24 stundir - 06.06.2008, Page 4

24 stundir - 06.06.2008, Page 4
NEYTENDAVAKTIN Þóknun vegna útborgana af gjaldeyrisreikningum í erlendum seðlum Viðskiptabanki Hlutfall af út- tektarupphæð Byr sparisjóður 0,0 % Spron 1,5 % Kaupþing 1,5 % Landsbankinn 1,5 % Glitnir 1,5 % 4 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2008 24stundir Á milli tvö og þrjú hundruð störf í fiskvinnslu tapast ef farið verður að öllu leyti eftir tillögum Haf- rannsóknastofnunar við ákvörðun aflamarka næsta fiskveiðiárs, að mati Arnars Sigurmundssonar, for- manns Samtaka fiskvinnslustöðva. „Jafnvel þó farið verði aðeins að tillögunum að hálfu leyti gæti störfum fækkað um 150-200. Það má ekki heldur gleyma því að þó aðeins vinni um 4000 manns í sjálfri fiskvinnslunni er gríðarlegur fjöldi fólks sem vinnur í kringum sjávarútveg, til dæmis í þjónustu- störfum, svo uppsagnir í fisk- vinnslu leiða til enn frekari fækk- unar starfa,“ segir hann. Þó telur Arnar að ekki verði eins mikið um hópuppsagnir á næsta fiskveiðiári og því sem er að ljúka. „Ég hugsa að fyrirtæki fækki frekar starfsmönnum með því að ráða fátt nýtt starfsfólk. Svo verður eitthvað um samruna fiskvinnslufyrirtækja eins og alltaf er undir svona kringumstæðum auk þess sem einhver leggja upp laupana.“ Munar um 150 þúsund tonnum Hafrannsóknastofnun leggur til að dregið verði úr veiðum á flest- um fisktegundum sem veiddar eru, svo sem þorski, ýsu, ufsa, karfa, grálúðu og síld. Séu þessar tillögur bornar saman við þann afla sem leyfilegur er á yf- irstandandi fiskveiðiári er Haf- rannsóknastofnun að leggja til á bilinu 100-150 þúsund tonna nið- urskurð í aflamarki á næsta ári. thorakristin@24stundir.is Formaður Samtaka fiskvinnslustöðva er uggandi yfir tillögum Hafró um hámarkskvóta á næsta fiskveiðiári Störfum í fiskvinnslu fækkar um allt að 300 ➤ Samkvæmt tölum Hagstof-unnar unnu 14200 manns við fiskveiðar og -vinnslu árið 1991. ➤ Á seinasta ári unnu um 7400manns við þessi störf. FÆKKUN Í SJÁVARÚTVEGI Fiskvinnsla Störfum fækkar ár frá ári. Eftir Björgu Evu Erlendsdóttur beva@24stundir.is Frumvarp heilbrigðisráðherra um sjúkratryggingar mætti andstöðu á Alþingi í vor og svo fór að því var frestað til hausts, þegar þing heldur áfram. Benedikt Jóhannesson var kosinn stjórnarformaður Sjúkra- trygginga í vetur, þótt ekki væru komin lög um stofnunina. Frumvarp um stofnunina var lagt fram á Alþingi skömmu fyrir þinglok. Benedikt vinnur nú að stofnun fyrirtækisins í trausti þess að lög verði samþykkt í haust. „Þetta verður mikið starf, það þarf að stjórna undirbúningi, skipuleggja starfsemina, gera fjár- hagsáætlanir og teikna skipurit,“ segir Benedikt, sem hitti starfsfólk TR á fundi í gær. „Það bjóst við að taka til starfa í nýrri stofnun, undir nýrri stjórn 1. september, nú er ljóst að svo verður ekki og það veldur óvissu,“ segir Benedikt. Þá stóð til að skilja sjúkratryggingar frá almannatryggingum og færa undir heilbrigðisráðuneyti. Töfin veldur því sjúkratryggðir leita áfram til Tryggingastofnunar sem bíður eftir því að losna við þann þátt starfseminnar. Stofnanirnar tvær verða í fyrstu undir sama þaki á Laugavegi við Hlemm en þegar fram líða stundir má búast við að leiðir skilji. Í fyrsta lagi í september Benedikt reiknar með því að starfsemi sjúkratrygginga fari vax- andi næstu ár, þegar stofnun fer að sjá um samninga við sjúkrastofn- anir um kaup á þjónustu. „Fjölgun starfsfólks verður lítil á þessu ári, hugsanlega verða ráðnir 3-5 starfs- menn í ár verði lögin samþykkt fyr- ir þingfrestun í september.“ Auglýst hefur verið eftir for- stjóra, en umsóknarfrestur um starfið hefur verið lengdur til 15. september. Stjórnarandstæðingar með Ögmund Jónasson fremstan í ætla að berjast gegn samþykkt lag- anna í sumar. Hann kallar stofn- unin sé verslunarmiðstöð í heil- brigðiskerfinu og telur hugmyndina byggða á mistökum frá öðrum löndum. Stjórnarformaður á fullu án stofnunar  Auglýst hefur verið eftir forstjóra Sjúkratryggingastofnunar  Lagafrumvarp um hana komst ekki í gegn á vorþingi  Stjórnarformaður reiknar með annasömu sumri Kvíðir engu Benedikt heldur ótrauður áfram undirbúningi og býst ekki við að vera stofn- unarlaus lengi. ➤ Um tvö hundruð mannsstarfa nú við Tryggingastofn- un ríkisins. ➤ Hluti verður hjá Sjúkratrygg-ingastofnun sem einnig mun annast saminga um kaup á þjónustu heilbrigðisstofnana. VERKEFNUM FJÖLGAR Eitt af húsum starfsstöðvar Landbúnaðarháskólans á Reykjum í Ölfusi er illa sprungið eftir skjálftahrinuna, að sögn Guðríðar Helgadóttur staðarhaldara. Ákveðið hefur verið að leyfa ekki starfsemi í húsinu þar til ástand þess hef- ur verið metið betur. Þá er bananahúsið, sem hýsir ban- anaplöntur skólans, illa farið en önnur hús virðast hafa sloppið. Býst Guðríður ekki við að þetta hafi áhrif á skóla- hald í vetur en óvíst sé með áhrifin á aðra starfsemi. þkþ Landbúnaðarháskólinn Skemmdur eftir skjálftana Fyrirsagnir norrænna dag- blaða af afdrifum hvítabjarn- arins sem felldur var í Skaga- firði hafa verið dramatískar. „Boðinn velkominn með kúlu“ var til dæmis fyrirsögn á vefútgáfu norska blaðsins Dagbladet. Umsagnir um fréttina á síðunni voru í gær á fjórða hundrað. Myndskeið um björninn er meðal þeirra sem mest hefur verið horft á á vefsíðu Aftonbladet í Svíþjóð. Hvítabjörninn Dramatískar fréttir erlendis Íslandspóstur hf. ber að mati Héraðsdóms Reykjavíkur skaða- bótaábyrgð á lík- amstjóni sem þá- verandi starfsmaður hlaut í slysi á lóð Íslandspóst haustið 2004. Starfsmaðurinn fótbrotnaði þeg- ar hann fór með fulla póstburðarkerru úr dreif- ingarmiðstöð póstsins. Kerran rann fram af hálfs metra háum palli og starfsmaðurinn á eftir. Handrið á pallinum hafði verið fjarlægt og mat dómurinn það svo að vinnuaðstæður hefðu ekki verið forsvaranlegar og Íslands- póstur beri því bótaábyrgð. þe Slys á lóð Íslandspósts Bótaskylda viðurkennd Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda. Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is Neytendasamtökin könnuðu kostnað viðskiptabanka vegna útborgana af gjaldeyrisreikningum í erlendum seðlum. Kom í ljós að einungis Byr sparisjóður tekur ekki sérstaka þóknun þegar viðskiptavinur tekur út gjaldeyri af eigin reikningi. Ekki er heimilt að vitna í þessa könnun í auglýsingum. Engin þóknun hjá Byr Halldór Oddsson

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.