24 stundir


24 stundir - 06.06.2008, Qupperneq 36

24 stundir - 06.06.2008, Qupperneq 36
36 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2008 24stundir Eftir Hauk Johnson haukurj@24stundir.is „Ég á ekki rafmagnsbíl sjálfur. Það eiga fáir. Ástæðan er líklega sú að þeir rafmagnsbílar sem eru í boði hér á landi eru annað hvort of dýrir eða ekki nægilega hentugir. Þeir komast flestir einungis upp í um 70 km hraða og ná bara 80 km akstri á hverri hleðslu. Og það er bara allt of lítið. En tæknin er fyrir hendi Árið 2000 voru sett lög í Kali- forníu um að öll bílafyrirtæki ættu að framleiða að minnsta kosti einn umhverfisvænan bíl. Öll helstu fyr- irtækin komu þá með rafmagnsbíla sem komust um 160 km á hleðsl- unni og náðu þjóðvegahraða. Lög- in voru seinna dregin til baka, meðal annars vegna þrýstings frá bifreiðafyrirtækjum, og bílarnir hurfu af markaðnum. Í dag er svo fjöldaframleiddur rafmagnssport- bíll sem heitir Tesla og hann kemst um 400 km á hverri hleðslu og nær allt að 220 km hraða á klukku- stund. Þetta er því vel hægt. Ég held að vandamálið sé að stóru bílaframleiðendurnir sjái sér ekki hag í þessari framleiðslu. Hvers vegna skyldu þeir fara út í þá dýru þróunar- og hönnunarvinnu sem fylgir því að búa til nýjan bíl sem myndi svo jafnvel minnka söluna á öðrum tegundum þeirra?“ Mikill sparnaður Birgir telur enga fyrirstöðu fyrir því að rafmagnsbílar nái útbreiðslu hérlendis. Ekki sé flókið að koma upp hleðslustöðvum við bensín- stöðvar og fjölbýlishús. Einnig geti sparnaðurinn verið mikill. „Ég held að það verði sparnað- urinn sem hvetji fólk til að fá sér rafmagnsbíl, frekar en umhverfis- sjónarmið. Við hugsum fyrst og fremst út frá buddunni. Og ég tel að rafmagnsbílarnir séu raunhæfur kostur, sérstaklega ef bensínverð heldur áfram að hækka. Ekki þarf sérstakar dælustöðvar, líkt og fyrir metan- og vetnisbíla. Bílana er hægt að hlaða víða, ekki bara heima, og ætti ekki að vera dýrt. T.d. er rafmagnskostnaðurinn ein- ungis um 18.000 krónur á meðalári fyrir einn indverskan bíl sem þegar er í boði hérlendis.“ Birgir bætir við að líklega vilji margir eiga bensínbíl áfram til langferða en telur þó að með breyttri skipulagningu geti raf- magnsbíllinn vel nýst til þeirra. Rafmagnsbílum hefur fjölgað hægar en margir vonuðust til Tæknin er nú þegar fyrir hendi Birgir Freyr Birgisson er mikill áhugamaður um rafmagnsbíla og hefur kynnt sér mögulegan innflutning og hvort slík- ar bifreiðir eru raunhæfur kostur fyrir íslenska neytendur. Niðurstaða hans er að þeir séu það og að þeir geti náð út- breiðslu hérlendis. Trúir á rafmagnið Birgir vonast til þess að sjá meira úrval af rafmagns- bílum á Íslandi síðar. ➤ Hægt er að láta breyta venju-legum bílum í rafmagnsbíla með tiltölulega einföldum hætti. ➤ Bílar með lithium-rafhlöðuhafa gefið besta raun og ná þeir um 80% hleðslu á 2 klst. ➤ Hleðslustandar gætu veriðmeð sama sniði og rafmagns- innstungur við hjólhýsa- stæði. RAFMAGNSBÍLAR „Ég hef alltaf keyrt Volvo. Ég byrjaði á gömlum sem var ’92 eða ’93 árgerð og er kominn á 2000 ár- gerð núna. Maður færir sig svona hægt og rólega upp á við. Ætli draumurinn sé því ekki bara að eignast einn beint úr kassanum,“ segir Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó úr hljómsveit- inni Veðurguðirnir, þegar hann er spurður um draumabílinn sinn. „S40 væri örugglega alveg málið. Ég sá einn helvíti flottan svartan í Brimborg um daginn og hann kæmi vel til greina. En aðalmálið er náttúrlega að komast á milli staða. En það er ekki verra að hann sé öruggur því ég ferðast mikið á milli Reykjavíkur og Selfoss og það er gott að bíllinn fari ekki í döðlur ef maður keyrir út af.“ Ingó segir að þrátt fyrir að hann hafi ekki sérstaka bíladellu hafi áhugi hans á bílum aukist jafnt og þétt með árunum. „Maður er far- inn að taka betur eftir flottum bíl- um. Ég er frekar gamaldags þegar kemur að bílum. Er frekar fyrir gamla klassíska bíla en einhverja svakalega sportbíla,“ segir hann og kveðst ágætlega fær þegar kemur að viðhaldi á bílnum. „Ég hef nú alveg skipt um dekk og olíu og þetta einfalda. En ef það kemur upp vesen með blöndunginn eða alternatorinn þá er málið orðið flóknara.“ Ingó hefur oftar en ekki þurft að keyra hljómsveitarrútu Veðurguð- anna en tvennum sögum fer af ár- angri hans undir stýri hennar. „Ég er yfirleitt látinn keyra vegna þess að hinir eru kannski búnir að fá sér tvo eða þrjá. En ég er búinn að klessa bílinn tvisvar. Ég veit ekki af hverju mér gengur svona illa að keyra rútuna. Kannski er ég bara ennþá á ballinu í huganum.“ bba Ingó vill umfram allt komast á leiðarenda, heill á húfi Volvo beint úr kassanum Á bílaverkstæði Heklu við Laugaveg hefur þeirri staðalímynd að bifvélavirkjar séu karlkyns verið skákað. Þar starfa nú fimm hressar stelpur og blaðamaður hitti þrjár þeirra fyrir. Var ekki annað að sjá en að þær gerðu mikið fyrir stemn- inguna á vinnustaðnum. Sigrún Agatha Árnadóttir segir að áhuginn hafi kviknað snemma. „Afi minn er bifvélavirki, átti verkstæði, og ég var alltaf þar um sjö ára aldur. Eiginlega í pössun.“ Stelpurnar segjast ekki vera neinar sérstakar pjattrófur, en vissulega fylgi vinnunni ákveðin óhreinindi. „Maður hefur alveg gleymt að þvo almennilega á sér hendurnar og svona,“ segir Helga Björg Skarp- héðinsdóttir. „Við förum samt stundum í fínu fötin líka, en við er- um kannski ekki alveg alltaf með gervineglur eða eitthvað slíkt.“ Stelpurnar þrjár eru allar að læra bifvélavirkjun og stefna þær Sigrún og Helga á útskrift á næsta ári. Sú þriðja, Stefanía Gunnarsdóttir, mun hins vegar ljúka sveinsprófi um helgina. Fínt að hafa strákana líka Segir hún að þær vinkonurnar fái enga sérmeðferð hjá strákun- um. „Okkur er bara sparkað út í djúpu laugina. En reynsluboltarnir eru fljótir að koma að hjálpa ef eitt- hvað er að.“ En þó þær geti stund- um nýtt sér hjálp frá körlunum geta þær líka ýmislegt sem þeir geta ekki. „Þeir þurfa okkur vegna litlu handanna. Þeir ná ekki á alla staði sjálfir.“ Þær segjast oft grínast með að þær muni stofna sitt eigið kvenna- verkstæði í framtíðinni, en telja ekki líklegt að svo fari. Enda ekki annað að sjá en að samstarf kynjanna sé stórgott á verkstæðinu. Og þær þurftu ekki að fara fram á að nein óviðeigandi dagatöl væru tekin niður þegar þær komu til vinnu. „Við hengdum bara upp okkar eigin plaköt með strákum.“ hj Fimm hressar stelpur á sama verkstæðinu Ekkert karlaveldi Hressar Stelpurnar njóta sín á verkstæðinu LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is a Ég held að það verði sparnaðurinn sem hvetji fólk til að fá sér rafmagns- bíl, frekar en umhverfissjónarmið. bílar Bandarískir bíla- framleiðendur eru nú í öngum sínum vegna frétta af dræmri sölu í síðasta mánuði. Þá gerð- ist það í fyrsta sinn í sögunni að Bandaríkjamenn keyptu fleiri as- íska bíla en innlenda og er ein helsta ástæða þess talin vera hækkandi eldsneytisverð og jafn- vel aukin umhverfisvitund. hj Asískir bílar seldust mest

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.