24 stundir - 17.05.2008, Blaðsíða 52

24 stundir - 17.05.2008, Blaðsíða 52
52 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 24stundir Einar Ágúst Tónlistarmaður. Ég hef nú komið víða við en hef kunnað best við mig í Haifa í Ísrael. Þar má nefnilega finna heimsmiðstöð bahá’í-trúarinnar og fallegustu, skipulögðustu og myndarlegustu garða og byggingar í heiminum. Það er staður sem endurspeglar án efa þá fegurð sem Guð vill sjá í heiminum. Haifa skiptist í þrjú hverfi á stöllum Karmel-fjalls og er stærsta hafnarborgin í Ísrael, í 300 m hæð yfir sjávarmáli og jafnframt eru tveir helgustu staðir bahá’í-trúarinnar, grafhýsi Bábsins og Bahá’u’lláh, staðsettir þar. Grafhýsi Bahá’u’lláh stendur reyndar aðeins fyrir utan Haifa, í Bahjí. Haifa er líka háskólaborg og er iðandi og skemmtilegt mannlíf þar. Gott er að setjast niður og snæða rétti frá þessum slóðum eins og hummus og hvað þetta allt heitir. Áhuga- verðir staðir þarna eru t.d. Parísartorgið og upplagt er að ganga eftir Shivat Zion-götu sem bugðast upp í Hadar Kakarmel-hverfið. Þar má finna listasafn í Bialikgötu, nánar tiltekið í ráðhúsinu, en þar eru deildir fyrir forna muni frá Egyptalandi, Rómaveldi og úr býsantískum moskum í Shiqmona ásamt alls konar öðrum listaverkum. Fyrir utan hvað þessi staður á eftir að skipta heiminn og mannkynið miklu máli í framtíðinni er þetta áhugaverð borg fyrir svo margar sakir og endalaust væri hægt að finna eitthvað áhugavert til að dunda sér við þarna fyrir utan að njóta kyrrðarinnar og fegurðarinnar sem augað grípur. Haifa endurspeglar fegurð Guðs Ein af mínum uppáhaldsborgum er Beirút í Líbanon en þangað fór ég í mjög eft- irminnilega ferð stuttu eftir 11. september 2001. Borgin er yndisleg og það var meiri- háttar að slaka á og næturlífið var mun fjöl- breyttara en ég gerði ráð fyrir. Það var hægt að gera næstum allt sem manni datt í hug og óhætt að segja að eitthvað væri í boði allan sólarhringinn og alla daga vikunnar. Maturinn á svæðinu var ómótstæðilegur enda var hægt að fá mat frá öllum heims- hornum. Ég hélt mig þó yfirleitt við mat frá þessu svæði en ég hef alltaf verið sérstaklega hrifinn af honum. Í atkitektúr borginnar tekst gamli tíminn á við þann nýja á mjög myndrænan hátt en þarna eru nýjar byggingar í bland við þær gömlu auk þess sem enn er hægt að finna rústir húsa sem fallið hafa á stríðsárunum. Íbúar borgarinnar eru einstaklega hjálp- samir og bjóða ferðamenn velkomna og það fannst mér sérstaklega mikilvægt á þessum tíma. Það eftirminnilegasta við borgina er án efa umferðarmenningin. Eina umferð- arreglan er sú að það eru engar reglur og ég mæli með borginni fyrir þá sem vilja upplifa spennu við stýrið. Jason Harden Tónlistarmaður. Engar umferðar- reglur í Beirút Ég þarf ekki að velta þessari spurningu lengi fyrir mér. Barcelona er tvímælalaust uppá- haldsborgin mín en ég bjó þar eitt sumar ár- ið 1997. Ég fór til borgarinnar ásamt góðri vinkonu minni og við áttum frábært sumar í góða veðrinu. Eitt það eftirminnilegasta við sumarið er fla- menco-námskeið sem við vinkonurnar fór- um á. Þar lærðum við að dansa þennan fal- lega spænska dans og höfðum mjög gaman af. Barcelona er ótrúlega falleg og skemmtileg borg. Þar kemur saman fólk frá öllum heimshornum og menningarlífið er alltaf mjög lifandi og skemmtilegt. Næturlífið býður líka upp á nánast endalausa mögu- leika. Arkitektúrinn er dásamlegur í borginni og hún er full af spennandi stöðum til að heim- sækja. Ég fór líka í heimsókn í fallegan strandbæ sem heitir Sitges. Bærinn var stutt frá borginni og því þægilegt að skreppa þangað. Ég stefni á aðra heimsókn til Barcelona í sumar og hlakka sérstaklega til þess að eyða góðum degi á Gaudi-safninu. Nína Björk Ljósmyndari. Lærði flamenco- dans í Barcelona Þó að sveitaháttur, bakpokar og geitaostur sé það fyrsta sem fólk hugsar þegar Noregur er nefndur er landið ekki það sveitalegt lengur. Þetta segi ég þó ekki til að afsaka það að Osló er uppáhaldsborgin mín. Norðmenn eru að vísu eingöngu fyrir Norðmenn en það er mjög skemmtilegt og lærdómsríkt að aðlag- ast þeim. Þeir eru komnir langt í kvik- myndagerð, eru rísandi í tónlistargeiranum og hafa mjög gott fjármálavit svo fáeinir kostir séu nefndir. Osló er tilvalin fyrir mig, þar þarf ég ekki bíl því sporvagna- og neðan- jarðarlestarkerfið er með eindæmum einfalt og aðgengilegt. Veturnir eru oft og tíðum kaldir eins og vetur eiga að vera og sumrin eru gullfalleg og heit. Það hentar líka mínu eðli mjög vel að sigla um Oslófjörðinn og slaka á þegar veður leyfir og einnig er afar auðvelt að sækja í skógivaxna náttúruna og baðstrendurnar góðu sem eru í hálf- maraþons fjarlægð frá miðbænum. Aker brygge er uppáhaldið mitt, enda á ég góðar minningar þaðan, því ég bjó um borð í snekkju þar við bryggju í tæpt ár. Osló er vinaleg, náttúrutengd, auðveld og skemmti- leg og því verð ég að segja að hún er uppá- halds heimsborgin mín. Kristjan K. Kvikmynda- gerðarmaður. Osló er vinaleg og skemmtileg borg Það vill svo skemmtilega til að ég er stödd í uppáhaldsborginni minni núna. Berlín er ein fallegasta borg sem ég hef heimsótt en ég bjó hér eina skólaönn í fyrra og stundaði skiptinám. Nú er ég hér í heimsókn til að slaka á eftir útskriftina úr LHÍ. Berlín er rosalega fjölbreytt og margt mis- munandi fólk hérna, og hún hefur, held ég, eitthvað fyrir alla. Það er svo mikil gróska hérna að það er bókstaflega allt í blóma í listalífinu þannig að þetta er tilvalin borg fyrir listamenn myndi ég segja. Hún er líka mjög ódýr sem er rosalega jákvætt fyrir týp- íska fátæka listamenn. Svo er náttúrlega æðislegt að fara í dýragarð- inn, þó að Knútur sé orðinn stór. Maturinn hér er ofboðslega góður og mjög auðvelt að nálgast heilsusamlegan mat sem er ágætt, þá borðar maður ekki kebab alla daga. Mér finnst skemmtilegast að fara í hjólatúra og njóta þess að skoða umhverfið og fólkið sem býr hér. Á 15 mínútum get ég hjólað framhjá dómkirkjunni og stóra sjónvarps- turninum sem er mitt uppáhaldskennileiti í heiminum. Hér er einnig úrval af börum, kaffihúsum og klúbbum. Lydía Grétarsdóttir Tónlistarkona. Heimsæki Knút í dýragarðinum Hver er uppáhalds- heimsborgin þín og af hverju? Íslendingar ferðast sífellt meira og hafa flestir heimsótt fjölmarg- ar borgir um allan heim. Borgirnar eru jafn ólíkar og þær eru margar en flestar eiga þær það þó sameiginlegt að vera mörgum sinnum stærri en höfuðborgin okkar. Hér segja nokkrir einstaklingar okkur frá uppháhaldsborginni sinni en þar er meðal annars sagt frá dansnámskeiði í Barcelona og umferðaröngþveiti í Beirút. Sitt sýnist hverjum um hvort betra er að vera í sólinni eða snjónum en flestir eru sammála um að uppáhaldsborgin hafi tekið vel á móti þeim. LÍFSSTÍLLSPJALLIÐ lifsstill@24stundir.is a Fyrir utan hvað þessi staður á eftir að skipta heim- inn og mannkynið miklu máli í framtíðinni er þetta áhugaverð borg fyrir svo margar sakir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.