24 stundir - 03.07.2008, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 24stundir
Nýlega var endurnýjuð viljayfir-
lýsing um álver á Bakka milli
sveitarfélagsins Norðurþings, iðn-
aðarráðuneytisins og Alcoa. Íbúar
í Þingeyjarsýslum meta það mikils
að iðnaðarráðherra hafi með und-
irskrift aukið verulega líkur á að af
framkvæmdum verði og hundruð
starfa verði til hér á svæðinu.
Reikna má með að bara þær orku-
og umhverfisrannsóknir sem nú
verður ráðist í muni skapa hér tugi
góðra starfa.
Mikil samstaða er um það í
Þingeyjarsýslum að nýta orkulind-
ir svæðisins til uppbyggingar í
Þingeyjarsýslum. Uppbygging ál-
versins mun ekki einungis hafa í
för með sér að minnsta kosti 300
störf í álverinu og hundruð
tengdra og afleiddra starfa, heldur
verða byggðar í það minnsta þrjár
jarðvarmavirkjanir í Bjarnaflagi,
við Kröflu og á Þeistareykjum.
Þingeyingar hafa góða reynslu af
rekstri Kröfluvirkjunar en hún var
byggð árið 1977 og var fyrsta alvö-
rujarðvarmavirkjun okkar Íslend-
inga. Síðan þá hefur hún verið
akkeri í atvinnumálum Mývetn-
inga. Virkjunin hefur í áratugi
tryggt vel launuð störf sem skortur
hefur verið á á svæðinu. Þjónusta
við virkjunina hefur reynst iðnfyr-
irtækjum á Húsavík uppspretta
stöðugra og góðra verkefna í gegn-
um árin. Það að bæta við þremur
virkjunum sem hver um sig eru
tvöfalt stærri en núverandi Krafla
mun styrkja atvinnulíf í Þingeyj-
arsýslum og þá sérstaklega í Mý-
vatnssveit. Loksins sjáum við fram
á að skarðið sem lokun Kísiliðj-
unnar skildi eftir verði fyllt.
Mun gjörbylta rekstri sveitar-
félagsins
Álverið á Bakka mun gjörbreyta
rekstri sveitarfélagsins Norður-
þings með því að tekjur af fast-
eignagjöldum og hafnarstarfsemi
aukast. Einnig má búast við veru-
legri aukningu á útsvarstekjum
vegna fjölda þeirra vel borgandi
starfa sem verða til með tilkomu
álversins. Þá hækka fasteignir í
verði og framkvæmdageta íbú-
anna eykst. Geta sveitarfélagsins
til að þjónusta íbúana mun aukast
og sveitarfélagið verður ekki leng-
ur háð framlögum úr jöfnunar-
sjóði. Auðvitað vilja íbúar í Norð-
urþingi að tekjur þeirra séu það
háar að sveitarfélagið þurfi ekki á
sérstökum tekjuuppbótum að
halda frá hinu opinbera. Við vilj-
um frekar vera greiðendur en
þiggjendur.
Munum draga ungt fólk til
starfa
Álver er mikil fjárfesting og
veitir traustan grunn í atvinnu-
málum sem hægt er að treysta á til
framtíðar. Hér hefur undanfarin
ár átt sér stað merkileg uppbygg-
ing í ferðamannaiðnaðinum sem
verið hefur sveitarfélaginu mikil-
væg í samdrætti í sjávarútvegi og
landbúnaði. Því miður mun ferða-
mennska þó ávallt vera árstíða-
bundin og sveiflubundin vertíð á
Íslandi. Hún er mjög góð og kær-
komin viðbót við efnahag lands-
fjórðungsins en verður seint hans
meginstoð. Samkvæmt fréttum
Stöðvar 2 nýverið þyrfti ferða-
mönnum að fjölga um hálfa millj-
ón bara á þessu ári til að jafna
tekjuaukningu þjóðarbúsins vegna
aukinnar álframleiðslu á árinu.
Fyrir Þingeyinga er nýting ork-
unnar á háhitasvæðunum lykill að
endurreisn svæðisins. Með þeirri
uppbyggingu sem álvers- og virkj-
anaframkvæmdum fylgir munum
við draga ungt fólk til starfa og
efla samfélagið til dáða. Þingey-
ingar munu ekki hvika frá þeirri
stefnu að nýta þingeyskar orku-
auðlindir til að byggja samfélagið
upp til framtíðar.
Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins
og óháðra í Norðurþingi
Nýtum orkulindirnar
í Þingeyjarsýslum
UMRÆÐAN aJón Helgi Björnsson
Fyrir Þing-
eyinga er
nýting ork-
unnar á há-
hitasvæð-
unum lykill
að end-
urreisn svæð-
isins. Með þeirri upp-
byggingu sem álvers- og
virkjanaframkvæmdum
fylgir munum við draga
ungt fólk til starfa og efla
samfélagið til dáða.
Formaður velferðarráðs, Jórunn
Frímannsdóttir, grípur til óhefð-
bundinna leiða þegar hún fær
sviðsstjóra velferðarsviðs með sér í
pólitískan slag en þær hafa nú þeg-
ar skrifað saman tvær greinar um
búsetuúrræði með félagslegum
stuðningi. Aðra í Morgunblaðinu
og hina í 24 stundum. Það var Jór-
unn sem réði Stellu Víðisdóttur á
sínum tíma til vinnu en þar átti að
ráða sviðsstjóra en ekki pólitíska
aðstoðarkonu. Um þetta virðist þó
vera álitamál því þær stöllur tjá sig
nú einni röddu um hápólitískt mál,
röddu Sjálfstæðisflokksins. Áður
hafði Stella reyndar tekið af öll tví-
mæli um skoðanir sínar þegar hún
sagði í bréfi til innri endurskoð-
anda Reykjavíkurborgar að „í þessu
samhengi var jafnframt litið til þess
að með því að leita til þessa sam-
starfsaðila er velferðarsvið að styðja
við þróun og samkeppni á markaði
í félags- og heilbrigðisþjónustu“.
Þessi fullyrðing er reyndar undar-
leg því Stella hefur ekkert umboð
til að markaðssetja velferðarkerfið í
Reykjavík. Slíka stefnu verður að
sjálfsögðu að marka í borgarstjórn
og það er mikill vafi á að hún yrði
samþykkt þar. Það er vont þegar
embættismenn taka þátt í pólitík-
inni á þennan hátt og sviðsstjóri
velferðarsviðs hefur með því stillt
sér upp við hlið verkefnastjóra
miðborgar.
Pirringur
Það virðist fara ósegjanlega í
taugarnar á Jórunni Ósk Frímanns-
dóttur að fá ekki að dunda sér við
einkavæðingu velferðakerfis
Reykjavíkurborgar í friði. Þannig
lét hún hafa eftir sér í Fréttablaðinu
fyrir stuttu: „Mér finnst ótrúlegt
þetta endalausa hjakk sem á ekki
við nein rök að styðjast,“ og inn á
mjög athyglivert blogg Jóns Stein-
ars Ragnarssonar, sem hefur farið
eins og eldur um sinu netheima
(http://prakkarinn.blog.is/blog/
prakkarinn/entry/576312/, þar
voru komnar inn 76 athugasemdir
þegar ég leit við), setur Jórunn inn
langa athugasemd og segir meðal
annars: „Hvers konar umræður eru
þetta [?] … Sennilega er Sjálfstæð-
isflokkurinn einfaldlega að gera of
góða hluti í velferðarmálum, sem
fari fyrir brjóstið á vinstrimönn-
um.“ Jórunn er í ham og ætlar ekki
að missa af lestinni aftur. Það er
engu líkara en að á hana sé nú
runnið einhvers konar einkavæð-
ingaræði en það er „þetta enda-
lausa hjakk“ sem skapraunar for-
manni velferðarráðs. Hún lendir í
vandræðum með hvert málið á fæt-
ur öðru. Meirihlutinn er ekki
tryggur, málin eru illa undirbúin
og annarlegur tilgangur blasir við. Í
þrígang hefur tillaga hennar um út-
boð á þjónustusíma verið frestað
en þar ætla frjálshyggjumennirnir
að skjóta rótum einkavæðingar í
framtíðarþjónustu fyrir aldraða og
fatlaða. Að sama skapi var tillögu
Jórunnar um einkarekstur Drop-
laugarstaða frestað fram á haust.
Útboðið á búseturúrræði fyrir fíkla
er orðið mikið vandræðamál og
trúverðugleiki formanns velferðar-
ráðs hefur borið skaða. Tekið var
mun hærra tilboði með rökum sem
ekki halda vatni því enginn efast
um að SÁÁ er faglega betur í stakk
búið til að sinna fíklum á borð við
þá sem voru í Byrginu en fyrirtæki
sem enga reynslu hefur af slíku.
Græðgi
Staðreyndin er sú að í gegnum
tíðina hafa fjölmörg almannasam-
tök gert samninga við Reykjavík-
urborg um ýmiss konar rekstur.
Þar á meðal eru sjúklingasamtök,
mörg hver innan Öryrkjabanda-
lagsins, líknarfélög eins og Tak-
markið og Konan sem reka áfanga-
hús, félög sem beita sér fyrir
mannréttindum svo sem Stígamót
og Kvennaathvarfið og svo mætti
áfram telja. Það sem þessi samtök
og félög eiga sameiginlegt er að allt
þeirra starf beinist að einu ákveðnu
markmiði, þau fara ekki á markað
og þurfa ekki að skila eigendum
arð. Uppbyggingin er einföld: fé-
lagar, stjórn og starfsmenn. Æðsta
vald allra þessara félaga er aðal-
fundur þar sem allir skráðir félagar
hafa rétt á að kjósa sér stjórn. Í stað
þess að eiga heimtingu á hlutafé
þurfa þeir að greiða félagagjöld og
leggja þeir margir hverjir á sig
ómælda sjálfboðavinnu því þarna
er hugsjónafólk á ferð. Sjálfsagt er
þetta ein meginástæðan fyrir því að
velferðarsvið er ekki útboðsskylt
þegar um þessi mál er að ræða. Svo
ætti í það minnsta að vera en að
sjálfsögðu er ekki samið við aðra en
þá sem hafa sannað sig og eftirlit,
aðhaldsemi og gagnsæi á að vera í
fyrirrúmi. Vörn Jórunnar og Stellu
í Heilsuverndarstöðvarmálinu, sem
byggir á því að málið hafi ekki verið
útboðsskylt, er afkáraleg. Það hlýt-
ur í öllum tilfellum að vera skylda
þeirra sem fara með opinbert fé að
gæta þess að vel sé með það farið og
hagsmunum þjónustuþega sé sem
best gætt. Hins vegar ætti það að
vera því hugsjónafólki sem starfað
hefur með Reykjavíkurborg að
brýnum málum áhyggjuefni að
þeir sem ráða velferðarmálum í
Reykjavík í dag skuli líta á það sem
verkefni sitt „að styðja við þróun og
samkeppni á markaði í félags- og
heilbrigðisþjónustu“. Þessi yfirlýs-
ing segir aðeins það að stjórnmála-
fólk sem ekki gerir greinarmun á
pólitík og viðskiptum hefur nú
kortlagt velferðarkerfið og ákveðið
að sækja þangað verkefni fyrir
einkaaðila til að græða á.
Höfundur er borgarfulltrúi VG
Útboð á fíklum
og fleira arðvænlegt
Vörn Jór-
unnar og
Stellu í
Heilsuvernd-
arstöðv-
armálinu,
sem byggir á því að málið
hafi ekki verið útboðs-
skylt, er afkáraleg.
UMRÆÐAN aÞorleifur Gunnlaugsson
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á vikuferðum til Barcelona í
júlí og ágúst. Barcelona er einstök perla sem Íslendingar
hafa tekið ástfóstri við. Frábært mannlíf og óendanleg
fjölbreytni í menningu og afþreyingu að ógleymdu úrvali
fjölbreyttra verslana í borginni.
Gríptu þetta frábæra tækifæri -
takmörkuð gisting og sæta-
fjöldi í boði!
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Barcelona
í júlí og ágúst
Frá aðeins
kr. 29.990
Glæsileg gisting í boði!
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 29.990
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með
sköttum. Sértilboð 25. júlí, 1. og 8. ágúst.
Verð kr. 59.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á
Hotel Confortel Barcelona Hotel Rivoli
Ramblas + í 7 nætur með morgunverði, 25.
júlí.
Verð kr. 69.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á
Hotel Rivoli Ramblas + í 7 nætur með
morgunverði. Sértilboð 1. og 8. ágúst.