24 stundir - 06.06.2008, Side 26

24 stundir - 06.06.2008, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2008 24stundir Arsenal: Cesc Fabregas, Spánn Robin van Persie, Holland William Gallas, Frakkland Johan Djourou og Phillipe Senderos, Sviss Lukas Fabianski, Pólland Aston Villa: Wilfred Bouma, Holland Blackburn: Andre Ooijer, Holland Chelsea: Claude Makelele, Florent Malouda og Nicolas Anelka, Frakkland Paulo Ferreira, Ricardo Carvahlo og Jose Bosingwa, Portúgal Petr Cech, Tékkland Michael Ballack, Þýskaland Liverpool: Dirk Kuyt, Holland Fernando Torres, Alvaro Arbeloa, Xabi Alonso og Pepe Reina, Spánn Philipp Degen, Sviss Manchester City: Vedrun Corluka, Króatía Gelson Fernandes, Sviss Andreas Isaksson, Svíþjóð Georgios Samaras, Grikkland Manchester United: Cristiano Ronaldo og Nani, Portúgal Patrice Evra, Frakkland Edwin van der Sar, Holland Tomasz Kuszczak, Pólland Middlesbrough: Tuncay Sanli, Tyrkland Emmanuel Pogatetz, Austurríki Newcastle: Emre Belözoglu, Tyrkland David Rozehnal, Tékkland Portsmouth: Niko Kranjcar, Króatía Milan Baros, Tékkland Lassana Diarra, Frakkland Tottenham: Luka Modric, Króatía West Ham: Freddie Ljungberg, Svíþjóð Wigan: Mario Melchiot, Holland Andreas Granqvist, Svíþjóð ENSKIR ÚRVALSDEILDARLEIKMENN Á EM 2008 Ekkert lið frá Bretlandseyjum mun leika á Evrópumótinu að þessu sinni. Munar þar mest um lið Englendinga sem klúðraði þátt- tökuréttinum í síðasta leiknum í undanriðlinum á móti Króötum og kostaði það Steve McClaren starfið. Ófáir Íslendingar syrgja klúður Englendinga enda enska úrvals- deildin gífurlega vinsæl hjá mörg- um hér á landi og jaðrar við trúar- brögð hjá sumum. Það er þó óþarfi að örvænta því það er ljóst að þeir sem fylgjast með ensku deildinni munu verða varir við ansi mörg kunnuleg andlit á EM 2008. Hér til hliðar má sjá alla þá leik- menn sem spila í ensku úrvals- deildinni sem verða í sviðsljósinu í Sviss og Austurríki. Chelsea á flesta leikmenn eða átta talsins en alls eiga tólf úrvalsdeildarlið 35 leik- menn í keppninni. Það má segja að þessir kappar séu ákveðin sárabót fyrir þá sem sakna enska landsliðs- ins á mótinu. Gallas og Torres Fyrirliði Arsenal og markahæsti leik- maður Liverpool. Engin ástæða til að gráta fjarveru enska landsliðsins á EM Fulltrúar ensku úrvalsdeildarinnar Enska úrvalsdeildin skar- ar fram úr í vinsældum hjá íslenskum knatt- spyrnuáhugamönnum. Enska landsliðið er ekki með að þessu sinni en það verður þó enginn skortur á úrvalsdeild- arleikmönnum á EM. „Þetta verður gríðarlega erfitt. Miðjan og sóknin okkar er á heimsmælikvarða en ég held að vörnin sé of veik og þess vegna munum við ekki fara upp úr riðl- inum. Frakkar og Ítalir eru einfald- lega of sterkir frammi og svo má ekki gleyma því að við höfum þegar lent í erf- iðleikum með Rúmena í und- anriðlunum. Fólk í Hollandi hefur takmarkaða trú á Marco van Basten, þjálfara liðsins.“ Hollendingurinn Prince Rajcomar leikur í fremstu víglínu hjá Breiðabliki. Prince Rajcomar Holland „Ég vona að Ítalir fari ekki langt á þessu móti. Þeir yrðu alltof ánægðir með sjálfa sig, enda halda þeir að þeir séu bestir í öllu. Ég vona að þeir vinni aldrei stórmót aftur. En vissulega eru þeir með þokkalegt lið og ég spái því að þeir komist upp úr riðlinum, en detti út í 8 liða úrslitum. Luca Toni á eftir að vera drjúgur í framlínunni og eins verður gam- an að fylgjast með Fabio Quaglia- rella. Hann er mjög góður.“ Landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson, leikmaður Reggina á Ítalíu. Emil Hallfreðsson Ítalía „Það hefur verið mikill upp- gangur í rúmenskri knattspyrnu á undanförnum árum. Ég hef að sjálfsögðu góða tilfinningu fyrir mínum mönnum og ef þeir halda einbeitingu verða þeir okkur til sóma. Það verður þó erfitt að kom- ast upp úr þess- um riðli. Við eig- um marga góða leikmenn en ég held að það verði mikilvægt að Adrian Mutu og Christian Chivu eigi gott mót.“ Hinn rúmenski Florin Páun er yfirþjálfari Fimleikafélags Akureyrar. Florin Páun Rúmenía „Ég held að það verði erfitt fyrir þá að ná sömu stemningu í liðið og var á HM á þeirra eigin heima- velli. Ég hef samt ágætis tilfinn- ingu fyrir mótinu og Þjóð- verjarnir hafa sýnt að þeir eru með gott lið, eru farnir að spila meiri sókn- arbolta og byrj- aðir að keyra upp hraðann. Vænt- ingarnar heima fyrir eru jafnvel of miklar en það skiptir miklu máli að fyrirliðinn Ballack eigi gott mót.“ Ásgeir Sigurvinsson var um árabil einn besti leikmaðurinn í þýsku Bundesligunni. Ásgeir Sigurvinsson Þýskaland „Það eru margir á því að þetta sé lélegasta landslið sem við höfum átt í nokkur ár, en það hefur verið mikil uppstokkun í hópnum. Ég er þó bjartsýnn. Þjálfarinn, Leo Beenhakker, er góður og nýtur mikils trausts. Markmiðið er að komast upp úr riðlinum, sem er ekki sá sterkasti á mótinu, og allt meira en það er bónus. Lyk- ilmenn liðsins verða Maciej Zu- rawski og Ebi Smolarek og einnig Artur Boruc í markinu.“ Pólverjinn Tomasz Stolpa leikur með Grindavík í Landsbankadeildinni. Tomasz Stolpa Pólland „Þeir eru nú ekki með neitt sér- stak lið og þetta verður mjög erf- itt fyrir þá. Riðillinn er sterkur en þeir munu gera sér vonir um að geta komið á óvart á heima- velli með stuðn- ingi áhorfenda. Væntingarnar heima fyrir eru ekki miklar og öll hin liðin í riðl- inum munu van- meta þá. Mik- ilvægasti leikmaðurinn er Andreas Ivanschitz sem spilar með Panathinaikos á Grikk- landi.“ Helgi Kolviðsson spilaði með austurrísku liðunum Kärnten og Lustenau í mörg ár. Helgi Kolviðsson Austurríki „Það er mikil samheldni hjá kró- atísku þjóðinni og allir hafa trú á landsliðinu. Það er pressa á lið- inu, enda vann það England í tveimur leikjum í undankeppninni, en króatíska landsliðið er þekkt fyrir að leika best á móti stóru þjóðunum. Ég tel að við eig- um möguleika á því að fara alla leið, en þá má ekki gera nein mis- tök og heppnin þarf að vera með okkur. Luka Modric og Niko Kranjcar verða í lykilhlutverki.“ Króatíski bakvörðurinn Igor Bilokapic gekk til liðs við ÍA fyrir þetta tímabil. Igor Bilokapic Króatía B - RIÐILL Veðbankar heims velta millj- örðum á meðan EM stendur yfir, enda hægt að veðja á allt milli him- ins og jarðar sem tengist mótinu. 24 stundir könnuðu hvaða líkur hinir ýmsu veðbankar gefa og voru nær allir sammála um hvaða lið séu sigurstranglegust. Þjóðverjar, sem eru sigursælasta þjóð í sögu Evrópukeppninnar, eru taldir líklegastir til að standa uppi sem sigurvegarar. Skammt á eftir þeim koma Spánverjar, en þá er farið að lengja eftir titli enda 44 ár frá því að þeir urðu Evrópumeist- arar í fyrsta og eina sinn. Ítalía, Portúgal og Frakkland eru í sætum 3-5 hjá flestum, því næst koma Hollendingar og loks Króatar. Aldrei hefur verið eins lítil trú á gestgjöfum mótsins. Svisslend- ingar eru reyndar taldir eiga fjar- lægan möguleika á að fara alla leið, en enginn á von á því að Austur- ríkismenn komist einu sinni upp úr riðlinum sínum. Flestir veð- bankar eru tilbúnir að greiða þeim sem veðja á Austurríki hundraðfalt til baka ef þeir verða meistarar. Einnig er hægt að veðja á markakóng mótsins og eru Fern- ando Torres, Cristiano Ronaldo og Miroslav Klose efstir á listum veð- banka í þeim flokki. Veðbankar á einu máli um hvaða lið eru líklegust til að fara alla leið Þjóðverjar sigurstranglegastir Þýski foringinn Veðbankar spá því að Michael Ballack muni lyfta bikarnum. EM-SPÁ WILLIAM HILL Þýskaland 4/1 Spánn 5/1 Ítalía 13/2 Portúgal 7/1 Frakkland 8/1 Holland 12/1 Króatía 12/1 Tékkland 20/1 Rússland 22/1 Grikkland 22/1 Sviss 25/1 Tyrkland 40/1 Svíþjóð 40/1 Rúmenía 40/1 Pólland 66/1 Austurríki 100/1 „Það er búið að mynda gífurlega pressu á liðið í fjölmiðlum hérna. Þeir eiga bara að verða Evr- ópumeistarar, það er ekkert flóknara en það. Þeim finnst þeir eiga bestu leik- menn í heimi og allt annað en gullið er bara skandall í þeirra augum. Ég per- sónulega hef ekk- ert sérstaklega mikla trú á þeim. Frank Ribery verður mikilvægur og ég er alltaf að bíða eftir að Thierry Henry stígi upp.“ Ragnar Óskarsson hefur verið atvinnumað- ur í handbolta í Frakklandi til fjölda ára. Ragnar Óskarsson Frakkland C - RIÐILL

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.