24 stundir - 03.07.2008, Page 6

24 stundir - 03.07.2008, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 24stundir Frábærir ferðafélagar Bækur í miklu úrvali Föndurdót fyrir litlu krílin Fræðandi leikföng Traustir ferðafélagar NÝ OG GLÆSILEG BÚÐ Í HOLTAGÖRÐUM Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Frjálslyndaflokks- ins í borgarstjórn Reykjavíkur var í minnihluta á fund- um menntaráðs og skipulagsráðs í gær. Á fund skipu- lagsráðs voru mættir þrír fulltrúar minnihlutans auk eins áheyrnarfulltrúa en aðeins tveir af fjórum fulltrú- um meirihlutans. Sama staða var í upphafi fundar hjá menntaráði en þriðji fulltrúi meirihlutans mætti eftir að fundur hófst. Hanna Birna Kristjánsdóttir formaður skipulags- ráðs segir að þetta eigi sér eðlilegar skýringar. „Við er- um komin fram í júlí og það eru margir í sumarleyfi auk þess sem boðuð voru forföll á síðustu stundu,“ segir hún og bætir við „Fundurinn var engu að síður löglegur og allt unnið í góðu samkomulagi eins og jafnan.“ Björk Vilhelmsdóttir fulltrúi minnihlutans í skipu- lagsráði, sem hefur setið sex ár í borgarstjórn, segist ekki muna eftir því að önnur eins staða hafi komið upp áður. „Mér finnst þessi meirihluti vera að sýna enn og aftur að hann er ekki starfshæfur,“ segir hún og bætir við: „Hann mannar ekki ráðsfundi. Skipulagsráð fer ekki í sumarleyfi, fyrr en eftir miðjan mánuðinn.“ elias@24stundir.is Minnihlutinn í borgarstjórn var í meirihluta í tveimur ráðum í gær Meirihlutinn var í minnihluta Eðlilegt Hanna Birna segir for- föll eiga sér eðli- legar skýringar. Eftir Ásu Baldursdóttur asab@24stundir.is „Vindorka gæti verið ákveðið svar, þá þyrfti kannski ekki að virkja eins stór fallvötn á Íslandi ef tilraunin gengur vel og hægt væri að virkja vind víðar,“ segir Haraldur Magn- ússon bóndi í Belgsholti í Mela- sveit. Haraldur byrjaði með veðurstöð árið 2003 og fékk hugmynd að vindmylluvirkjun í framhaldinu. „Ég hef bara alltaf hugsað um vindinn, að við gætum notað hann eitthvað,“ segir Haraldur. Stærri vindmyllan Vindmyllan sem hann hyggst fá í verkefnið er framleidd í Svíþjóð og er 45 kílówött. „Það reiknast til að framleiðslan verði á bilinu 120-140 þúsund kílówattstundir á ári mið- að við sex metra meðalvind,“ segir Haraldur og bætir við að það sé háð hversu mikið logn er á tíma- bilinu. „Ef það er mjög mikill vind- ur sem fer yfir 22 metra í með- alvind þá slær vindmyllan út og stöðvar sig,“ segir hann. Tilraunaverkefni Verkefnið er tilraunaverkefni Haralds og Orkusetursins á Akur- eyri. „Það er að sjálfsögðu hag- kvæmast að nota rafmagnið til einkanota, en orkufyrirtækin munu borga fyrir þá aukaorku sem fer út á dreifikerfið,“ segir hann. Hann telur að hagkvæmnin liggi í því að vera með vindmylluna sem næst einkanotkun en annars væri betra að vera með stærri myllur. „Við munum mæla hversu mik- ið rafmagn fer út á dreifikerfið þeg- ar ég nota ekki allt rafmagnið sem hún framleiðir sjálf,“ segir hann. „Ég er búin að ganga með verk- efnið í maganum töluvert lengi, sérstaklega vegna veðurathugana og Orkusetrið sýndi þessu mikinn áhuga,“ segir hann og bætir við að fleiri styrkjendur séu velkomnir að koma að tilrauninni. Hagkvæmni kemur í ljós Haraldur kaupir stöðina sjálfur en með samstarfinu verða upplýs- ingar um vindmyllutilraunina gerðar aðgengilegar fyrir orkufyr- irtæki. „Svo kemur það í ljós hversu hagkvæmt þetta verður,“ segir Haraldur. Vindorka hefur verið flokkuð sem ótrygg orka því ekki er hægt að tryggja að það fari alltaf jafnmikið rafmagn inn á dreifikerfið. „Ég nota mismikið rafmagn sjálfur og því er óljóst hversu mikil umfram framleiðsla verður,“ segir hann. Smærri gerðin Smærri gerðin af vindmyllu sem er 11, kw stöð hefur vottun allra Evrópustaðla. „Nú bíðum við bara eftir tilskildum leyfum og verkefn- ið fer vonandi á fullt með haust- inu,“ segir Haraldur og bætir við að mikil sala hafi verið í smærri gerðinni af vindmyllunni. „Hún er ætluð fyrir smærri býli, en það má benda á að rafmagn er dýrt í Evr- ópu,“ segir hann. Haraldur hefur nú þegar farið út til að skoða vindmylluna og er bjartsýnn á að tilraunin muni heppnast vel. „Þetta verður stór- skemmtileg og áhugaverð tilraun,“ segir hann og bætir við að tilraunin muni veita hagnýtar upplýsingar fyrir orkufyrirtæki. Smærri vindmylla Þessi er smærri en Haraldur setur upp í haust. Vindorka svar við fallvötnum  Haraldur Magnússon bóndi hyggst virkja vind í tilraunaskyni  Ótrygg orka sem hagkvæmust væri til einkanota að hans mati ➤ Verkefnið hlaut styrk fráOrkusjóði árið 2008 en Sig- urður Ingi hjá Orkusetrinu á Akureyri fann hentuga vind- myllu fyrir verkefnið. ➤ Vindmyllan er framleidd í Sví-þjóð og er 45 kw. Fyrirtækið sem selur vindmylluna er um þessar mundir að sækja eftir vottun Evrópusambandsins en hefur nú þegar fengið 11 kílówatta vindmyllur sam- þykktar. ➤ Rarik og Orkusalan eru búinað gefa vilyrði fyrir því að stöðin tengist dreifikerfinu miðað við að hún uppfylli ákveðna staðla og kröfur. RAFMAGNSFRAMLEIÐSLA

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.