24 stundir - 06.06.2008, Side 2

24 stundir - 06.06.2008, Side 2
„Foreldrar verða að ganga úr skugga um það að börn þeirra séu örugg. Mót af þessum toga tilheyra ekki æskulýðsstarfsemi eða skóla og því væri æskilegast að foreldrar færu með börnum sínum á mótið,“ segir Steinunn. „Það eru ýmis dæmi þess að börn séu að heyja maraþon eða keppnir og fái að gista í skólanum til að vinna að fjáröflun fyrir ein- hverju, ferðalagi“ segir hún og bendir á að slíkt sé þá í samvinnu við foreldra og forráðamenn. HVAÐ VANTAR UPP Á? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á frettir@24stundir.is Eftir Ásu Baldursdóttur asab@24stundir.is „Börnin verða að komast að sam- komulagi við foreldra sína svo það þurfi ekki að sækja þau með valdi um miðja nótt,“ segir Guðberg K. Jónsson, verkefnastjóri SAFT, sam- félag, fjölskylda og tækni. Tölvuleikjamótið í Egilshöll er auglýst á heimasíðu mótshaldara en þar er tekið fram að „ … kepp- endum sé frjálst að sofa við sætið sitt“. Guðberg segir mjög óábyrgt af mótshöldurum að hvetja til þess að spilarar vaki alla nóttina. Ábyrgðin er foreldranna „Það er fyrst og fremst á ábyrgð foreldra að fylgjast með því hvað börn þeirra gera. Leyfisbréf móts- ins ætti þó að gilda um börn yngri en 18 ára,“ segir Steinunn Berg- mann, félagsráðgjafi hjá Barna- verndarstofu. „Við teljum það mjög mikilvægt að foreldrar kynni sér starfsemina og taki síðan meðvitaða ákvörðun um það hvort börnin fái leyfi til að fara,“ segir hún. „Þeim sem halda skemmtanir, sem börn eru líkleg til að sækja, ber að veita barnaverndaryfirvöldum tækifæri til að kynna sér starfsem- ina, áður en að þær hefjast,“ segir Steinunn. Hún nefnir að börn á aldrinum 13-16 ára hafi ekki leyfi til þess að vera á almannafæri eftir kl. 12 á miðnætti á sumartíma. Ekki æskulýðsstarfsemi „Það er foreldranna að sjá til þess að börnin fari að sofa á nótt- unni,“ segir hún. Tölvuleikja- mót í 52 tíma  Búist er við að um 350 manns taki þátt  Mótið er öllum opið Spilarar Algengast er að unglingsstrákar sæki tölvuleikjamót ➤ Mótið verður haldið í Egils-höll frá föstudegi yfir á sunnudag þar sem búist er við fjölda ungmenna. ➤ Upplýsingar um reglur ogleyfisbréf ætluð börnum yngri en 16 ára er að finna á síðunni www.lanmot.is. LAN-MÓTIÐ Í EGILSHÖLL STUTT ● Einn á ferð Það þótti tilefni til þess að ganga úr skugga um að fleiri bjarndýr gengju ekki laus í Skagafirði. Leitað var úr lofti á þyrlu Landhelgisgæslunnar í gær. Niðurstaðan var sú að lík- lega hefði umrætt bjarndýr ver- ið eitt á ferð. ● Leiðrétt Röng mynd birtist við viðtal við Salbjörgu Guð- mundsdóttur í sérblaði 24 stunda. Með henni stóð Myrra Leifsdóttir sem tengdist grein- inni ekki heldur er hún hönn- uður bókarinnar Konur eiga orðið sem styrkir verkefnið Þjóð gegn þunglyndi sem Sal- björg stjórnar. Beðist er vel- virðingar á mistökunum. 2 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2008 24stundir Nýjung Ómissandi með grillmatnum! H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA VÍÐA UM HEIM Algarve 26 Amsterdam 26 Alicante 22 Barcelona 23 Berlín 24 Las Palmas 23 Dublin 10 Frankfurt 24 Glasgow 15 Brussel 14 Hamborg 24 Helsinki 26 Kaupmannahöfn 22 London 20 Madrid 20 Mílanó 19 Montreal 14 Lúxemborg 16 New York 17 Nuuk 1 Orlando 24 Osló 27 Genf 16 París 20 Mallorca 21 Stokkhólmur 23 Þórshöfn 11 Austan og suðaustan 5-13 m/s og skýjað með köflum. Úrkomulítið síðdegis. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á norðaustanverðu landinu. VEÐRIÐ Í DAG 8 10 11 10 10 Allt að 18 stiga hiti Vaxandi suðaustanátt og fer að rigna S- og V- lands, víða 10-18 m/s síðdegis. Mun hægari vindur og þykknar upp á N- og A-landi. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast N-lands. VEÐRIÐ Á MORGUN 9 11 12 10 11 Fer að rigna Sjávar- og landbúnaðarráðherra og samgönguráðherra hafa áhygg- ur af háu eldsneytisverði. Einar K. Guðfinnsson segir á heimasíðu sinni: „Hækkun aðfanga þar með talið olíu mun hafa afleiðingar fyrir sjávarútveginn. Við þær aðstæður er ekki óeðlilegt að menn leiti allra leiða til þess að stuðla að verðlækk- unum og horfi til opinberrar skatt- lagningar. Þetta sé þó flókið vegna útblásturs og umhverfismála. Það verður líka dýrara að fljúga, ef flug- félög þurfa að kaupa losunarheim- ildir, eins ESB undirbýr, en búast má við undanþáguumsókn héðan vegna sérstöðu landsins. Kristján Möller, samgönguráðherra, vill jafna flutningskostnað og hann tel- ur GPS-tækni gefa möguleika á ólíkum gjöldum eftir því hvar og hvenær er ekið. „Meiri hækkanir þola menn ekki.“ beva@24stundir.is Ráðherrar hugsi yfir háu eldsneytisverði Vilja létta byrðarnar GPS Tæki í bílinn gefa möguleika Alls seldu 53 prósent sölustaða í Hafnarfirði, eða 10 af 19, ung- lingum úr 10. bekk tóbak í könn- un sem gerð var í vor á vegum forvarnarnefndar Hafnarfjarðar. Í fyrra seldu 29 prósent sölustaða unglingum tóbak. „Þetta var far- ið að ganga vel en þróunin nú er í öfuga átt. Flestir vissu að könnun yrði gerð nú í vor,“ segir Geir Bjarnason forvarnarfulltrúi. ibs Meirihluti selur unglingum tóbak Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. „Aðsóknin hing- að hefur aukist ár frá ári og nú stefnir í enn eitt metárið,“ segir Birna Mjöll Atla- dóttir sem rekur Ferðaþjónustuna í Breiðavík ásamt manni sínum. Nýlega fjölguðu þau herbergjum í gistihúsinu um ellefu svo að þar eru nú 24 her- bergi með baði og 10 herbergi með svefnpokaplássi, alls gisti- rými fyrir níutíu manns. Áætlar Birna að þau fjölgi herbergjum um annað eins innan tveggja ára. Aðspurð um áhrif Breiðavík- urmálsins á starfsemina segir Birna Mjöll það hafa fælt íslenska gesti frá staðnum. þkþ Bjart framundan í Breiðavík Atvinnulausir Svíar verða að sætta sig við störf annars staðar á Norð- urlöndum vilji þeir ekki að atvinnuleysisbætur þeirra verði lækkaðar. Þetta verða að öllum líkindum afleiðingar úrskurðar æðsta stjórnlaga- dómstóls Svíþjóðar, Regeringsrätten, frá því í gær, að því er greint er frá á fréttavefnum e24.se. Atvinnulaus smiður í Svíþjóð neitaði að sækja vinnu til Noregs. Í kjölfarið voru atvinnuleysisbætur hans lækk- aðar um 25 prósent. Málinu var áfrýjað til tveggja dómstiga sem bæði úrskurðuðu á sama veg og æðsti stjórnlagadómstóllinn, nefnilega að rétt hafi verið að lækka bæturnar. ibs Bótamissir vilji menn ekki utan Hæstiréttur sýknaði í gær tvo ein- staklinga sem ákærðir voru fyrir umboðssvik með því að hafa í ágúst 2006 misnotað aðgang sinn að gjaldeyrisviðskiptakerfi í net- banka Glitnis banka hf. Hinir ákærðu, sem dæmdir voru í 2 og 3 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands, höfðu keypt dollara fyrir evrur, selt þær og keypt doll- ara á ný. ibs Tveir sýknaðir í gjaldeyrismáli Verð á hráolíu á heimsmarkaði hefur verið að lækka. Hér á landi hefur eldsneytið víða hækkað í vik- unni um tvær krónur á lítrann. Magnús Ásgeirsson hjá N1 segir áhrif gengis miklu sterkari en áhrif heimsmarkaðsverðs, veiking krónu gagnvart dollar skýri hækkun nú. Magnús sér ekki tilefni til að lækka verð, þrátt fyrir töluverða lækkun á heimsmarkaði. Þótt verð á bensíni hafi lækkað vegna birgðastöðu í Bandaríkjunum, gangi slíkt fljótt til baka, að minnsta kosti til hálfs. Magnús telur engar horfur á að dísilverð lækki. Aukin eftirspurn og Ólympíuleikarnir í Kína eru meðal skýringa á dýrum dísil. Nú er tonn af dísil 110 dollurum dýr- ara en tonn af bensíni, fyrir ári var tonnið af bensíni 155 dollurum dýrara en dísillinn. Ég hef ekki trú á að þróunin snúist við,“ segir Magnús. beva@24stundir.is Lækkun á heimsmarkaði hefur ekki áhrif hér Dropinn dýr áfram Nýsjálenskir vísindamenn segjast vera á þröskuldi þess að koma í veg fyrir eina stærstu uppsprettu gróð- urhúsalofttegunda. Telja þeir sig hafa fundið erfðavísinn sem stýrir metangasmyndun í iðrum jórturdýra. Til stendur að nýta uppgötv- unina til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda. aij Tímamót í dýrarækt Gaslaus dýr SKONDIÐ

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.