24 stundir - 17.05.2008, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 24stundir
„Það er erfitt og tekur tíma en
þess eru mörg dæmi að slíkt hafi
tekist í stjórnmálum. Það er engin
ástæða til að gera lítið úr þeim
möguleika.“
Heldurðu að Guðna takist það
eða þarf nýjan forystumann?
„Mér finnst Guðni standa sig
vel, vinna af samviskusemi og al-
vöru og vinna hans mun skila sér.“
Hvernig finnst þér þessi ríkisstjórn
standa sig?
„Hún hefur ekki haft áhuga á því
að vinna áfram að þeim árangri í
efnahagsmálum sem síðasta ríkis-
stjórn náði. Ríkisstjórnin er ekki
samstiga í mikilvægum málum,
eins og til dæmis eftirlaunamálinu.
Ég segi ekki að ríkisstjórnin hafi
gert eitthvað mikið rangt í efna-
hags-, gjaldeyris- og peningamál-
um upp á síðkastið. En hún hefur
ekki gert það sem er fyrsta skylda
ríkisstjórnar við slíkar aðstæður,
sem er að senda fólki þau skilaboð
að efnahagsstjórnin sé í styrkum
höndum. Þarna hefur henni mis-
tekist. Það er töluverður áfellis-
dómur.“
Nú sinnir þú kennslu í viðskipta-
deild Háskólans í Reykjavík. Held-
urðu að þú farir einhvern tíma aftur
í pólitík?
„Ég er alltof gamall til að vera
með nokkrar hugmyndir um það.
Ég læt hverjum degi nægja sína
þjáningu.“
Var tími þinn sem formaður
Framsóknarflokksins ekki erfiður?
„Þetta var fyrirhafnarsamur
tími. Eftir á að hyggja hugsa ég
samt að skemmtunin hafi verið
sterkari. Ég er hins vegar ekki heill-
aður af sviðsljósinu. Mér finnst það
ekki aðlaðandi. Ég held samt að
þetta hafi ekki endilega háð mér.
Til lengdar held ég að fólki leiðist
sýndarmenni. Miðjuflokkur höfð-
ar til hugsandi fólks, á miðjum
aldri og eldra, og það er yfirleitt
fólk sem lætur sér fátt um finnast
þótt sýndarmenni séu með há-
vaða.“
a
Í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild-
arumsókn myndi ég ótvírætt
greiða atkvæði með henni. En ég
vil fá að sjá samninginn sem verður lagður
undir þjóðaratkvæði áður en ég tek ákvörð-
un um að styðja þá tillögu um aðild.
24 stundir /RAX
Þjóðhyggjumaður
„Ég er þjóðhyggju-
maður. Það er mín
lífsskoðun og hún
hefur ekkert breyst.“
Þriðjudaginn 27. maí kl. 8:30-11:10 á Grand Hótel Reykjavík, Hvammi, Sigtúni 38.
Rannsóknir í fyrirtækjum
R A N N S Ó K N A Þ I N G
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ö
n
n
u
n
Rannsóknamiðstöð Íslands • Laugavegi 13 • 101 Reykjavík • Sími 515 5800 • www.rannis.is
Alþjóðlegar samanburðarmælingar sýna að Íslendingar hafa dregist aftur úr í nýsköpunar- og þróunarstarfi í atvinnulífinu
á undanförnum árum og er brýnt að auka hvata til að snúa þeirri þróun við. Í fámennu landi er mikilvægt að sameina
kraftana.Vísinda- og tækniráð hefur í framtíðarsýn sinni til 2020 m.a. lagt áherslu á virkt samstarf fyrirtækja, háskóla
og stofnana í rannsóknum, nýsköpun og þróunarstarfi. Öflugar rannsóknir eru undirstaða þekkingarþjóðfélagsins og brýnt
að hvetja sem flest fyrirtæki til þess að þær verði reglulegur þáttur í starfsemi þeirra.
Dagskrá
8.30 Setning. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
menntamálaráðherra
8.45 Rannsóknir í íslenskum fyrirtækjum.
Hver er staðan nú? Guðrún Nordal, formaður
vísindanefndar
9.00 Rannsóknir í sprotafyrirtækjum. Kristján Leósson,
Háskóla Íslands (Hvatningarverðlaun 2007) Björn Örvar, ORF
Líftækni (Nýsköpunarverðlaun 2008) Vilbjörg Einarsdóttir,
Mentor (Vaxtarsprotinn 2008)
9.45 Nauðsyn rannsókna í fyrirtækjum.
Tryggvi Þór Herbertsson, forstjóri Askar Capital
10.00 Pallborð. Hvernig er hægt að örva fyrirtæki
til rannsókna? Þingmennirnir Illugi Gunnarsson, Katrín
Jakobsdóttir, Katrín Júlíusdóttir og Birkir Jónsson sitja í
pallborði. Stjórnandi er Þorlákur Karlsson prófessor, forseti
viðskiptadeildar HR
Dagskrá vegna hvatningarverðlauna
Vísinda- og tækniráðs
10.30 Tónlist. Ragnheiður Gröndal söngkona og
Guðmundur Pétursson gítarleikari
10.45 Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Vísinda-
og tækniráðs, afhendir Hvatningarverðlaun Vísinda- og
tækniráðs. Jakob K. Kristjánsson formaður dómnefndar gerir
grein fyrir niðurstöðu nefndarinnar
11.10 Rannsóknaþingi slitið
Fundarstjóri Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís
IÐNAÐAR
RÁÐUNEYTIÐ
FORSÆTIS
RÁÐUNEYTIÐ
MENNTAMÁLA
RÁÐUNEYTIÐ
Rannsóknaþingið er öllum opið.
Þinggestir eru vinsamlega beðnir að skrá sig með
tölvupósti til rannis@rannis.is eða í síma 515 5800