24 stundir - 06.06.2008, Síða 17

24 stundir - 06.06.2008, Síða 17
24stundir FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2008 17 Fjöldi farþega í innanlandsflugi sem fóru um flugvelli Flugstoða ohf. fór í fyrsta sinn yfir eina milljón í fyrra eða í 1.005.036 miðað við 920.9881 árið 2006, að því er kemur fram í yf- irliti á fréttavef félagsins. „Hver farþegi er reyndar talinn tvisvar, við brottför og komu á ákvörðunarstað, þannig að fjöldinn er í raun hálf milljón,“ segir Hrafn- hildur Brynja Stefánsdóttir, upplýsinga- og kynningarfulltrúi Flugstoða. Umferð flugvéla í millilandaflugi um íslenska flugstjórnarsvæðið jókst einnig mikið í fyrra. Fjöldi flugvéla fór þá í fyrsta sinn yfir 100 þús- und en af þeim voru tveir þriðju hlutar í yf- irflugi. „Þær vélar voru á leið frá Evrópu til Bandaríkjanna og til baka sem höfðu enga við- komu á Íslandi,“ greinir Hrafnhildur frá. Í fyrra var fjöldinn rúmlega 105 þúsund en tæp 98 þúsund 2006. Á aðalfundi Flugstoða nú í vikunni sagði Róbert Marshall, aðstoðarmaður samgöngu- ráðherra, vaxandi teikn á lofti um að Reykja- víkurflugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni. Flugstoðir gætu í þeirri þróun tekið að sér lyk- ilhlutverk við að varpa ljósi á hvaða stefnu bæri að taka í málefnum flugvallarins. „Hér er fjöldi starfsfólks sem býr yfir mikilli þekkingu og er með áratugareynslu,“ bendir Hrafnhildur á. Á aðalfundinum kom fram að nokkur halli hefði verið á hefðbundnum rekstri í fyrra. Afkoma samsteypunnar var hins vegar sögð hafa verið jákvæð, einkum vegna hagnaðar af sölu eigna. ingibjorg@24stundir.is Innanlandsflug um flugvelli Flugstoða Farþegarnir í fyrsta sinn yfir 1 milljón Reykjavíkurflugvöllur Farþegum hefur fjölgað. 3.000 manns verður sagt upp og 67 flugvélum lagt sam- kvæmt niðurskurðaráætlun bandaríska flugfélagsins Continental Airlines sem kynnt var í gær. Gert er ráð fyrir að áætluninni ljúki fyrir lok næsta árs. Hjá félaginu, sem er fjórða stærsta flugfélag Bandaríkjanna, starfa nú um það bil 45 þúsund manns. Miklar hækkanir á eldsneyti og samdráttur í hagkerfum heimsins hafa komið illa nið- ur á rekstri flugfélaga sem hafa í kjölfarið neyðst til þess að grípa til niðurskurðar líkt og Continental. Áður en gengið var frá áætl- unum um sameiningu flug- félaganna Delta og Northwest fyrr á þessu ári var 3.000 starfsmönnum sagt upp störf- um hjá því fyrrnefnda. Þá hafa bæði flugfélögin United og American kynnt svipaðar nið- urskurðaráætlanir og Cont- inental kynnti í gær. ejg Continental Airlines Það kreppir að flugfélögum Eignarhaldsfélög sem eru hluthafar í Nýsi hafa selt 66% hlut í Sæblómi ehf., sem rekur útgerð og fiskvinnslu í Mar- okkó. Kaupandinn er BP-skip ehf. Halda seljendur 34% hlutafjárins, að sögn Hösk- uldar Ásgeirssonar, forstjóra Nýsis. Kaupunum fylgja fimm fisk- vinnslur í landi og ráðstöfun á 90.000 tonna árskvóta af mak- ríl og sardínu. Jafnframt skipta þrjú uppsjáv- arveiðiskip um eigendur en það eru skipin Carpe Diem (sem hét Álsey VE), Quo Vadis (sem var Örn KE) auk skipsins Que Sera Sera frá Skotlandi. þkþ Sæblóm ehf. selt Til BP-Skipa Ríkisaðstoð á Íslandi var árið 2006 0,18% af landsfram- leiðslu og er það í lægri kant- inum miðað við önnur EES- lönd samkvæmt nýrri athug- un Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Liechtenstein er langlægst með 0,03% en ríkisaðstoð í Noregi var á hinn bóginn 0,37% af landsframleiðslu. Í heild var ríkisaðstoð í ESB- ríkjunum ívið meiri, eða 0,42%, en í EFTA-ríkjunum, 0,36%. Samanburðurinn und- anskilur ríkisaðstoð til land- búnaðar og sjávarútvegs, þar sem það fellur ekki undir eft- irlitshlutverk ESA. aak Samanburður ESA Aðstoð lítil hér

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.