24 stundir - 03.07.2008, Síða 28
Eftir Hauk Harðarson
haukurh@24stundir.is
„Ég held bara að það hafi gerst í
móðurkviði,“ segir Friðrika Hjör-
dís Geirsdóttir fjölmiðlakona að-
spurð að því hvenær áhuginn á
matargerð hafi kviknað. „Ég sneri
eldhúsinu hennar mömmu við
nánast á hverjum degi þegar ég var
yngri við misjafnar viðtökur, það
var ekkert alltaf vinsælt. Ætli það
megi ekki segja það að mamma
hafi grætt á því hin síðari ár,“ segir
Friðrika sem segist sjaldan standa
sjálf fyrir aftan grillið.
Deila um heiðurinn af matnum
„Það er þannig á mínu heimili
að manninum mínum finnst rosa-
lega gaman að grilla og ég læt það
bara eftir honum að njóta sín við
grillið. Þannig að ég er lítið þar en
ég kom að öllum undirbúningi á
því sem að fer á grillið. Það er hins
vegar alltaf tvírætt hvort okkar fær
heiðurinn af matnum,“ segir Frið-
rika í léttum tón.
Gómsætur eftirréttur
Friðrika gefur lesendum upp-
skrift af gómsætri pavlovu með
grilluðum ferskjum, ferskum blá-
berjum og bragðbættum rjóma en
uppskriftina af þessum girnilega
eftirrétti má finna vinstra megin á
síðunni. Það er tilvalið fyrir þá sem
ætla að bjóða gestum í mat yfir
helgina að spreyta sig á þessum
girnilega rétti. Mælt er með því að
bjóða upp á gott desertavín sam-
hliða réttinum.
Friðrika Hjördís
Hefur haft áhuga á
matargerð alla tíð.
Friðrika Hjördís Geirsdóttir hefur alltaf haft gaman af matargerð
Fékk áhugann
í vöggugjöf
Friðrika Hjördís Geirs-
dóttir fjölmiðlakona seg-
ist hafa fengið áhuga á
matargerð í vöggugjöf.
Hún gefur lesendum 24
stunda uppskrift að ljúf-
fengum eftirrétti sem
passar við öll tilefni og
tilvalið að prófa yfir
helgina.
➤ Friðrika Hjördís hefur haftáhuga á matargerð svo lengi
sem hún man eftir sér.
➤ Hún var dugleg við að snúaeldhúsi móður sinnar á hvolf
á sínum yngri árum.
➤ Hún segist leyfa manninumsínum að sína snilli sína fyrir
framan grillið en hún kemur
þó að undirbúningi á öllu
sem fer á það.
FRIÐRIKA HJÖRDÍS
28 FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 24stundir
Senn gengur í garð ein stærsta
ferðahelgi ársins og ljóst að margir
munu gera tilraun til að sína snilli
sína fyrir framan grillið. Ef þú ætl-
ar að hafa nautasteik á boð-
stólnum, fylgdu þá þessum fimm
skrefum og útkoman ætti að lofa
góðu.
Notið ferskt nautakjöt sem er
nýkeypt og hefur ekki legið í ís-
skáp í meira en þrjá daga. Notist
ekki við frosið kjöt.
Hreinsið grindina og berið
matarolíu á. Forhitið grillið á
háum hita í að minnsta kosti tíu
mínútur. Gætið þess að hafa lokið
niðri bæði þegar forhitun og eld-
un á sér stað.
Skerið af alla aukafitu sem er á
kjötinu. Kryddið með nýmuldum
svörtum pipar og saltið örlítið
meira en vanalega þar sem hluti
saltsins dropar af við eldun.
Til að ná fram „steikhúsará-
ferð“ á steikina, látið teinana á
grillinu gera köflóttar rákir í
kjötið með því að snúa því á með-
an á eldun stendur, báðum meg-
in.
Ef þú vilt steikina þína millilít-
ið steikta (medium rare) grillaðu
hana í tæpar tvær mínútur á
hvorri hlið á háum hita. Bættu
við 30 sekúndum fyrir hvern
steikingarflokk (meðalsteikt,
meðal-velsteikt og svo fram-
vegis.) Bætið einnig 30 sekúndum
við steikingartímann ef steikin er
ekki beinlaus. hh
Fimm ráð til að reiða fram hina fullkomnu grilluðu nautasteik
Hin fullkomna nautasteik
Fullkominn steik
Gæti litið einhvern
veginn svona út.
Fyrir fjóra
Marengs
Hráefni
4 eggjahvítur
220 g sykur
1 tsk. maizena-mjöl
2 tsk. hvítvínsedik
Aðferð
Hitið ofninn í 180°C og setjið
bökunarpappír á plötu. Stífþeytið
eggjahvíturnar og bætið sykrinum
smám saman út í, því næst mai-
zena-mjölinu og að lokum hvít-
vínsedikinu. Takið því næst tvær
stórar skeiðar og formið 6-8 kúlur
og leggið á plötuna. Notið bakhlið-
ina á skeiðinni til að gera smá dæld
í marengsinn. Bakið í fimm mín-
útur við 180°C, lækkið svo ofninn í
150°C og bakið í aðrar 70 mínútur.
Takið úr ofninum og látið kólna.
Þeytið 250 ml rjóma og bætið 2-3
matskeiðum af Bailey’s og einni
matskeið af flórsykri út í rjómann
og þeytið. Að því loknu skal skera
ferskar ferskjur niður í meðalstóra
bita og setja á trépinna, sem hafa
legið í bleyti í þrjátíu mínútur,
annars brenna pinnarnir við.
Ferskjurnar eru settar á grillið og
grillaðar í þrjár mínútur á hvorri
hlið á meðalheitu grilli. Að lokum
er gott að pensla balsamsírópi yfir
ferskjurnar rétt áður en þær eru
teknar af grillinu. Setjið rjómann
og grilluðu ferskjurnar ofan á mar-
engsinn og bætið við ferskum blá-
berjum yfir. Gott að bera fram
með góðu desertvíni.
hh
Uppskrift
Pavlova með grilluðum
ferskjum og bláberjum
Þegar heitt er í veðri er fátt betra
en að borða góðan grillmat. En
þótt grillmatur sé oftast afar
bragðgóður er mörgum sem
þykja grillaðar kjötmáltíðir of
þungar í maga í sólinni. Fyrir þá
er tilvalið að búa til gott salat
með grilluðum kjúklingi.
Grillaður kvöldið áður
Kjúklingasalat er tilvalið til að
bjóða vinahópnum eða stórfjöl-
skyldunni upp á á heitum eft-
irmiðdegi. Þá er hægt að spara
sér vinnu með því að grilla kjúk-
lingabringurnar kvöldið áður og
skera þær svo í strimla. Í salatið
má setja allt sem hugurinn girn-
ist, til dæmis ferskan ananas,
mangó, rauðlauk, vínber eða
hvað annað sem er til í ísskápn-
um. Svo er gott að velja góða
dressingu til að setja út á salatið
og bjóða upp á svalandi sum-
ardrykk með.
hh
Grillaðu kjúkling í salatið
a
Ég sneri eldhúsinu hennar mömmu við nánast á hverjum
degi þegar ég var yngri við misjafnar viðtökur, það var
ekkert alltaf vinsælt. Ætli það megi ekki segja það að mamma
hafi grætt á því hin síðari ár.
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is
Sumarsalat Gott
að setja grillaðan
kjúkling út í salatið.
ÞÝSKAR ÁLKERRUR til allra starfa
Vandaðar kerrur á góðu verði, léttar og
fallegar. Margar stærðir og gerðir.
Sturtubúnaður , álbrautir o.fl.
Söluumboð:
N1 Laugatanga 1
Mosfellsbæ - sími 566 8188.
Fjarðanet hf. Grænagarði
Ísafirði - sími 470 0836.
KB búrekstrard. Egilsholti 1
Borgarnesi - sími 430 5500.
Háholt 18 Mosfellsbæ
sími 894 5111
VANTAR YKKUR GRILL
HEIMA EÐA Í SUMARBÚSTAÐINN
ERUM MEÐ HÁGÆÐA RYÐFRÍ GASGRILL
Grillið er úr ryðfríu stáli (304)
með þremur pottbrennurum
og einum bakbrennara
(stærð 161 x 68 x 126 cm).
Grillið er með rafknúnum
grillteini, elektrónískum
kveikjubúnaði
og yfirbreiðslu.
Upplýsingar í
síma 517 2220
ÓTR
ÚLE
GT
VER
Ð
kr.
75.
000
Bakverk - heildsala ehf,
Tunguháls 10, 110 Reykjavík
grillið