24 stundir - 17.05.2008, Blaðsíða 59
Flugskóli Íslands er stærsti og öflugasti flugskóli landsins með 17 flugvélar,
þyrlu og flughermi í rekstri og á næsta ári bætist B-757 flughermir í flotann.
Skólinn býður upp á allt nám sem þarfnast til að flugmaður geti hafið störf hjá
flugfélagi sem atvinnuflugmaður. Að auki sinnir skólinn tegundarþjálfunum og
endurmenntun fyrir flugmenn innlendra og erlendra flugfélaga.
WWW.FLUGSKOLI. IS
FLUGSKÓLI LANDSINS
STÆRSTI OG ÖFLUGASTI
ÁHAFNASAMSTARF
ÞYRLUNÁM
TEGUNDARÁRITANIR
Flugskól i Ís lands er hluti af og í e igu Tækniskólans, skóla atvinnul ífs ins
24stundir LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 59
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@24stundir.is
Söngkonan Bryndís Jakobsdóttir
sendi í gær frá sér sína fyrstu sóló-
plötu, sem ber einfaldlega nafnið
Dísa. Hún inniheldur 11 lög, en tvö
þeirra, Anniversary og Temptation,
eru þegar byrjuð að hljóma á öld-
um ljósvakans.
Sátt við útkomuna
„Ég er mjög ánægð með plötuna.
Ég á eflaust aldrei eftir að gera plötu
sem ég er 100% sátt við, því ef svo
væri, þá yrði enginn hvati til að gera
aðra. Og ég er þegar komin með
hugann við aðra plötu og get varla
beðið eftir að semja nýtt efni,“ segir
Dísa, sem eyddi útgáfudeginum á
afar alþýðlegan hátt, í vinnunni, en
hún segist ekki enn vera komin í
þann flokk að fara að árita plötur í
Kringlunni. „Nei, það er ennþá þó-
nokkuð langt í það held ég.“
Dramatískt listapopp
Dísa segir plötuna fjölbreytta og
dramatíska. „Já, það eru alls konar
stílar og straumar í gangi. Þetta er
svona dramatískt listapopp, enda
flest lögin samin að vetri til og því
er hún kannski svolítið
þung á köflum. En ég
reyndi þó að
leggja upp
með
smá fjölbreytni, því ég er ekki endi-
lega sammála því að plötur megi
bara innihalda eitt sánd, því þá
verður maður leiður strax á
sjöunda lagi,“ segir Dísa
sem fannst minna
mál en hún
hélt að
gera slíka plötu.
„Þetta einhvern veginn gerðist
bara. Allt í einu var hún tilbúin. Að
vísu seinkaði henni aðeins, því ég
var ekki alveg sátt við albúmið og
svona.
En ég fékk góða aðstoð frá Mar-
inó Thorlacius og er mjög sátt við
þetta allt saman.
Það sem kom mér kannski helst
á óvart var hversu mikið einfara-
djobb þetta er, þegar maður er ekki
í hljómsveit, en ég fékk annars góða
aðstoð frá frábæru fólki til að koma
þessu á laggirnar.“
Er stoltur af stelpunni
Faðir Dísu, Jakob Frímann
Magnússon, segist ekki hafa getað
gert betur sjálfur. „Þetta er mikill
gleðidagur og ég er meira en ham-
ingjusamur fyrir hennar hönd,
enda platan hreint frábær. Ég hefði
aldrei getað gert plötu í þessum
gæðaflokki á hennar aldri og hef
reyndar aldrei getað gert,“ sagði
Jakob og uppskar „æi en sætt af þér,
pabbi minn,“ frá dóttur sinni.
Dísa mun koma fram á tveimur
tónlistarhátíðum í sumar, á Svend-
borg festival í lok mánaðarins og
Spot festival í Árósum í júní.
Dísa með sína fyrstu sólóplötu
Dramatískt, fjöl-
breytt listapopp
All I love will brake me
Dísa tekur lagið á Iceland
Airwaves-hátíðinni.
➤ Dísa er fædd árið 1987 og erþví 21 árs.
➤ Hún er ekki bara tónlist-arkona, heldur hannar hún
meðal annars hálsmen.
➤ Hún lærði söng og var í tón-listarnámi í FÍH.
DÍSA
Dísa gaf út sína fyrstu
sólóplötu í gær. Hún er
dóttir Ragnhildar Gísla-
dóttur og Jakobs F.
Magnússonar og á því
ekki langt að sækja hæfi-
leikana.
Tölvuleikurinn Wii Fit hefur svo
sannarlega slegið í gegn um allan
heim en nú virðist sem Bandaríkja-
menn séu orðnir ósáttir við þenn-
an heilsusamlega leik og vilji jafn-
vel ganga svo langt að selja
viðvaranir á leikinn þar sem for-
eldrum er ráðlagt að leyfa ekki
börnum að spila hann. Meðal þess
sem leikurinn gerir er að mæla
BMI-þyngdarstuðul leikmanna,
eða Body Mass Index eins og það
nefnist á ensku, og það er einmitt
sá hluti leiksins sem Bandaríkja-
menn eru ósáttir við.
Eftir að leikurinn tjáði 10 ára
gamalli stúlku, sem er sögð vera
hraust og laus við alla aukaþyngd,
að hún væri feit hafa spjallborð
vestanhafs hreinlega logað. Mörg-
um þykir nóg að tískutímarit, kvik-
myndir og tónlistarmyndbönd
sendi þau skilaboð til ungra barna
að þau séu of feit en botninum er
náð þegar tölvuleikirnir gera það
líka.
Nú hefur Tam Fry, talsmaður
National Obesity Forum sem eru
bandarísk forvarnarsamtök gegn
offitu, lagt orð í belg og gagnrýnir
harðlega að BMI-stuðullinn sé
orðinn partur af tölvuleik.
„Ég er stórhneykslaður á því að
börnum sé sagt að þau séu feit. Ég
myndi hafa miklar áhyggjur af því
ef börn væru í þessum leik og held
að leikurinn ætti að hafa viðvaranir
til foreldra.“
Bandaríkjamenn ekki sáttir við Wii Fit
Barnið er ekkert feitt
Áhugamenn um fótbolta ættu
að leggja leið sína í Vetrargarð
Smáralindar á morgun þar sem fer
fram allsérstök keppni. Þar munu
nefnilega Úrvalsdeildarmenn karla
í fótbolta keppa um hver sé bestur í
því að halda bolta á lofti.
„Ég held að þetta sé í fyrsta skipti
á Íslandi sem svona keppni fer
fram,“ segir Heimir Karlsson
íþróttafréttamaður sem verður
kynnir. „Auk atvinnumannanna
keppa svo þrír aðrir fimir einstak-
lingar sem unnu sér þátttökurétt
með því að taka þátt í þessu í
Smáralindinni. Auk eins leyni-
gests.“
Heimir segir það ekkert endilega
tengjast að vera góður í að halda
bolta á lofti og vera góður að leika
knattspyrnu.
„Ég hef heyrt um stráka sem
hafa haldið boltanum á lofti um
2000 sinnum. Sumir gætu eflaust
haldið boltanum á lofti í einhverja
daga ef þeir þyrftu ekki að leggja sig
og borða inn á milli. Þess vegna eru
sett tímamörk. Keppendur fá bara
eina mínútu hver og svo teljum við
hversu oft þeir snerta boltann og
þeir mega ekki nota sömu snert-
inguna tvisvar. Þetta er keppni í
hraða, tækni og fimni.“
Keppnin hefst kl. 14:00 og
eru vegleg verðlaun.
Keppni í boltafimi í Smáralind í dag
Hraði, tækni og fimi