24 stundir - 17.05.2008, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 24stundir
Evrópusambandsaðild „Ég
er ekki að segja að við eigum
að ganga í Evrópusambandið
hvað sem það kostar. Við eig-
um að vera hörð í kröfum okkar
og samningum.“
24stundir /RAX
Getum ekki
beðið lengur
G
reinar Jóns Sigurðs-
sonar, fyrrverandi
formanns Framsókn-
arflokksins, í Morg-
unblaðinu fyrr í þess-
um mánuði um Evrópumál og
efnahagsmál hafa vakið mikla at-
hygli. Sérstaklega hafa augu
manna beinst að Evrópuumræðu
Jóns.
„Ég fylgdist með umræðum um
Evrópusambandið á síðum Morg-
unblaðsins. Þar kom fram mis-
skilningur sem mig langaði til að
leiðrétta og þess vegna skrifaði ég
þessar greinar. Þær eru ekki skrif-
aðar vegna þess að ég hafi skipt um
skoðun á Evrópumálum. Ég hef
alltaf verið Evrópusinnaður, það
vita allir í Framsóknarflokknum og
sömuleiðis allir sem mig þekkja.
Þessar greinar voru skrifaðar vegna
þess að aðstæður hafa gjörbreyst,
það er mikil vá fyrir dyrum og
þjóðin stendur á tímamótum,“
segir Jón Sigurðsson. „Það sem
hefur verið að gerast undanfarið í
efnahags-, peninga- og gjaldeyris-
málum þjóðarinnar hefur breytt
stöðunni. Staðan hefur einnig
breyst við það að forystumenn í ís-
lensku atvinnulífi hafa verið með
miklu háværari kröfur um aðgerðir
en nokkru sinni fyrr og hafa lýst
vantrausti á íslenskan gjaldmiðil.
Fyrir síðustu kosningar sagði ég:
Við eigum að velja þann tíma fyrir
umræðu um Evrópusambandsað-
ild sem hentar okkur. Núna sýnist
mér augljóst að aðstæður hafi
breyst á þann veg að samningsstaða
okkar sé farin að versna. Þá getum
við ekki beðið lengur. Ég held að
óhætt sé að segja að það sé hætt við
því að íslensk fjármálafyrirtæki og
stórfyrirtæki, þar á meðal útrásar-
fyrirtækin, fari að flytjast frá Ís-
landi. Það væri skelfilegt slys.“
Verðum að gera miklar kröfur
Þú segist með greinaskrifum þín-
um vera að leiðrétta misskilning í
Evrópuumræðunni. Hvaða mis-
skilningur er þetta?
„Sá misskilningur að tillaga um
aðild að Evrópusambandinu sé til-
ræði við íslenskt fullveldi. Sá mis-
skilningur að við eigum enga kosti
í fiskveiðimálum. Sú fullyrðing að
fráleitt sé að staða smáþjóðanna í
Evrópu hafi batnað og styrkst með
Evrópusambandsaðild. Og síðast
en ekki síst, þá kom ekki fram í
þessum umræðum á síðum Morg-
unblaðsins hvílík breyting hefur
orðið á stöðunni í efnahags-, pen-
inga- og gjaldeyrismálum þjóðar-
innar.“
Sem formaður Framsóknarflokks-
ins, talaðir þú þá ekki öðruvísi en
Evrópusinnaður stjórnmálamaður
ætti að gera?
„Ég talaði eins og formaður
Framsóknarflokksins átti að tala,
fyrir sameiginlegri stefnu flokksins
sem var og er sú að velja besta tæki-
færið fyrir íslensku þjóðina til að
taka yfirvegaða ákvörðun um Evr-
ópusambandsumsókn eins og frjáls
þjóð.“
Stafar Evrópuviðsnúningur for-
manns Framsóknarflokksins, Guðna
Ágústssonar, ekki af því að íslenskir
stjórnmálaflokkar verða að opna á
umræðu um Evrópusambandsaðild
eigi þeir ekki að einangrast?
„Jú, og þess vegna var þetta
skynsamlegt og rétt hjá Guðna og
honum til mikils sóma.“
Hvenær á yfirlýsing um umsókn
um Evrópusambandsaðild að koma?
„Því fyrr því betra. Ferlið mun
taka fjögur til sex ár en yfirlýsingin
skiptir miklu máli.“
Á tímabili talaðir þú mikið um
þjóðhyggju. Einhverjir hljóta að telja
að maður sem fylgir þjóðhyggju geti
ekki verið aðdáandi Evrópusam-
bandsins?
„Ég er þjóðhyggjumaður. Það er
mín lífsskoðun og hún hefur ekkert
breyst. Ég lít ekki á hugmyndir um
Evrópuaðild fyrst og fremst sem
spurningu um að græða peninga
eða breyta vöruverði. Við eigum
fyrst og fremst að ganga út frá
þjóðarmetnaði okkar. Aðild að
Evrópusambandinu væri ekki afsal