24 stundir - 06.06.2008, Page 42

24 stundir - 06.06.2008, Page 42
Eftir Trausta S. Kristjánsson traustis@24stundir.is „Hugmyndin er að skapa svipaða stemningu og var í Þjóðleik- húskjallaranum í gamla daga, þeg- ar fólk dansaði tryllingslega uppi á hátölurunum, en gerði sitthvað fleira á bak við þá,“ segir Valli Sport, sem ásamt Sigga Hlö mun halda uppi stuðinu á Players í allt sumar, á svokölluðum „Boogie Nights“-kvöldum. Vaxnir einsog Dirk Diggler „Það er ákveðið þema sem verð- ur í gangi milli klukkan 10 og 1 all- ar helgar þar sem við Siggi Hlö munum skiptast á kvöldum. Spil- aðar verða vinsælustu dansblöðr- urnar frá áttunda, níunda og tí- unda áratugnum, fyrir fólk á sem breiðusti aldursbili,“ segir Valli, sem segir nafnið tilkomið frá diskótímabilinu, en ekki endilega kvikmyndinni góðu, þar sem þrí- fætlingurinn limafagri Dirk Digg- ler tryllti stúlkurnar. „Auðvitað erum við Siggi mjög vel vaxnir á alla kanta, frægir sturtuskelfar báðir, en það hefur ekkert með nafngiftina að gera,“ segir Valli og hlær. Áttræðir á árinu Þeir Valli Sport og Siggi Hlö fagna ýmsum stórafmælum á árinu, sem sannarlega er við- burðaríkt. „Ég varð fertugur um síðastliðna helgi og Siggi verður einnig fertug- ur á árinu. Við höfum auðvitað sameiginlegt áttræðisafmæli einn- ig, auk þess sem tíu ár eru liðin síðan þátturinn okkar gamli, Með hausverk um helgar, fór fyrst í loft- ið.“ En orðnir svona „gamlir“, fá þeir ekkert hausverk af hávaðanum sem fylgir slíkum kvöldum? „Við erum svo gamlir að við bíðum eftir því að vandamálið verði ekki haus- verkur um helgar, heldur hvernig hægðirnar eru um helgar!“ segir Valli blygðunarlaust. Siggi Hlö situr við grammófón- inn á föstudaginn, en Valli Sport pínir plötuspilarann á laugardags- kvöldið. Sturtuskelfar! Siggi Hlö og Valli Sport á góðri stund. Valli Sport og Siggi Hlö sýna gamla takta í sumar Með hausverk um helgar Félagarnir Valli Sport og Siggi Hlö munu skiptast á að þeyta skífum á Players í sumar. Þeir vonast til að endurvekja stemninguna frá Þjóðleikhúskjall- aranum í „den“. Mark Wahlberg Kemur fréttinni ekkert við. 42 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2008 24stundir Hlíðasmára 14 • 201 Kópavogur Opið mán - fös 11-18 og lau 11 - 17 Sendum frítt um land allt Ull sem ekki stingur Mikið úrval af ullar- og silkifatnaði NÁTTÚRULÆKNINGABÚÐIN ULL OG SILKI Hinn hrörlegi þungarokkari Ozzy Osbourne hefur fengið bóta- greiðslur frá Daily Star í Bret- landi, en blaðið hélt því fram að Ozzy hefði misst meðvitund tví- vegis, rétt áður en hann kynnti Brit-verðlaunin. Greinin bar nafnið „Furðusýning Ozzy“ og sagði þar að skipuleggj- endur verðlaunahátíðarinnar hefðu ætlað að fá annan kynni í stað Ozzy á síðustu stundu, þar sem heilsufar hans hefði ekki boðið upp á frekara framlag frá honum. Nú hefur Daily Star bakkað með þá frásögn og beðist afsökunar. „Greinin olli honum töluverðum vandkvæðum, niðurlægingu og streitu. Við erum því fegin þess- um maklegu málalokum,“ sagði lögfræðingur Ozzy Osbourne. tsk Ozzy Osbourne fær bætur Bókin Devil May Care, eða Satan stendur ekki á sama, eftir Sebast- ian Faulks, er þegar orðin sölu- hæsta innbundna bók Penguin- útgáfunnar, eftir aðeins fjóra daga í sölu. Bókin, sem fjallar um ævintýri njósnara hennar hátign- ar, James Bond, hefur þegar selst í tæpum 45.000 eintökum, en fyrri met eiga höfundar á borð við Tom Clancy og Nick Hornby, með rúmlega 11.000 bækur seldar á fjórum dögum. tsk Ný Bond-bók setur sölumet Nýr sjónvarpsþáttur sem sýndur verður í Bandaríkjunum í sumar, Swingtown, hefur þegar vakið miklar deilur, þó svo að enn sé ekki byrjað að sýna þáttinn. Swingtown verður á dagskrá CBS-stöðvarinnar og verða ást- arþríhyrningar, kynsvall, maka- skipti og notkun ólöglegra vímu- efna helstu þemu þáttanna, sem að vonum vekur reiði meðal margra góðborgara sem eiga ekki slíku að venjast nema síðla kvölds á kapalstöðvunum. tsk Swingtown hneykslar kannski heldur stelpuleg en ein- ungis samkvæmt huglægu mati karlkyns gagnrýnanda. Mörg laganna eru alveg jafn vel fallin fyrir karlsöngvara, en þess ber að geta að Dísa er ótrú- lega fær söngkona, líkt og móðir hennar, en í laginu Sincerity má vart á milli greina um hvora þeirra er að ræða, slík eru lík- indin í raddblænum. En í guð- anna bænum, kaupið þessa plötu. Tónlist traustis@24stundir.is Ný stjarna er fædd. Hún er köll- uð Dísa. Reyndar kom hún í heiminn fyrir 21 ári síðan, en hennar fyrsta sólóplata er fylli- lega samanburðarhæf við fæð- ingu: einstök, falleg og hugljúf. Frábær frumraun Bryndís Jakobsdóttir, eða Dísa, hefur í viðtölum sagt að Emil- íana Torrini sé hennar helsta tónlistarfyrirmynd. Því kemur lítið á óvart að sum lögin séu í anda þeirrar ítalsk-ættuðu. Hins- vegar skortir Dísu ekki frum- leika, þvert á móti. Þó að það sé þegar orðin gömul klisja þá fellur eplið sjald- an langt frá eikinni. Hæfileikar Dísu eru óumdeildir, en hvort það sé foreldrum hennar að þakka eða tilviljun einni þá er þessi fyrsta sólóplata hennar virkilega vel heppnuð. Hún verður aldrei tilgerðarleg, í mesta lagi háfleyg á köflum, en ávallt einlæg og frumleg í senn. Hún er passleg blanda af út- varpsvænu listapoppi og drama- tískum pælingum þar sem sumar melódíurnar eru hreint út sagt stórkostlegar. Frábær en ekki fullkomin Sé einhver galli á gjöf Njarðar er það helst að meiri slagkraft, rokk og ról vanti í sumar útsetn- ingarnar, til dæmis í lokakafla Back home og Ljáðu mér eyra, sem annars eru tvö af bestu lög- um plötunnar ásamt Sincerity og Temptation. Fyrir vikið er platan Frumraunin er sannkallaður Dísudraumur Dísa TÓNLIST Dísa „Flott frumraun með fallegum melódíum” Fjölskylda stúlkunnar sem talin er koma fram í kynlífsmyndbandinu með rapparanum R. Kelly, virðist skiptast í tvær fylkingar. Önnur telur að um ætt- ingja sinn sé að ræða, hin ekki. Stúlkan, sem ku hafa verið 13 ára gömul þegar myndbandið var gert, árið 1999, virðist ekki sjást nægilega vel á myndbandinu til þess að þekkjast án vafa. Því telja sumir ættingjar að ekki sé um viðkomandi stúlku að ræða. Þrátt fyrir það eru aðrir ættingjar stúlkunnar handvissir um að það sé einmitt hún sem kemur fram á mynd- bandinu. R. Kelly, sem er 41 árs, gæti átt yfir höfði sér 15 ára fangelsisdóm fyrir að hafa mök við stúlku undir lög- aldri, verði hann fundinn sekur. Bæði stúlkan sem um ræðir og R. Kelly hafa þráfaldlega neitað því að vera nokkuð viðriðin myndbandið, sem þó fannst í fórum Kellys. Þess ber að geta að vinsældir R. Kelly hafa aldrei verið minni, sem rekja má til málaferl- anna. Til dæmis hefur hans helsti smellur, I Believe I Can Fly, varla verið spilaður í Bandaríkjunum síðan mála- ferlin hófust. R. Kelly-málið heldur áfram FÓLK lifsstill@24stundir.is a Þó að það sé þegar orðin gömul klisja þá fellur eplið sjald- an langt frá eikinni. Hæfileikar Dísu eru óumdeildir, en hvort það sé foreldrum hennar að þakka eða tilviljun einni þá er þessi fyrsta sólóplata hennar virkilega vel heppnuð. poppmenning

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.