24 stundir - 17.05.2008, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 24stundir
Önnur umferð forsetakosning-
anna í Simbabve mun fara fram
þann 27. júní. Frá þessu var
greint í gær. Kosið verður milli
Roberts Mugabe, núverandi for-
seta, og Morgans Tsvangirai,
frambjóðanda stjórnarandstöð-
unnar, sem hlaut flest atkvæði í
fyrri umferðinni. Tsvangirai
hafði áður hótað að sniðganga
kosningarnar. aí
Kosningar í Simbabve
Seinni umferðin
verður 27. júní
Eftir Atla Ísleifsson
atlii@24stundir.is
Kínversk stjórnvöld hyggjast hefja
rannsókn á því hvers vegna mikill
fjöldi skólabygginga hrundi til
grunna í jarðskjálftanum í Sichu-
an-héraði á mánudaginn. Jafn-
framt hefur verið gefin út viðvörun
um að þeim sem ábyrgð báru á
óvönduðum vinnubrögðum við
byggingu skólabygginganna verði
refsað.
Áætlað er að um sjö þúsund
skólar hafi eyðilagst í héraðinu í
skjálftanum sem mældist 7,9 stig á
Richterskvarða. Þúsundir barna
grófust undir rústum skóla sinna,
en þau voru ýmist í tíma eða sof-
andi í skólanum sínum er skjálft-
inn reið yfir.
Öflugur eftirskjálfti, sem mæld-
ist 5,9 stig á Richter, skók hamfara-
svæðið í gær og hafði aurskriður í
för með sér sem lokuðu vegum og
skemmdu símalínur.
Engin miskunn
Kínverska fréttastofan Xinhua
segir að ráðuneyti húsnæðismála
hafi fyrirskipað sveitarstjórnum að
rannsaka orsakir þess að skóla-
byggingar hrundu í skjálftanum.
Menntamálaráðherrann Han Jin
segir að ef gallar séu í skólabygg-
ingum þá muni stjórnvöld mis-
kunnarlaust taka á þeim sem
ábyrgðina bera og gefa almenningi
viðunandi svör. „Við viljum votta
öllum kennurum og nemendum
sem misstu dýrmæt líf sín í skjálft-
anum okkar dýpstu virðingu.“
Fréttir hafa borist af því að
hundruð barna hafi orðið undir
rústum fjölda skóla í héraðinu.
Vegna þeirrar stefnu Kínastjórnar
að hjón megi einungis eignast eitt
barn er staðreyndin sú að mikill
fjöldi foreldra hefur misst sitt eina
barn.
Brestir í stíflu
Tugþúsundir kínverskra her-
manna eru nú að störfum á ham-
farasvæðunum. Hafa stjórnvöld
búið til sérstakar rýmingaráætlanir
vegna hættu á að stíflur á svæðinu
bresti, haldi úrhellisrigningin
áfram, en hún hefur gert hjálpar-
starfsmönnum mjög erfitt fyrir í
vikunni. Að sögn er ástandið á
stíflum hvað verst í Wenchuan,
Beichuan og fleiri stöðum næst
upptökum jarðskjálftans.
Íslendingar veita stuðning
Fljótlega eftir skjálftann lýstu
stjórnvöld í Kína yfir að þau hygð-
ust þiggja alla þá erlendu aðstoð
vegna jarðskjálftanna sem berst.
Bæði Japanar og Taívanar hafa
boðið fram aðstoð, en samskipti
þeirra og Kínastjórnar hafa ekki
verið sem best síðustu ár.
Íslensk stjórnvöld ákváðu á
fimmtudaginn að veita Kínverjum
aðstoð upp á 7,8 milljónir króna
vegna hamfaranna. Rennur féð til
hjálparstarfs kínverska Rauða
krossins sem sinnt hefur neyðar-
hjálp í kjölfar skjálftans. Í tilkynn-
ingu frá utanríkisráðuneytinu segir
að ákvörðun um fjárframlagið hafi
verið tekin að höfðu samráði við
kínversk stjórnvöld.
Kínverjar rannsaka
illa reist skólahús
Þúsundir kínverskra skólabarna létust er þau grófust undir rústum illa byggðra skóla
➤ Jarðskjálftinn reið yfirskömmu eftir hádegi á mánu-
daginn og mældist hann 7,9
stig á Richterskvarða.
➤ Kínversk stjórnvöld óttast aðrúmlega 50 þúsund manns
hafi farist í skjálftanum.
➤ Áætlað er að fimm milljónirmanna hafi misst heimili sín.
SKJÁLFTINN
NordicPhotos/AFPHarmleikur Fjöldi fullorðinna missti sitt eina barn í skjálftanum.
Tæplega fimmtug bandarísk
kona hefur verið ákærð fyrir þátt
sinn í að blekkja 13 ára stúlku á
MySpace-vefnum sem leiddi til
þess að stúlkan svipti sig lífi. Í
ákæru segir að Lori Drew hafi búið
til MySpace-síðu þar sem hún
þóttist vera 16 ára strákur og átti í
samskiptum við Megan Meier um
fjögurra vikna skeið. Megan hengdi
sig á heimili sínu í St. Louis í Mis-
souri-ríki síðla árs 2006, innan við
klukkustund eftir að hafa fengið
skilaboð frá „stráknum“ um að
heimurinn væri betri staður ef
hennar nyti ekki við.
Að sögn þjáðist Megan af þung-
lyndi og hafði lélegt sjálfstraust og
segir móðir Megan að Drew hafi
verið fullkunnugt um veikindi
Megan, en Drew bjó í næsta ná-
grenni við þær mæðgur. Saksókn-
arar segja Drew upphaflega hafa
stofnað síðuna til að komast að því
hvað Megan hefði um dóttur sína
að segja. Drew neitar sök í málinu
en á yfir höfði sér allt að 20 ára
fangelsi verði hún fundin sek. aí
Kona villti á sér heimildir á MySpace
Ákærð fyrir blekkingu
Blekkingar Megan átti við þunglyndi að
stríða.
STUTT
● Verkfall Flugvellirnir í Björg-
vin, Molde og Kristiansand í
Noregi voru allir lokaðir í gær
vegna verkfalls flugvallarstarfs-
manna.
● Stríð John McCain, forseta-
frambjóðandi Repúblík-
anaflokksins í Bandaríkjunum,
sagðist á fimmtudag telja að
sigur gæti unnist í Íraksstríðinu
fyrir lok 2013.
● Koddaslagur Lögregla í
Leeds reynir nú að koma í veg
fyrir að fjöldakoddaslagur eigi
sér stað í borginni um næstu
helgi, eftir að íbúar nærri fyr-
irhuguðum „vígvelli“ lögðu
fram kvörtun. Koddaslagurinn
hefur verið í undirbúningi á
Facebook-síðunni og hafði
fjöldi fólks boðað komu sína
með kodda í hönd.
Síðustu meðlimir dómsdags-
safnaðarins, sem lokuðu sig af
í helli í rússnesku óbyggð-
unum í nóvember, hafa gefist
upp. Söfnuðurinn beið enda-
loka alheimsins í hellinum,
sem er 650 kílómetrum suð-
austur af Moskvu.
Átta menn og ein kona gáfu
sig fram á fimmtudaginn, en
upphaflega höfðu 35 manns
komið sér fyrir í hellinum. Að
sögn lagði mikinn óþef frá
hellinum, en þar voru lík
tveggja meðlima. Dó annar úr
hungri og hinn úr krabba-
meini. aí
Dómsdagssöfnuðurinn
Þeir síðustu
gáfust loks upp
Osama bin Laden, leiðtogi al-
Qaeda, segir í ávarpi sem birt
var á vefsíðu í gær að þau
muni halda áfram heilögu
stríði sínu gegn Ísrael og
bandamönnum þar til Palest-
ína verði frelsuð. Bin Laden
segir einnig að baráttan fyrir
málstað Palestínu sé mikil-
vægasti hvatinn að stríði al-
Qaeda gegn Vesturlöndum. aí
Ný upptaka með Osama
Stríð áfram