24 stundir - 19.06.2008, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 2008 24stundir
VÍÐA UM HEIM
Algarve 23
Amsterdam 17
Alicante 24
Barcelona 24
Berlín 29
Las Palmas 26
Dublin 16
Frankfurt 25
Glasgow 13
Brussel 24
Hamborg 18
Helsinki 13
Kaupmannahöfn 18
London 19
Madrid 24
Mílanó 18
Montreal 16
Lúxemborg 21
New York 22
Nuuk 7
Orlando 27
Osló 12
Genf 23
París 26
Mallorca 25
Stokkhólmur 19
Þórshöfn 8
Norðan- og norðaustanátt, víða 5-13 m/s.
Dálítil væta á NA- og A-landi og skúrir syðst á
landinu, annars bjartviðri.
Hiti 5 til 15 stig, hlýjast sunnanlands.
VEÐRIÐ Í DAG
8
8
3
6 7
Hlýjast sunnanlands
Norðaustan 5-10 m/s við norður- og austur-
ströndina, annars hægari vindur. Dálítil rign-
ing á NA- og A-landi en skýjað með köflum
sunnan og vestanlands og víða skúrir síðdeg-
is. Hiti 5 til 13 stig, hlýjast suðvestantil.
VEÐRIÐ Á MORGUN
8
10
4
7 7
Skúrir síðdegis
„Þetta er í skoðun, það er alveg
ljóst,“ segir Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra um það hvort til greina komi
að draga Ríkisútvarpið út af aug-
lýsingamarkaði. „Við munum fara
yfir málin í heild í tengslum við
boðuð fjölmiðlalög og þar með tal-
ið auglýsingahlutdeild Ríkisút-
varpsins.“
Sigurður Kári Kristjánsson, for-
maður menntamálanefndar Al-
þingis, segist fylgjandi því að dreg-
ið verði úr hlutdeild
Ríkisútvarpsins á auglýsingamark-
aði í tengslum við gerð nýrra fjöl-
miðlalaga. „Það er samdráttur á
auglýsingamarkaði og auglýsinga-
tekjur eru það sem frjálsir miðlar
treysta helst á. Samkeppnisstaða
þeirra gagnvart Ríkisútvarpinu er
nógu bjöguð fyrir.“
elias@24stundir.is
Hlutverk RÚV á auglýsingamarkaði
Vilja endurskoðun
„Við höfum hvatt alla til þess að klæðast bleiku,“ segir Halldóra
Traustadóttir, framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands, en í dag
er því fagnað að íslenskar konur, 40 ára og eldri, fengu kosningarétt 19.
júní 1915.
Farið verður í kvennasögugöngu undir leiðsögn Auðar Styrkársdóttur,
forstöðumanns Kvennasögusafns Íslands, en gangan hefst klukkan
16.15. Gengið verður frá Bríetarbrekku á horni Þingholtsstrætis og
Amtmannsstígs í Reykjavík. Klukkan 17.00 verður svo móttaka Kven-
réttindafélags Íslands, Kvenfélagasambands Íslands og Bandalags
kvenna í Reykjavík í samkomusal Hallveigarstaða. mh
Allir hvattir til að klæðast bleiku
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
Sendinefndir frá Persaflóaríkjun-
um Abu Dhabi og Katar eru stadd-
ar hérlendis til að kynna sér áhuga-
verða fjárfestingarkosti og möguleg
samstarfsverkefni við íslensk fyrir-
tæki.
Viðskiptasendinefndin frá Abu
Dhabi, sem tilheyrir Sameinuðu
arabísku furstadæmunum, kom
hingað til lands á vegum Útflutn-
ingsráðs á mánudag og mun dvelja
hér fram á föstudag. Í nefndinni
eru menn frá hinum ýmsu öngum
fyrirtækjasamsteypunnar Royal
Group, sem er í eigu emírsins af
Abu Dhabi.
Jarðhiti og sjávarútvegur
Að sögn Guðjóns Svanssonar,
forstöðumanns hjá Útflutnings-
ráði, er sendinefndin meðal annars
að kanna samstarfsmöguleika á
sviði jarðhita og sjávarútvegs. „Þeir
eru að skoða mögulegar fjárfest-
ingar og samstarfsverkefni við ís-
lensk fyrirtæki. Ferðin kemur í
framhaldi af ferð sem við fórum
með viðskiptasendinefnd í fylgd
með forseta Íslands í janúar til Abu
Dhabi og Katars. Það gæti alveg
komið eitthvað spennandi út úr
þessu.“
Sendinefndin er spenntust fyrir
jarðhitaverkefnum og mun því
meðal annars hitta útrásararma
opinberra orkufyrirtækja, Geysis
Green Energy og fulltrúa þriggja
stærstu bankanna til að kynna sér
þau. Þá átti hún fund með iðn-
aðarráðherra í gærmorgun. Sendi-
nefndin frá Katar kom hingað til
lands í gær. Heimsókn hennar er
framhald á opinberri heimsókn
forseta Íslands til Katars í janúar og
í tengslum við fundi sem Ólafur
Ragnar átti með þjóðhöfðingja
Katars í maí. Nefndin er meðal
annars skipuð fulltrúum fjárfest-
ingarstofnunar Katars auk þess
sem forstjóri Qatara Petroleum
International, helsta orkufyrirtækis
landsins, er með í för.
Þá er fulltrúi Quatar Foundation
hér einnig en sú stofnun hefur for-
ystu á sviði tækni, vísinda og
mennta í Katar. Hann mun meðal
annars ætla að kynna sér rann-
sóknir í líftækni meðan á dvölinni
stendur.
Mikill áhugi
frá Persaflóa
Fulltrúar frá Abu Dhabi og Katar skoða hér fjárfestingarkosti
Svartsengi Nefndin frá
Abu Dhabi skoðaði Hita-
veitu Suðurnesja í gær.
➤ Royal Group er viðskipta-samsteypa í eigu emírsins af
Abu Dhabi.
➤ Innan samsteypunnar eru um30 fyrirtæki sem starfa í
mörgum mismuandi geirum.
➤ Meðal verkefna Royal Grouper þróun eyjunnar Al Reem,
rétt utan við Abu Dhabi.
ROYAL GROUP
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Hæstiréttur hefur fellt úr gildi
gærsluvarðhaldsúrskurð yfir
frönskum manni sem hand-
tekinn var á kaffihúsi í
Reykjavík í síðustu viku. Mað-
urinn er grunaður um að hafa
dregið sér hátt í 22 milljónir
króna. Héraðsdómur úr-
skurðaði manninn í gæslu-
varðhald til 3. júlí, meðan yf-
irvöld fjalla um framsals-
beiðni. Hæstiréttur taldi
nægjanlegt að banna mann-
inum för úr landi til 3. júlí. þe
Farbann í stað
gæsluvarðhalds
Hæstiréttur
Um þúsund
manns sóttu um
nám við við-
skipta- og hag-
fræðideild Há-
skóla Íslands á
komandi hausti.
Aldrei hafa svo
margir sótt um
nám við deildina. Umsókn-
arfrestur rann út 5. júní síðastlið-
inn. Á fimmta hundrað manns
sóttu um nám í grunnnámi til
BS-náms. Að auki sóttu um 100
manns um BS-nám með vinnu.
Á fimmta hundrað manns sóttu
um nám við tíu mismunandi
meistaranámsleiðir, þar á meðal
MBA-nám og meistaranám í
markaðsfræði og alþjóða-
viðskiptum. mh
1000 manns
sóttu um nám
Ríkisstjórnin veitti í gær þrjár milljónir króna til vistakstursverkefnis
sem stjórnað er af Landvernd á fundi sínum. Geir H. Haarde forsætis-
ráðherra segir að með þessu vilji ríkisstjórnin leggja sitt af mörkum til
að draga úr útblástri og kostnaði vegna eldsneytis.
Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landverndar, segir verkefnið
vera samstarf Toyota, VÍS og Orkuseturs auk ríkisstjórnarinnar og
Landverndar. Hann segir verkefnið byggjast á því að starfsmönnum
fyrirtækja verði boðið upp á að æfa sig í vistakstri í sérstökum aksturs-
hermi. ejg
Þrjár milljónir í vistakstursverkefni
Hollenskt par á fimmtugsaldri
var í gær úrskurðað í gæslu-
varðhald í Héraðsdómi Reykja-
ness til mánudags eftir að 300
grömm af kókaíni fundust í fór-
um þeirra við komuna til lands-
ins. Tollgæslan á Keflavíkur-
flugvelli fann efnin í tösku
parsins. Þau voru að koma frá
Amsterdam. Lögreglan verst frek-
ari frétta af málinu. mh
Hollenskt par
með fíkniefni
„Það verður eingöngu framleitt
rafmagn með jarðgufu eða um 400
megavött ef áætlanir ganga eftir.
Það bendir allt til þess að það
markmið náist þar sem boranir
hafa gengið vel,“ segir Árni Gunn-
arsson, verkefnisstjóri hjá Lands-
virkjun og Þeistareykjum ehf. „Við
erum á áætlun, þó hefur Krafla
reynst okkur erfið eins og fyrri dag-
inn,“ segir hann.
Samkvæmt viljayfirlýsingu er
verið að kanna hagkvæmni þess að
framleiða allt að 400 MW fyrir ál-
ver á Bakka sem mun framleiða
250.000 tonn af áli ári. Vinna við
umhverfismat vegna álversins er
þegar hafin.
„Það er rífandi gangur á borun-
unum. Við höfum nýlokið við að
bora tvær holur í Bjarnarflagi og
það er verið að hefja framkvæmd í
þriðju holunni á norðurhluta
Kröflusvæðisins,“ segir hann. áb
Boranir vegna fyrirhugaðs álvers á Bakka
Jarðhitinn á að duga
Látinn maður náði endurkjöri
sem bæjarstjóri í þorpinu Voi-
nesti í Rúmeníu. Neculai
Ivascu gegndi embættinu frá
árinu 1990, en féll frá
skömmu eftir að kosningar
hófust. „Ég vissi að hann væri
dáinn, en ég vildi ekki sjá
breytingar,“ sagði íbúi þorps-
ins í sjónvarpsviðtali. Fram-
bjóðandinn í öðru sæti var
settur bæjarstjóri. aij
Íhaldssamir Rúmenar
Kjósa látinn
SKONDIÐ
Grill-leikur
me› s‡r›um rjóma!
Taktu þátt í grillleik MS og þú gætir
unnið glæsilegt Weber-grill eða
vandað grillsett. Kauptu dós af sýrðum
rjóma frá MS, farðu á www.ms.is, sláðu
inn lukkunúmerið sem er í lokinu og þú
færð strax að vita
hvort þú hefur
unnið.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8
-1
0
2
0