24 stundir - 17.05.2008, Blaðsíða 27
24stundir LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 27
Útskrift nemenda
af kvikmyndabraut
Laugardaginn 17. maí í Laugarásbíói kl. 13:00. Öllum heimill aðgangur á meðan húsrúm leyfir.
Þorsteinn Einarsson
Steini’s Inferno
The Myth - The Legend -
The Music
Ragnar Pétur Pétursson
Þjófur þjófur
Hvað ungur nemur...
Steinþór Einarsson
Stóra frumsýningin
Ný upplifun
Stefán Friðrik Friðriksson
Yfirborð
Trúir þú á tilviljanir?
Óttar Vignisson
Hinsti túrinn
Fast land undir fótum.
Fullar hendur fjár.
Fjandinn er laus.
Úlfur Karlsson
Einskonar Alaska
Mögnuðustu myndirnar
sem þú hefur séð, sástu
með lokuð augun
Ólafur Már Jónsson
Allt fyrir ástina
Ert þú tilbúinn að leggja
allt í sölurnar?
Guðrún Lína Thoroddsen
Álfablót
Úr álfheimum á enginn
afturkvæmt
Sölvi Mar Guðjónsson
Tómur strigi
Málarinn
Pétur Kjærnested
ID
Óttastu sjálfið
10 nýjar stuttmyndir
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
/
K
V
I
42
41
3
0
5/
20
08
Þegar ákveðið var fyrir um
tveimur árum að endurnýja
Grímseyjarferju var óneitanlega
eins og til hafi staðið að leysa það
samgöngudæmi fyrir smáaura og
þess vegna hafi menn kastað til
þess höndunum í byrjun. Þetta
átti að vera ódýrt og fljótleyst. Við
hendum bara gömlum ryðkláfi í
þessa útkjálkapúka sem allir verða
hvort eð er fluttir upp á land fyrr
en varir. Þrátt fyrir að viður-
kenndur og reyndur skipamiðlari
hafi haft milligöngu um skipa-
kaupin sátu menn fljótlega uppi
með ófyrirséðan veruleika. Skipið
var í mun lakara standi en menn
höfðu álitið. Skoðun og úttekt var
ófullnægjandi, þannig að útboð
lagfæringa og breytinga spannaði
verkefnið engan veginn.
Reyndi björgun
Verkið fór því úr böndum og af
ýmsum ófyrirséðum ástæðum
dróst það á langinn. Alveg er ljóst
að viðbætur við verkið umfram
útboð eru alfarið á ábyrgð verk-
kaupans sem hafði tekið ákvörð-
un um kaupin á skipinu og einnig
þær aðgerðir sem óhjákvæmilegar
voru þegar í þessar aðstæður var
komið. Sá kostnaðarauki sem af
þessu aukna umfangi verksins
leiddi, hafði þær afleiðingar að
fjárheimildir fyrir því brast og
framvinda þess komst í uppnám.
Verktakinn varð að sönnu óhress
vegna tafa á greiðslum og neydd-
ist um tíma til að hætta vinnu við
verkefnið. Verkkaupinn var í svip-
aðri stöðu, með samgönguverk-
efni í höndunum sem hafði farið
svo gersamlega úr böndum að
engin leið var að forsvara það.
Kristján Möller, núverandi sam-
gönguráðherra, reyndi að bjarga
forvera sínum í embætti og Vega-
gerðinni með því að reyna að
koma sökinni á ráðgjafa sem
komið hafði að málinu. Þetta
snerist heldur illa í höndum
Kristjáns því ráðgjafi þessi hafði á
sínum tíma gert allt sem hann gat
til að ráða þessum aðilum frá
þeim mistökum sem síðan voru
gerð.
Sökudólgur fundið
Nú hafa þeir opinberu aðilar
sem málið varðar hins vegar
fundið sökudólginn. Það er Vél-
smiðja Orms og Víglundar. Hún
annaðist breytingar og endurbæt-
ur á þessu happafleyi. Smiðjukall-
arnir eiga sökina. Og nú eru
menn lagstir í undanbrögð með
að greiða fyrir vinnuna við lag-
færingarnar á skipinu og bera við
töfum sem hvert barn sér að voru
með öllu óumflýjanlegar. Nú
reyna þeir að draga sitt eigið
klúður frá athygli almennings og
koma vélsmiðjunni í skömmina.
Leita verður lengi í sögunni til að
finna samjöfnuð við jafn auman
og lélegan fyrirslátt og þennan.
Að reyna að koma sinni eigin sök
á þá sem af alúð og samviskusemi
reyndu þó allt sem þeir gátu til að
bjarga því sem bjargað varð. Þeir
sem eiga og reka Vélsmiðju Orms
og Víglundar og allir þeirra starfs-
menn eru frábærir járniðnaðar-
menn og valinkunnir sómamenn
að auki. Þeir hafa alla tíð átt það
sammerkt að leysa þau verkefni
sem þeim hefur verið trúað fyrir
af stakri prýði og samviskusemi,
og ævinlega fyrir sanngjarnt verð.
Fullkomið klúður
Við blasir að þetta ferjumál allt,
er fullkomið klúður af hálfu
þeirra opinberu aðila sem að því
komu. Það eiga þeir að viður-
kenna strax. Vélsmiðja Orms og
Víglundar vann alla útboðsþætti
verkefnisins skv. skilmálum út-
boðsins og síðan allt verkefnið
þess utan samkvæmt óskum
Vegagerðarinnar, undir eftirliti
sem kostaði milljónatugi, að
ógleymdri alveg sérstakri rómun
um öll vinnubrögð þeirra smiðju-
manna. Þess vegna eiga þessir op-
inberu aðilar að hætta fáránlegum
mótþróa vegna þessa klúðurs, og
borga smiðjuköllunum hárréttan
reikning fyrir vel unnið verk taf-
ar- og umyrðalaust og reyna jafn-
framt að draga einhvern lærdóm
af þessu rugli, sem allt er á ábyrgð
þeirra sjálfra.
Höfundur er verktaki,
fyrrverandi sjómaður og bóndi
Grímseyjarferjan
UMRÆÐAN aÁmundi Loftsson
Við blasir að
þetta ferj-
umál allt, er
fullkomið
klúður af
hálfu þeirra
opinberu að-
ila sem að því komu. Það
eiga þeir að viðurkenna
strax.
Sökudólgur: Nú hafa
þeir opinberu aðilar sem
málið varðar hins vegar
fundið sökudólginn.