24 stundir - 17.05.2008, Qupperneq 25
24stundir LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 25
Úr yfirheyrslum
28. ágúst 2002
og 29. ágúst
2002.
Þegar Tryggvi
var beðinn um að
taka afstöðu til
sakarefnisins
sagði hann „þetta
sakarefni ekki eiga við rök að
styðjast. Hann kveðst ekki hafa
átt þátt í neinum fjárdrætti eða
umboðssvikum. Hann segir mál-
ið byggja á persónulegu hatri
Jóns Geralds Sullenberger í garð
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.“
„Tryggvi kveðst telja að árið 1996
eða 1997 hafi kviknað hjá þeim
Jóni Ásgeiri og Jóni Gerald sú
hugmynd að kaupa bát á Flórída
sem þeir hafi ætlað að eiga sam-
an, sem persónulega eign. Jón Ás-
geir hafi sagt sér frá því að hann
ásamt Jóhannesi Jónssyni hafi
lagt fram fjármuni, að hann
minni um 20 milljónir króna
vegna kaupa á bátnum og Jón
Gerald lagt fram fjármuni á móti.
Þannig kveðst Tryggvi halda að
þeir feðgar hafi átt að eiga helm-
ingshlut í bátnum á móti Jóni
Geraldi … Þeir feðgar hafi með
þeim peningasendingum eignast
kröfu í bátinn sem síðar hafi átt
að breyta í hlutafé í bátnum. Að-
spurður kveðst Tryggvi ekki vita
hvaðan peningarnir frá feðg-
unum komu … Nánar aðspurður
kveðst Tryggvi ekki vita til þess
að þær greiðslur hafi runnið úr
sjóðum Bónus-verslananna, enda
segir hann þessi viðskipti með
bátinn hafa verið persónulega
eign þeirra feðga og ekki hafa
neitt með Bónus að gera.“
Varðandi Nordica-reikningana
segir Tryggvi „alla þá reikninga
sem Baugi hafi borist frá Nordica
Inc vera lögmæta og ekkert sak-
næmt í tengslum við þá“.
Þegar hann var spurður um þá
12 þúsund dollara sem greiddust
mánaðarlega til Jóns Geralds og
hann hélt fram að væri vegna
bátsins sagðist Tryggvi „ekki sjá
betur en að þetta séu þær 12.000,-
USD sem … varði greiðslurnar til
Jóns Geralds sem fyrst og fremst
hafi verið ætlaðar til að mæta
launakostnaði Jóns Geralds og
snúi að hans umsýslu fyrir Baug
hf.“ Undir lok einnar yfirheyrsl-
unnar segist Tryggvi „ekki hafa
komið oft í þennan bát. Hann
segir starfsmenn Baugs hf. ekki
hafa aðgang að bátnum, þeir Jó-
hannes, Jón Ásgeir og Jón Gerald
eigi hann og noti hann sjálfir.“
Tryggvi Jónsson
Neitar fjárdrætti
og umboðss-
vikum
Úr yfirheyrslum
29. ágúst 2002,
10. febrúar
2003, 11. mars
2003.
Jón Ásgeir
sagðist neita sök
varðandi fjárdrátt
vegna Thee Vik-
ing. „Hann kveðst ekki geta séð það
hvernig hann geti verið grunaður
um fjárdrátt í tengslum við rekstur
báts sem hann eigi ekkert í … Jón
Ásgeir segir að Fjárfestingafélagið
Gaumur ehf. hafi lánað Jóni Ger-
aldi u.þ.b. 38 milljónir króna vegna
viðskipta Jóns Geralds, meðal ann-
ars vegna fjármögnunar á þessum
báti … þessi fjárhæð 38 milljónir
standi sem skuld á viðskipta-
mannareikningi Jóns Geralds hjá
Gaumi ehf. … Hann telur þó rétt
að það komi fram að Jón Gerald sé
búinn að hafa í hótunum við sig og
fjölskyldu sína, eftir að Baugur-Að-
föng hf. sleit viðskiptum við fyr-
irtæki hans Nordica Inc.“
Varðandi föstu mánaðarlegu
greiðslurnar til Nordica sagði Jón
Ásgeir að rekstur Nordica hefði
ekki gengið sem best og að Baugur
hefði viljað „virkja hann áfram til
að koma Baugi hf. í sambandi við
nýja viðskiptamenn í Bandaríkjun-
um … Þannig hafi verið gert sam-
komulag við Jón Gerald þess efnis
að Baugur hf. styrkti Jón Gerald í
sínum rekstri með beinum fjár-
framlögum gegn því að hann veitti
þeim þá þjónustu að leita áfram að
vænlegum viðskiptatengslum í
Bandaríkjunum. Jón Ásgeir segir
að þessar greiðslur sem bornar hafi
verið undir hann séu styrkur sem
Jón Gerald hafi fengið frá Baugi hf.
Jón Ásgeir kveðst ekkert vita
hvernig Jón Gerald hafi ráðstafað
þessum fjármunum, hann hafi ráð-
ið því sjálfur. Þess vegna kveðst Jón
Ásgeir ekkert vita um það hvort
Jón Gerald hafi notað þessa fjár-
muni í bátinn eða eitthvað ann-
að … Jón Ásgeir segir alveg ljóst að
þeir feðgar hafi aldrei átt neitt í
þessum báti.“
Þegar Jón Ásgeir var spurður á
hverju kreditreikningurinn frá
SMS byggði sagði hann að „þetta
byggðist held ég á einhverjum fyr-
irhuguðum kaffiviðskiptum.
… þetta var reikningur sem fór
bara inn og út held ég.“ Síðar sagði
Jón Ásgeir að hann haldi að „þetta
hafi verið fyrirframgreiddur af-
sláttur, held ég, ég þekki þetta mál
ekki nógu mikið til þess að geta
tjáð mig um það, frekar en ég þekki
kreditfærslur hingað og þangað í
fyrirtækinu. Um það sem kemur
inn á borð hjá mér og ég tek
ákvörðun um, skal ég segja ykkur
alla söguna.“ Síðar segir hann að
hann viti „fyrir „fakt“ að SMS pen-
ingurinn kom aldrei og það varð
aldrei af þessum viðskiptum vegna
þess að kaffi-„dílerar“ hérna heima
stoppuðu þá og þess vegna var
hann færður út.“
Þegar Jóni Ásgeiri er sagt að
feðgarnir sem reka SMS hafi báðir
sagt við yfirheyrslur að kredit-
reikningurinn hafi verið tilhæfu-
laus segir hann að „það er ekki það
sem ég hef fengið frá þeim … en
þú veist „bottomline“ er að mér er
ekki sögð þessi saga svona. Það er
allavega það sem ég hef heyrt í mín
eyru og heyrt Níls [Niels] segja frá í
mín eyru, að þá sé þetta ekki
svona.“ Síðar segir hann varðandi
Jón Gerald að hann sé „maður sem
er búinn að ljúga upp á mig og
hóta mér morði og ég gef bara ekki
mikið fyrir hans orð þó þið gerið
það.“
Jón Ásgeir Jóhannesson
Gef ekki mikið fyrir orð manns sem hótaði mér morði
Úr yfirheyrslum
10. september
2002.
Niels, sem var
framkvæmda-
stjóri SMS í Fær-
eyjum, sagði að
Tryggvi hefði
óskað eftir kred-
itreikningi frá SMS um mitt ár
2001 upp á tæplega 47 milljónir.
Niels sagði einnig að þeir hefðu
rætt þetta mál áður. „Hann segir
Tryggva ekki hafa skýrt sér frá því
hvernig hann hygðist nota kred-
itreikninginn í þágu Baugs hf.
Niels segir að það hafi aldrei
hvarflað að honum að Baugur hf
myndi nota kreditreikninginn í
bókhald Baugs hf., enda kveðst
Niels vita að Tryggvi er löggiltur
endurskoðandi.“ Síðar vildi Niels
fá að breyta framburði sínum og
skýra frá því hvernig þetta raun-
verulega átti sér stað. Hann segir
að Tryggvi hafi hringt í sig og „ósk-
að eftir tilhæfulausum kreditreikn-
ingi frá SMS stíluðum á Baug …
Hann segir föður sinn hafa útbúið
kreditreikninginn að beiðni og for-
skrift Tryggva og sent hann með
símbréfi til Íslands … Niels tekur
það fram að Baugur hf. eigi 50% í
SMS og því séu þeir mjög háðir
Baugi hf. á margan hátt.“ Niels
sagði að 2. september 2002, stuttu
eftir húsleitina í höfuðstöðvum
Baugs, hafi Tryggvi hringt í sig og
viljað fund. Hann segir að á þeim
fundi hafi Tryggvi „óskað eftir því
að Niels gæfi lögreglu ranga skýr-
ingu á tilurð kreditkortareiknings-
ins ef lögregla kæmi til með að
spyrja hann út í þennan
kreditkortareikning...Niels kveðst
hafa gefið honum vilyrði fyrir því
að gefa lögreglu þær skýringar.“
Niels Heine Mortensen
Breytti
framburðinum
Úr yfirheyrslum 29. ágúst
2002 og 3. apríl 2003.
Varðandi
Thee Viking
sagðist Jóhannes
„ekki hafa nýtt
sér umræddan
bát nema í 6
vikur frá því að
hann var keypt-
ur fyrir u.þ.b. 4
árum, en Jón Gerald hafi ann-
ast bátinn og nýtt hann mjög
mikið í eigin þágu. Jóhannes
segir að allir fjármunir sem frá
honum hafi komið vegna kaupa
og rekstrar þessa báts, séu í
bókhaldi Gaums hf.“ Þegar
undir hann voru bornar reikn-
ingsfærslur sem sýndu
greiðslur til Nordica sagði Jó-
hannes að „honum sé
ókunnugt um einstakar reikn-
ingsfærslur“.
Varðandi vinslitin við Jón
Gerald sagði Jóhannes að hann
hefði hringt í sig „undir mið-
nætti, mjög æstur, sagt að
væntanlega sé það síðasta sím-
talið sem hann eigi við Jóhann-
es og sagði síðan orðrétt: „Þú
skalt vera góður við son þinn,
því hann á skammt eftir ólifað
því ég mun koma til landsins
og myrða hann“.“
Við síðari yfirheyrslur var
Jóhannes spurður hvort hann
vildi tjá sig um ætlað sakarefni
og svaraði hann því að hann
hafnaði „þeim sakargiftum sem
á mig eru bornar. Ég mundi
aldrei biðja nokkurn mann að
falsa fyrir mig reikninga til að
ég gæti framvísað til íslenskra
tollyfirvalda. Ég á alltof mikið
undir í íslensku viðskiptalífi til
þess.“
Jóhannes Jónsson
Hafnar alfarið
sakargiftum
Úr yfirheyrslum
25. ágúst 2002.
Jón Gerald
sagði að hann,
Jón Ásgeir og Jó-
hannes hefðu
ákveðið að kaupa
stærri snekkju,
sem síðar hlaut
nafnið Thee Viking.. Hann sagði
að „hann og Jón Ásgeir hafi á
þessum tíma verið að leggja drög
að stofnun nýs bakarís á Íslandi
ásamt fleiri aðilum … Nýbrauð
sem átti að selja brauð í versl-
unum Baugs … hann [hafi] einn-
ig talað um að selja brauðin á 60
krónur og leggja 5 krónur ofan á
verðið á hverju brauði til að
standa undir afborgunum og
rekstri snekkjunnar sem þeir
höfðu í hyggju að kaupa …
snekkjan hafi verið keypt sem
persónuleg eign þeirra þriggja,
Jóns Geralds, Jóns Ásgeirs og Jó-
hannesar. Aldrei hafi komið til
umræðu að Baugur kæmi þar inn
sem eignaraðili … Jón Gerald
kveðst eftir kaupin á Thee Viking
hafa fengið fyrirmæli um það frá
Tryggva Jónssyni að gefa út reikn-
inga mánaðarlega í nafni fyr-
irtækisins Nordica Inc stílaðan á
Baug að fjárhæð 12.000,- USD. Á
reikninginn átti að skrá sem skýr-
ingu að um væri að ræða ráðgja-
fastarf og þóknun fyrir samnings-
gerð. Raunin hafi verið sú að um
var að ræða afborganir og rekstur
snekkjunnar… Jón Gerald tekur
fram að eftir að Tryggvi Jónsson
kom til starfa hjá Baugi hafi hann
nánast séð um öll samskipti við
sig varðandi rekstur og útgjöld
vegna Thee Viking … Jón Gerald
segir að þannig hafi þeir feðgar
Jón Ásgeir og Jóhannes fjár-
magnað kaupin á snekkjunni
með peningum frá Baugi.“ Varð-
andi tilhæfulausa kreditreikn-
ingin sagði Jón Gerald að Tryggvi
hefði „haft samband við sig á
þessum tíma og óskað eftir reikn-
ingi frá Nordica Inc, sem stílaður
yrði á Baug og segir Jón Gerald að
Tryggvi hafi gefið honum upp
fjárhæð reikningsins og þann
texta sem ætti að vera sem skýr-
ing með reikningnum. Jón Gerald
kvaðst hafa gert það sem Tryggvi
óskaði eftir...Þessi reikningur hafi
á engan hátt tengst þeim við-
skiptum sem hann hafði átt við
Baug og honum hafi aldrei borist
nein greiðsla vegna þessa reikn-
ings. Jón Gerald kveðst heldur
ekki hafa gert tilraunir til að inn-
heimta reikninginn, enda hafi
engin viðskipti staðið á bak við
útgáfu hans.“
Jón Gerald Sullenberger
Átti Thee Viking
með feðgunum
Baugur Málið hefur staðið
yfir frá 28. ágúst 2002.
einn að selja. Gaumur greiðir
22 fyrir helgi sem sinn hluta í F
þannig eiga öll mál að vera klár
varðandi hlutafjáraukningu.
Ég veit að þetta kann að fara í
pirrurnar á sumum en ég tel
nauðsynlegt að verja þá hags-
muni að afkoma Baugs sé í lagi
sérstaklega eftir síðasta útboð
einnig þarf trú markaðarins að
vera góð þegar við förum í Ar-
cadia málið. annars allt gott.
Jón Ásgeir
● 25. 01.2001
Heiti: RE: Innborgun í A
holding SA
Frá: Jóni Ásgeiri Jóhannessyni
Til: Tryggva Jónssonar
Samkvæmt samþykkt stjórn-
ar þá má Baugur leggja til 1,2
milljónir punda til viðbótar ég
geri mér grein fyrir sjóðsstöðu
Baugs og mun hef því fengið ÍB
með í A holding þeir koma inn
með 500 núna þannig að við
borgum þetta 5. feb. Jón Ásgeir
● 26. 01.2001
Heiti: FW: Greiðslur
Frá: Tryggva Jónssyni
Til: Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar og Lindu Jóhannesdóttur
Við fengum greiðslufrest
fram yfir helgi á skuld Baugs.
Ég stóð í þeirri meiningu (sbr.
stjórnarfund) að Baugur ætti að
greiða 1,2 millj. GBP en ekki
2,2 millj.
Annað: Verðbréfaþingið ósk-
ar eftir frekari upplýsingum,
sem hún þarf síðan að meta
hvort eigi að fara út. Samkvæmt
þeim fréttatilkynningum, sem
frá okkur hafa komið kemur
ekki fram hvað við eigum stór-
an hlut í heildarfjárfestingunni,
því hafa þeir fengið fyrirspurnir
hvort við séum búnir að fara
með stóran hluta af eigin fé
Baugs í þessa fjárfestingu.
Taka þarf því saman hvernig
staðið er að fjárfestingunni,
enda á það ekki að vera neitt
leyndarmál og mun koma fram
í 6 mánaða uppgjöri. Það sem
þarf að koma er að við höfum
stofnað A-holding S.A. og greitt
ca. 400 mills. í hlutafé þar. Það
þýðir x% af heildareiginfé í A-
holding. Síðan hafi A-holding
tekið lán fyrir viðbótinni.
Ert þú ekki sá eini sem ert
með þessa mynd í heild sinni? TJ
● 27.01.2001
Heiti: RE: Greiðslur
Frá: Jóni Ásgeiri Jóhannessyni
Til: Tryggva Jónssonar
Ég sé um þetta mál það er
rétt og þetta er 1.2 milljónir bú-
inn að redda greiðslu fram yfir
helgi og einnig búinn að sjá til
þess að blanki Baugur þarf ekki
að borga fyrr en í feb. jaj
Sóknin Sigurður Tómas
Magnússon settur rík-
issaksóknari í Baugsmálinu.