24 stundir - 17.05.2008, Blaðsíða 14

24 stundir - 17.05.2008, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 24stundir 24stundir Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Ólafur Þ. Stephensen Björg Eva Erlendsdóttir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is, Prentun: Landsprent ehf. Þeir sem hafa kvartað undan aðgerðaleysi stjórnvalda vegna efna- hagsvandans að undanförnu hafa nú fengið það sem þeir biðu eftir. Seðlabankinn einkum og sér í lagi tók myndarlega til hendinni í gær er sagt var frá gjaldmiðlaskiptasamningum, sem bankinn hefur gert við norræna seðlabanka. Þessir samningar auka ekki einvörðungu svigrúm Seðlabankans til að styðja við bakið á íslenzku bönkunum. Þeir sýna að þrátt fyrir oft og tíðum óábyrga umræðu um íslenzkt efnahagslíf í nágrannalöndum okkar hafa seðlabankar þessara ríkja trú á hagkerfinu. Yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um breytingar á Íbúðalánasjóði og aðhald í opinberum fjármálum eru líka til bóta. Það var löngu tíma- bært að gera breytingar á íbúðalánastarfsemi ríkisins, en vaxtastefna sjóðsins hefur iðulega unnið gegn markmiðum Seðlabankans í barátt- unni við verðbólguna. Verði félagslegt hlutverk sjóðsins aðskilið betur frá annarri lánastarfsemi, þýðir það væntanlega eðlilegra samkeppn- isumhverfi á fasteignalánamarkaðnum, sem er reyndar ekki beysinn nú um stundir. Hvað yfirlýsing forsætisráðherra um að „styrkja umgjörð fjár- málastefnunnar“ þýðir nákvæmlega, er ekki ljóst. Væntanlega þýðir hún sparnað og aðhald í ríkisrekstrinum og að staðið verði gegn kröf- um um áframhaldandi aukningu ríkisútgjalda. Kannski hefði mátt orða það skýrar. Viðbrögð markaðarins við þessum aðgerðum og yfirlýsingum voru mjög jákvæð; gengi krónunnar snarhækkaði, hluta- bréf hækkuðu í verði og skuldatryggingarálag rík- issjóðs og íslenzku bankanna á útlendum mörk- uðum lækkaði, sem þýðir að erlendir fjárfestar telja áhættuna í íslenzku viðskiptalífi hafa minnkað. Það á eftir að koma í ljós hvort þessi jákvæðu áhrif haldast. Hitt er klárt mál, að hér er fyrst og fremst um aðgerðir til skemmri tíma að ræða. Spurningin sem þarf að ræða til lengri tíma litið er hvort krónan, sveiflukennd og veik fyrir spá- kaupmennsku og utanaðkomandi áföllum, dugir íslenzku efnahagslífi til frambúðar eða hvort trú- verðugri gjaldmiðill þarf að koma til. Aðgerðir til skemmri tíma SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST Ef íhaldið í Reykjavík byggi yfir sömu viðbragssnerpu og sama innri styrk og Gunnar bakari og hans lið á Skag- anum sýndu í þessu máli væri borgarstjórn- arflokkur Sjálf- stæðisflokksins ekki rjúkandi rúst. Það eru greinilega miklu reyndari menn og staðfastari við stjórnvöl flokksins á Skaga en í Reykjavík. Kannski Sjálfstæðisflokkurinn í borginni geti frelsað sjálfan sig úr eymd- inni sem Styrmir Gunnarsson hefur lýst af dæmafárri innsýn og þrótti í Morgunblaðinu með því að fá Gunnar bakara í framboð í næstu borgarstjórnarkosningum. Össur Skarphéðinsson eyjan.is/goto/ossur BLOGGARINN Skarpir á Skaga Tíminn til að fjalla um frum- varpið í heilbrigðisnefnd er afar stuttur og því greip formaðurinn til þess ráðs að senda málið til umsagnar í eigin nafni áður en það hafði verið rætt í þingsölum. Þetta er ótrúlegt dóm- greindarleysi og sýnir valdhroka gagnvart þinginu. Það er ölllum ljóst að frumvarpið er sannkallað „óskabarn“ for- mannsins, Ástu Möller sem hefur talað meira fyrir einkarekstri í heilbrigðiskerfinu en nokkur annar þingmaður. Það dugar henni þó ekki til að fara á svig við þingskaparlög. Valgerður Sverrisdóttir valgerdur.is Óskabarn Ástu Með skattalækkun er fé fært frá ríkinu, sem kann lítt með það að fara, og til einstaklinganna, sem nýta það miklu betur, annað- hvort til eigin ánægjuauka eða í sparnað og með honum fjárfest- ingu. Ríkisstjórn- in hefur þegar til- kynnt, að tekju- skattur á fyrir- tæki verði lækkaður úr 18% í 15% frá og með næstu áramót- um. Það er skref í rétta átt, en vegna fyrirsjáanlegs samdráttar ætti að ganga enn lengra og lækka tekjuskattinn niður í 12%. Jafn- framt ætti að lækka tekjuskatt á einstaklinga verulega, til dæmis um 2%. Hannes Hólmsteinn Gissurarson hannesgi.blog.is Skattalækkanir Ólafur Þ. Stephensen olafur@24stundir.is Hvað gerir embættismaður þeg- ar stjórnmálin eru í rugli og framkvæmdavaldið kann ekki fótum sínum forráð? Flestir ganga til vinnu sinnar eins og vant er og gera það sem þeim er sagt. Sumir geta það ekki og segja upp störfum. En ef þeir eru spurðir af hverju, vísa þeir til þagnarskyldunnar og þess hlutverks embættismanna að vera trúr því að framfylgja stefnu stjórnvalda án þess að æmta – hversu vitlaus sem hún er – jafnvel þótt hún standist ekki lög og sé almenningi til skaða. Holl- ustan við skyldur embættismannsins nær fram í and- látið hjá þeim sem telja sig trúustu þjónana. Af hátt í tuttugu embættismönnum sem 24 stundir ræddu við, vildi aðeins einn fyrrverandi embættismaður tala und- ir nafni. Sumir vildu alls ekki segja neitt en margir vildu lýsa aðstæðum án þess að láta nafns síns getið. Púa á leikreglur lýðræðisins Embættismenn borgarkerfisins bera sig illa þessa dagana. Þeir segja mikið af vinnutíma sínum fara í að útbúa auglýsingabrellur fyrir formenn fagráða sem róa lífróður fyrir pólitískri framtíð sinni. Stefnumótun sé unnin fyrir ruslafötur. Stjórnsýslan sé sjúskuð og ómarkviss og oft teknar pólitískar skyndiákvarðanir án þess að minnsta tilraun sé gerð til að feta leið lýðræð- isins. „Borgarfulltrúar stýra fjölskipuðu ráði. Þeir mega ekki taka ákvarðanir framhjá ráðinu, en sumir púa bara á það,“ segir NN í Reykjavík. „Formennirnir eiga ekki að vera einráðir, en við embættismennirnir getum ekki farið að munnhöggvast við þá eða lýsa per- sónulegum skoðunum opinberlega. Skyldur okkar gagnvart stjórnmálamönnum eru skýrar. Við verðum að fylgja pólitískri stefnu hverju sinni og gangi það gegn sannfæringu okkar er ekki annað að gera en að láta af störfum,“ segir NN. Setja mál í hægagang Annar NN sem einmitt lét af störfum í Reykjavík af slíkum ástæðum segir embættismenn hafa nokkrar leiðir til að láta ekki ráðskast með sig. Þeir geta rætt við stjórnmálamanninn í trúnaði og útskýrt fyrir honum hvers vegna þessi eða hin ákvörðunin gangi ekki upp. Taki stjórnmálamaðurinn ekki rökum eða skilji ekki dæmið, lendi mál gjarnan í hægagangi og bið eftir því Já ráðherra – já borgarfulltrúi SKÝRING
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.