24 stundir - 03.07.2008, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 24stundir
Fjöldi þjóða sendir keppendur
til þátttöku á fyrsta heims-
meistaramótinu í íslenskri
glímu, sem fram fer í Dan-
mörku í ágúst. Meðal þeirra
þjóða sem hafa boðað komu
sína eru Asíuþjóðirnar Kyr-
gyzstan og Úsbekistan, og Afr-
íkuþjóðin Níger.
Utan Íslands er glíman ein-
mitt einna vinsælust í gömlu
Sovétríkjunum, og auk Kyr-
gyzstan og Úsbekistan koma
keppendur frá Úkraínu og
Rússlandi. Flestir koma frá
Rússlandi en búist er við um
og yfir fjórum keppendum frá
hinum löndunum, sem og frá
Níger og Kamerún í Afríku. Þá
hafa keppendur frá Dan-
mörku, Belgíu, Hollandi, Sví-
þjóð og Þýskalandi boðað
komu sína.
Keppendur frá
Kyrgyzstan
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
Árið 2008 verður sérlega minnis-
stætt fyrir glímuáhugafólk en 9. og
10. ágúst næstkomandi fer fram í
fyrsta sinn heimsmeistarakeppni í
greininni og er gert ráð fyrir að þar
taki þátt einar 15 þjóðir og allt að
120 keppendur í heildina. Það sem
meira er, keppnin fer fram undir
beru lofti á vinsælu víkingasafni í
Hróarskeldu í Danmörku og gera
menn því skóna að um tíu þúsund
manns fylgist með þessu alþjóðlega
ævintýri hinnar íslensku glímu.
Allt á áætlun
Skarphéðinn Orri Björnsson,
forseti nýstofnaðra Alþjóðasam-
taka glímunnar, hefur haft veg og
vanda af skipulagningu heims-
meistaramótsins og segir hann flest
kurl komin til grafar. „Þetta er auð-
vitað í fyrsta sinn sem við stöndum
fyrir slíkum viðburði og eflaust á
eitthvað eftir að koma upp á en að
svo stöddu erum við búnir að
ganga frá öllum lausum endum og
allt lítur orðið vel út.“
Danir áhugasamir
Hvers vegna HM í glímu fer
fram í Danmörku skýrist af því að
það er mjög miðsvæðis fyrir þær
þjóðir sem þátt taka en þar eru auk
Íslendinga Rússar sem senda hvað
flesta keppendur til leiks. Ísland er
þó eina þjóðin sem sendir kepp-
endur í alla átta flokka mótsins.
„Annars eru Danir nokkuð áhuga-
samir um íþróttina og ég hef verið í
sambandi við danska íþróttasam-
bandið um að fá formlega inn-
göngu og menn tekið vel í þá mála-
leitan. Það eru nokkrir tugir Dana
að æfa glímuna eins og sakir standa
og vonandi verður keppnin til að
ýta enn frekar undir þann áhuga.
Reiða sig á Rússa
Það eru samt sem áður Rússar
sem sýna keppninni og íslenskri
glímu hvað mestan áhuga fyrir ut-
an Íslendinga sjálfa og þaðan koma
flestir keppendur aðrir en héðan
frá Fróni. „Það er rík hefð fyrir
glímu í Rússlandi þó að ekki sé hún
alveg á pari við þá sem við stund-
um hér á Íslandi. Þeir sýna mótinu
og glímunni þó mikinn áhuga og
hafa lýst yfir áhuga á að taka þátt í
kostnaðinum að hluta til. Þess er
þörf auk þess sem við erum að
reyna að fá Alþingi til að leggja
peninga til verkefnisins en það
vantar aðeins upp á til að allt
standi.“
Stór viðburður á okkar
mælikvarða
Flestir helstu glímumenn lands-
ins taka þátt á Hróarskeldu og
Skarphéðinn hefur litlar áhyggjur
af því að mótið standi yfir á sama
tíma og öllu stærri viðburður, Ól-
ympíuleikarnir, sem fram fara í
Kína. „Það er ekkert til að hafa
áhyggjur af og ég hef satt best að
segja ekkert hugsað út í það. Ég veit
aðeins að á okkar mælikvarða er
þarna um stórviðburð að ræða.
Þarna verður keppt í glímu, hrygg-
spennu og lausatökum og ég finn
fyrir miklum áhuga meðal þeirra
sem á annað borð fylgjast með slík-
um íþróttum.
Við sendum flesta okkar bestu
menn í öllum flokkum og þetta
verður gaman þegar upp er staðið
þó að ábyggilega sé eitthvað sker
sem við skipuleggjendur eigum eft-
ir að stranda á áður en yfir lýkur.“
Þjóðaríþróttin í
víking til Evrópu
Fyrsta heimsmeistaramót í íslenskri glímu fer fram á dönsku víkingasafni í Hróarskeldu
Nokkrir tugir Dana æfa íslensku glímuna Rússar sýna íþróttinni mikinn áhuga
Sniðglíma? Það eru
engin vettlingatök
leyfði í glímu.
Stigið Börn og ungling-
ar fá að kynnast glímu í
íþróttatímum í grunn-
skólum landsins.
Tvær sterkustu glímukonur Ís-
lands, systurnar Sólveig Rós og
Svana Hrönn Jóhannsdætur, báðar
úr Glímufélagi Dalamanna, verða
ekki með á heimsmeistaramótinu
sem fram fer í Danmörku í ágúst.
„Þetta er bæði vegna tíma- og
peningaleysis. Við hefðum þurft að
eyða miklu sjálfar ef við hefðum
farið og vorum búnar að ákveða að
fara til Spánar áður en það var
ákveðið að halda þetta mót. Ég er
líka sjálf í skóla á veturna og vinnu
á sumrin þannig að ég get ekki tek-
ið frí í margar vikur á sumrin,“
sagði Sólveig Rós sem var einmitt
stödd á Spáni þegar blaðamaður
náði tali af henni.
Sólveig Rós varð í öðru sæti Ís-
landsglímunnar nú í vor og systir
hennar bætti um betur og varð
Glímudrottning. Það er því ljóst að
Ísland verður án tveggja af sínum
sterkustu keppendum á þessu
fyrsta heimsmeistaramóti.
„Vildi fara í mínu besta formi“
„Ég var alveg búin að ákveða að
vera með í þessu móti en svo hent-
aði tíminn bara ekki. Þetta myndi
kannski horfa öðruvísi við ef ég
væri búin með skóla og komin í
fasta vinnu. Og það er sama saga
með Svönu. Ég hefði líka viljað fara
í mínu besta formi og verið að æfa
á fullu í sumar, en ekki bara mæta
þarna í einhverju meðalformi. Ég
er að vinna vaktavinnu í Keflavík
og ef ég ætlaði að æfa á fullu væri
dýrt að borga alltaf bensín til
Reykjavíkur. Það er bara ekkert
komið til móts við okkur í þessum
málum,“ sagði Sólveig Rós og bætti
við að gaman hefði verið að takast
á við erlendu keppendurna.
„Við vitum náttúrulega voða lít-
ið hvernig andstæðingarnir yrðu á
þessu móti en við höfum áður farið
til Skotlands og keppt þar í hrygg-
spennu og haft vel í þær sem við
kepptum við þar.“
Tíma- og peningaleysi aftrar helstu glímukonum landsins frá keppni
Glímusystur missa af fyrsta HM
Lítið hefur farið fyrir þjóð-
aríþrótt Íslendinga, glímunni,
á síðustu árum. Þó eru um 600
iðkendur að æfa íþróttina í
dag, í 6-8 félögum víðs vegar
um landið að sögn Ólafs Odds
Sigurðssonar formanns
Glímusambands Íslands.
„Stærstu félögin eru úti á
landi og þar er HSK með flesta
þátttakendur í mótum. Svo
eru félögin á Ísafirði og Reyð-
arfirði mjög fjölmenn,“ sagði
Ólafur.
Þau félög sem virk eru á land-
inu eru Héraðssamband S-
Þingeyinga, Ungmenna- og
íþróttasamband Austurlands,
Héraðssambandið Skarphéð-
inn, Glímufélagið Hörður á
Ísafirði, Glímufélag Dala-
manna, og KR í Reykjavík.
HSK er stærst
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Það er rík hefð fyrir glímu í Rússlandi þó ekki sé
hún alveg á pari við þá sem við stundum hér á Ís-
landi. Þeir sýna mótinu og glímunni mikinn áhuga og
taka þátt í kostnaðinum að hluta til.