24 stundir - 17.05.2008, Side 45
24stundir LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 45
Elísabet Alba vínþjónn mælir
með Giroud Vins Ballerine
2004. Hreinn ilmur af ferskj-
um, hvítum blómum, gulum
eplum og kanil. Suðrænir
ávextir, lychee og gular perur
eru í fullkomnu jafnvægi við
áfengi með sæta fyllingu.
Þrúga: Petit Arvine. Land:
Sviss. Hérað: Valais.3.290 kr.
Marsipansorbet með eplasnjó,
kanilkexi og karamelluðum epl-
um.
Fyrir fjóra
Marsipansorbet (hráefni):
200 g sýrður rjómi
300 ml vatn
200 g sykur
50 g marsipan
Aðferð:
Sjóðið vatn og sykur saman.
Setjið í blandara ásamt marsip-
ani og blandið saman.
Setjið sýrðan rjóma saman við
og frystið.
Hrærið reglulega í blöndunni
meðan hún frýs.
Eplasnjór (hráefni):
1 l ferskur eplasafi af grænum
eplum
1 msk. sykur
1 msk. lime-safi
Aðferð:
Blandið öllu saman og frystið.
Hrærið reglulega í blöndunni
meðan hún frýs.
Kanilkex (hráefni):
1 bolli haframjöl
1 msk. hveiti
2 msk. hrásykur
1 tsk. kanill
3 msk. smjör, mjúkt
1 stk. eggjarauða
Aðferð:
Setjið allt saman í matvinnsluvél
og hrærið saman.
Smyrjið á bökunarplötu með
bökunarpappír og bakið við 180
í 5-10 mín.
Karamelluð epli (hráefni):
1 grænt epli, afhýtt og skorið í
teninga
1 msk. sykur
1 tsk. smjör
Aðferð:
Setjið sykur á pönnu og brúnið.
Setjið eplin á og veltið upp úr
karamellunni.
Bætið smjöri og smá vatni á
pönnuna og sjóðið saman.
EFTIRRÉTTUR
Marsipansorbet með eplasnjó,
kanilkexi og karamelluðum eplum
Steiktar kjúklingabringur með
grænum ertum, blómkáli og blóm-
kálssósu
Fyrir fjóra
Hráefni:
4 stk. kjúklingabringur
1 bolli frosnar ertur
¼ blómkálshaus, skorinn í knippi
1 stk. skalottlaukur, saxaður
1 stk. hvítlaukur, saxaður
1 msk. olía
250 ml mjólk
1 msk. smjör
½ bolli möndlur, afhýddar og
ristaðar
sítrónusafi
salt
Aðferð:
Sjóðið erturnar (takið til hliðar
nokkrar) í vatni í eina mínútu og
setjið í blandara og maukið. Bætið
svolitlu af vatni við ef þið viljið
þynnri áferð. Kryddið til með salti
og sítrónusafa.
Setjið olíu, skalottlauk, hvítlauk og
blómkál í pott og svitið. Bætið
mjólk við og sjóðið við vægan hita
þar til blómkálið er meyrt. Sigtið
mjólkina frá og setjið í pott,
smakkið til með salti og sítrónusafa
og þeytið smjörið saman við.
Steikið kjúklingabringuna á pönnu
og klárið inni í ofni þar til hún hef-
ur náð 70°C í kjarnhita. Berið fram
með ertumauki, steiktu blómkáli,
möndlum og blómkálssósu
AÐALRÉTTUR
Steiktar kjúklinga-
bringur með grænmeti
Elísabet Alba vínþjónn mælir
með Wolf Blass President
Selection Chardonnay 2005.
Sterkur ferskju- og mel-
ónuilmur færist út í gómsæta
suðræna ávexti með rjóma-
og smjöreinkenni í munni.
Bragðmikið og feitt vín með
ferska sýru sem fylgir löngu
eftirbragði. Þrúga: Char-
donnay. Land: Ástralía. Hér-
að: South Australia. 2.100 kr.
Tilbúin til afhendingar
Kynnum glæsilegar 58 feta snekkjur
hlaðnar aukahlutum
Volvo Penta vélar frá Svíþjóð og allur tækjabúnaður
frá þekktum framleiðendum
Hágæða framleiðsla
Fobverð 750.000 ¢
Nánari upplýsingar:
scandic@scandic.is – WWW.SCANDIC.IS