24 stundir - 17.05.2008, Síða 58

24 stundir - 17.05.2008, Síða 58
EINKAFLUGMANNSNÁM ATVINNUFLUGMANNSNÁM FLUGKENNARANÁM 58 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 24stundir Strákabandið með hrukkurnar, New Kids on the Block, kom sam- an á ný í gær, í fyrsta skipti í fimmtán ár. Fluttu þeir smelli sína á borð við Right Stuff og Hangiń Tough, á Rockefeller Plaza í New York, þar sem hundr- uð áhorfenda komu saman af þessu „merkilega“ tilefni. „Ég held að sagan sjálf sé aðdá- endum okkar ofar í huga en nokkuð annað á þessari stundu,“ sagði hinn fyrrum sykursæti söngfugl sveitarinnar, Joey McIn- tyre, í geðshræringu. Einn þekkt- asti meðlimur sveitarinnar, Don- nie Wahlberg, sagði samheldni hópsins hafa komið þeim saman á ný. „Ef okkur kæmi ekki saman, þá hefði þetta ekki getað gerst,“ sagði Donnie, sem talinn er eiga heiðurinn af endurkomunni. Happ eða hörmung? Nú hefur verið tilkynnt að í bí- gerð sé framhald af myndinni Po- int Break frá árinu 1991. Myndin hefur hlotið bráðabrigðanafnið Point Break: Indo en leikstjóri og handritshöfundur verða þeir sömu og í fyrri myndinni. Mynd- in gerist 20 árum eftir atburði fyrri myndarinnar en ekki hefur verið gefið upp hverjir koma til með að leika í myndinni en ólík- legt er að Patrick Swayze end- urtaki hlutverk sitt. Brettin upp á nýjan leik Á fimmtudaginn var stigið stórt skref í réttindabaráttu samkyn- hneigðra í Bandaríkjunum en þá var ákveðið að leyfa hjónabönd samkynhneigðra í Kaliforníu. Spjallþáttastjórnandinn og grín- istinn Ellen DeGeneres tók þess- um tíðindum fagnandi og til- kynnti áhorfendum spjallþáttar síns, samdægurs, að hún og sam- býliskona hennar, Portia de Rossi, hyggðust nýta tækifærið og ganga í það heilaga. Ellen og Portia hafa verið saman frá árinu 2004 en þær þykja vera einkar samrýmdar og ham- ingjusamar. Ellen og Portia vilja gifta sig Eftir Viggó I. Jónasson viggo@24stundir.is „Of oft virkar myndin eins og venjulegur sjónvarpsþáttur sem er blásinn upp í fimmfalda stærð,“ svona lýsir kvikmyndarýnirinn Brian Lowry hjá Variety-kvik- myndaritinu upplifun sinni af Sex and the City kvikmyndinni. Myndin, sem skartar öllum fjór- um aðalleikkonunum úr hinum gríðarlega vinsælu sjónvarpsþátt- um, var frumsýnd í Bretlandi hinn 12. maí en verður frumsýnd 30. maí hér á landi. Í myndinni er haldið áfram að fylgja eftir lífi og ástarmálum Car- rie og vinkvenna hennar og sem fyrr er sagan sögð frá sjónarhorni Carrie, Söruh Jessicu Parker. Þrátt fyrir nokkuð gagnrýninn dóm Variety virðist lítið draga úr eftirvæntingu harðra aðdáenda þáttanna enda margir sem bíða spenntir eftir myndinni. Samrýmdar í Berlín Stöllurnar voru hæstánægðar þegar myndin var frumsýnd í Berlín á fimmtudaginn. Sex and the City bíómyndin þykir í meðallagi Eins og ofvaxinn sjónvarpsþáttur Hinn 30. maí mun kvik- myndin Sex and the City verða frumsýnd hér á landi. Mikil eftirvænting ríkir um myndina en gagnrýnandi Variety tel- ur hana miðlungsmynd. Boðskapurinn brýst í gegn En þrátt fyrir ýmsa annmarka á kvikmynd þessari verður ekki annað sagt en að hún hafi þau áhrif sem henni var ætlað. Hún er byggð á sannsögulegum atburð- um úr Íraksstríðinu og hefur feng- ið hörð viðbrögð hægrisinnaðra öfgahálfvita, sem segja hana and- ameríska og jaðra við landráð! Þó að undirritaður þekki ekki mikið til stríðs, er hann þó nokk- uð viss um að hér sé máluð nokk- uð raunsönn mynd af stríðinu í Írak. Kvikmyndir traustis@24stundir.is Brian De Palma hefur gert nokkrar bestu kvikmyndir sögunnar. Redacted telst þó seint til þeirra. Íraksstríðið er Víetnamstríð okkar kynslóðar. En þó að Redacted sé alls engin Platoon, Full Metal Jacket, eða Apocalypse Now, þá er hún samt ágætis vitnisburður um þær hörmungar sem eiga sér stað fyrir botni Miðjarðarhafs í þessum skrifuðu orðum. Leikin heimildarmynd Fylgst er með meðlimum banda- rískrar herdeildar sem sér um eftirlits- stöð í borginni Samarrah, þar sem hundruð óbreyttra borgara fara í gegn á degi hverjum, auk tilfallandi upp- reisnarmanna. Eins og verða vill geng- ur ýmislegt á í stríði og freistast tveir úr herdeildinni til þess að láta undan ann- arlegum kenndum sínum og fremja stríðsglæpi í skjóli myrkurs. Stíllinn þvælist fyrir Megnið af myndinni er séð í gegnum linsu upptökuvélar eins hermannsins, auk örygg- ismyndavéla, bloggsíðna og slíkra miðla er einkenna nútíma- samfélag. Sú tilraun til frumleika og ferskleika fellur þó um sjálfa sig, því að formið verður ansi leiðigjarnt til lengdar. Hermanna-steríótýpurnar eru líka aðeins of ýktar, þar sem ofleik er helst um að kenna, en þó má helst hrósa Patrick Carroll í hlut- verki sínu sem Reno Flake, því að einhvern veginn hefur maður á tilfinningunni að bandaríski her- inn sé fullur af slíkum hvíthysk- ishálfvitum. Duh? Reno Flake er ekki beittasti hnífurinn í skúffunni. Boðskapurinn ofar efninu 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a Of oft virkar myndin eins og venju- legur sjónvarpsþáttur sem er blásinn upp í fimmfalda stærð. Leikstjóri: Brian de Palma Leikarar: Kel O´Neill, Daniel Sherman, Patrick Carroll Redacted

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.