24 stundir - 06.06.2008, Blaðsíða 41
24stundir FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2008 41
Snillingarnir hjá EA Sports hafa
nýtt sér tölvuleikinn NBA Live 09
til að spá fyrir um úrslit úr-
slitarimmunnar á milli L.A. La-
kers og Boston Celtics. Sam-
kvæmt spekingum EA mun
Lakers sigra í einvíginu með því
að vinna fjóra leiki gegn þremur
hjá Boston. Sjöundi og síðasti
leikurinn mun enda 106-101, Los
Angeles Lakers í vil. vij
EA spáir Lakers
sigri í NBA
Mikils spennings gætir vegna
hins væntanlega Ghostbusters-
tölvuleiks. Nú hefur Ernie Hud-
son, leikari úr Ghostbusters-
myndunum, sagt að handritið
fyrir tölvuleikinn sé um 480 blað-
síður að lengd. Til samanburðar
má geta að handrit fyrir meðal-
kvikmynd er um 120-180 blaðsíð-
ur. Allir leikararnir sem komu við
sögu í Ghostbusters-myndunum
hafa staðfest þátttöku sína í
tölvuleiknum. vij
Draugabanar
gera sig klára
Nýjasti Metal Gear Solid-
leikurinn, Guns of the Patriots,
fær frábærar viðtökur hjá
leikjarýnum víða um heim.
Nýverið gaf japanska leikjaritið
Famitsu leiknum fullt hús stiga
en leikurinn er áttundi leik-
urinn til að fá fullt hús stiga
hjá blaðinu. Metal Gear Solid
4, Guns of the Patriots kemur
út á Íslandi 13. júní, eingöngu
fyrir Playstation 3-leikjatölv-
una. vij
Metal Gear með
fullt hús stiga
Tölvuleikir viggo@24stundir.is
Eflaust er einhvers staðar í heim-
inum, líklega í Danmörku, til spak-
mæli sem segir: „Allt verður betra ef
þú gerir það úr Lego.“ Það er að
minnsta kosti tilfellið með Lego In-
diana Jones: The Original Advent-
ures. Í þessum leik er sama form-
úlan og gerði Lego Star Wars-leikina
svo vinsæla nýtt til hins ýtrasta og
afraksturinn er leikur sem er bæði
heillandi og skemmtilegur.
Leikmenn spila sig í gegnum
söguþráð hinna þriggja klassísku
Indiana Jones-kvikmynda en leik-
urinn er allur í hinu ómótstæðilega
Lego-formi.
Hvort sem það er byrjunaratriðið
úr Raiders of the Lost Ark eða loka-
atriðið í Temple of Doom nær andi
Indiana Jones-myndanna að halda
sér vel og líkt og venjan er með
Lego-leikina er bætt við góðum
skammti af aulahúmor.
Í Lego Star Wars var hægt að velja
á milli gríðarlega margra mismun-
andi persóna en margar þeirra voru
vita gagnslausar. Í Lego Indiana
Jones hefur verið bætt úr þessu og
nú má segja að svo gott sem allar
persónurnar geri eitthvert gagn.
Kvenpersónur geta hoppað hærra
en karlpungarnir og sumar þeirra
geta meira að segja brotið gler með
öskrum sínum. Þær persónur sem
bera skóflur geta róið flekum og
grafið upp fjársjóði. Bókaormarnir
geta ráðið í myndletur og vélvirkjar,
gaurar sem halda á skiptilyklum,
geta lagað hvers konar vélbúnað.
Þessi aukni fjölbreytileiki í hæfi-
leikum persónanna gerir það að
verkum að maður fær það á tilfinn-
inguna að allar persónurnar séu
gagnlegar, hvort sem það er Indy
sjálfur, pabbi hans eða óþolandi
ljóskan úr Temple of Doom.
Lego Indiana Jones: The Original
Adventures er stórgóð viðbót í safn
hinna frábæru Lego-leikja.
Lego-Indy mun betri en nýjasta bíómyndin
Ótrúlega heillandi leikur Lego Indiana Jones nær að fanga anda mynd-
anna mun betur en nýjasta Hollywood-ruslið.
Grafík: 83% Ending: 80%
Spilun: 92% Hljóð: 86%
Lego Indiana Jones
NIÐURSTAÐA: 85%