hópbílaleigunnar, segir
dóminn sterka áminningu til
verkkaupa sem bjóða út verk að
vísa ekki bjóðendum og verktök-
um frá á hæpnum forsendum.
„Það getur komið hressilega nið-
ur á þeim eins og í þessu máli.“
Að sögn Jóhannesar Karls er nú
verið að reikna út þessar kröfur
og þær verða kynntar ríkinu á
næstu vikum.
Í dómsorðum segir að á sínum
tíma hafi ekkert komið fram um
að Hópbílaleigan hafi ekki upp-
fyllt þau skilyrði um fjárhagslegt
og tæknilegt hæfi sem fólust í út-
boðsgögnum um aksturinn á
Suðurlandi og Suðurnesjum.
Hópbílaleigan hafi verið með
hagstæðasta tilboðið í aksturinn
og því hafi Vegagerðinni ekki ver-
ið heimilt að hafna tilboði fyrir-
tækisins á þeim forsendum að
það hefði ekki fjárhagslega og
tæknilega burði til að standa við
tilboð sitt. Ákvörðun Vegagerð-
arinnar hafi því brotið gegn
ákvæðum laga um útboð.
atlii@24stundir.is
Rútufyrirtæki fær bætur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
stöðvaði þrjá ökumenn í gær sem
allir voru á bílum á nagladekkj-
um en það er með öllu óheimilt á
þessum árstíma. Nú ber að greiða
5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert
nagladekk og því kemur trassa-
skapurinn verulega við pyngjuna
hjá áðurnefndum ökumönnum.
Það sem af er vikunni hefur á
þriðja tug ökumanna verið stöðv-
aðir í umdæminu fyrir þessar
sakir.
Fimm þúsund
fyrir hvert dekk
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Samtökin gerðu könnun á einnota brjóstapúðum, frá
Natracare í 25 stykkja pakkningum. Verðmunur er
töluverður eða 77% sem er 277 króna munur á lægsta
og hæsta verði, þar sem Hagkaup komu ódýrast út en
Lyfja var dýrust. Vert er að taka það fram að könnunin
er ekki tæmandi.
Ekki er heimilt að vitna í þessa könnun í auglýsingum.
77% munur á brjóstapúðum
Ingibjörg
Magnúsdóttir
NEYTENDAVAKTIN
Natracare brjóstapúðar 25 stk.
Verslun Verð Verðmunur
Hagkaup 359
Melabúðin 395 10,0 %
Fjarðarkaup 416 15,9 %
Lyf & heilsa 566 57,7 %
Lyfjaver 569 58,5 %
Lyfja 636 77,2 %