24 stundir - 17.05.2008, Blaðsíða 19

24 stundir - 17.05.2008, Blaðsíða 19
24stundir LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 19 Áætlað er að fjármagns- tekjuskattur skili ríflega 30 milljörðum króna í ríkis- sjóð í ár en skatturinn hef- ur skipað æ stærri sess í tekjum ríkissjóðs frá því hann var tekinn upp 1997. Í vefriti fjármálaráðuneyt- isins kemur fram að fjár- magnstekjuskatturinn, sem hefur frá upphafi verið flatur 10 prósenta skattur, hafi í upphafi verið 1,7 prósent af tekjum ríkissjóðs en 6 prósent árið 2006. Stofn fjármagnstekjuskattsins, sem leggst fyrst og fremst á ein- staklinga, eru eignatekjur hvers konar, svo sem vaxtatekjur, arður, leigutekjur og söluhagnaður. Dregið hefur úr hlut vaxtatekna þrátt fyrir mikinn vöxt þeirra á undanförnum árum. Í dag eru vaxtatekj- urnar aðeins liðlega fimmtungur skattstofnsins og rúmur helmingur þar af eru vextir af bankainnistæðum. ibs Skilar 30 milljörðum í ríkissjóð Háskólinn á Bifröst býður nú upp á nýja þjónustu við fyrirtæki sem eru í leit að starfsfólki og nemendur í leit að starfi, svokall- að Framatorg. Fyrirtækjum býðst að birta starfsauglýsingar sér að kostnaðarlausu en atvinnuaug- lýsingarnar eru eingöngu að- gengilegar nemendum sem eru innskráðir á vef skólans, www.bifrost.is. Einnig geta fyr- irtæki óskað eftir samstarfi við nemendur vegna misserisverk- efna eða lokaverkefna. ibs Störf auglýst á Framatorgi Samkomulag hefur orðið um að Sigurður Jónsson láti af störfum framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu hinn 1. júní næstkomandi. Andrés Magn- ússon, fyrrum framkvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna, tekur við af starfinu af Sigurði, sem mun taka að sér önnur verk- efni fyrir atvinnurekendur. Þá mun Guðbjörg Sesselja Jóns- dóttir taka við starfi skrifstofu- stjóra SVÞ af Óskari Björnssyni í lok mánaðarins. aí Andrés tekur við af Sigurði Skrifstofa borgarstjóra • Tungumálakunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, metnaður til að ná árangri í starfi. Um er að ræða spennandi og krefjandi starf fyrir metnaðarfullan einstakling sem er reiðubúinn að sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Borgarstjóri er næsti yfirmaður mannréttindastjóra. Laun eru samkvæmt ákvörðun Kjaranefndar Reykjavíkurborgar. Umsóknir skal færa inn á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is eigi síðar en 26. maí nk. Upplýsingar um starfið veita Anna G. Ólafsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu borgarstjóra, og Hallur Páll Jónsson, mannauðsstjóri Reykjavíkurborgar, í síma 411 1111. Hlutverk mannréttindaráðs er að sjá til þess að mann- réttindastefnu Reykjavíkurborgar sé fylgt eftir og hún kynnt. Í því felst vinna að sérstakri framkvæmdaáætlun mannréttindamála í samvinnu við svið og skrifstofur borgarinnar og hagsmunahópa, samhliða starfs- og fjárhagsáætlunum. Enn fremur ber mannréttindaráði að stuðla að þekkingaröflun og miðlun upplýsinga á sviði mannréttindamála. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heima- síðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11 færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsemenn sem þú þarft að ná í. Staða mannréttindastjóra laus til umsóknar Hlutverk og ábyrgðarsvið • Standa vörð um að borgarbúum sé ekki mismunað vegna uppruna, litarháttar, trúarbragða, aldurs, stjórnmálaskoðana, kynferðis, kynhneigðar, efna- hags, ætternis, fötlunar, heilsufars eða annarrar stöðu. • Undirbúa fundi mannréttindaráðs og fylgja eftir ákvörðunum ráðsins. • Vinna, ásamt mannréttindaráði, framkvæmda- áætlun mannréttindamála. • Efla samráð innan borgarinnar í þeim málum sem mannréttindastefnan nær til. • Eiga samvinnu við stofnanir, félög og önnur sveitarfélög um mannréttindamál. • Leiða samráð við tilnefnda mannréttindafulltrúa á sviðum Reykjavíkurborgar. • Taka þátt í samstarfi stjórnenda hjá Reykjavíkurborg. Hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Þekking á eða reynsla af störfum á þessu sviði æskileg. • Víðtæk reynsla og þekking af opinberri stjórnsýslu æskileg. • Stjórnunar-, skipulags- og samskiptahæfileikar. Auglýsingasíminn er 510 3744 FIMLEIKASAMBAND ÍSLANDS 40 ÁRA Míla sendir Fimleikasambandi Íslands hamingjuóskir á 40 ára afmælisdaginn og óskar sambandinu heilla í framtíðinni. Míla er aðalstyrktaraðili Fimleikasambands Íslands. Kraftur, tækni, sveigjanleiki - virðing, forysta, traust ... E N N E M M /S ÍA /N M 33 71 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.