24 stundir - 03.07.2008, Side 40
24stundir
? Yfirfull bílastæði við menntaskóla á Ís-landi eru algeng sjón. Eitt syfjulegt ung-menni í hverjum bíl sem oft er keyptur áríflegum bílalánum. Íslenski draumurinnkristallast í froststillum yfir borginni þeg-ar hlandgulur mengunarliturinn slærbjarma á fjöllin. Almenningssamgöngurreyna yfirleitt ekki að keppa við einkabíls-
mann. Það kostar fimmtán hundruð
krónur með rútunni milli Keflavíkur og
Reykjavíkur og því er ódýrara að keyra
eins síns liðs á sparneytnum bíl. Ekki er
hvatt til þess að fólk noti almennings-
samgöngur heldur þvert á móti. Verkefnið
Frítt í Strætó var ánægjuleg nýbreytni
þegar samið var um að bæjarfélög á höf-
uðborgarsvæðinu byðu skólafólki ókeypis
strætóferðir frá síðasta hausti og fram til
fyrsta júní. Núna telur eitt ríkasta sveitar-
félagið að það geti ekki tekið þátt lengur.
Garðabær hefur komist að þeirri nið-
urstöðu að skólafólk í bænum noti þjón-
ustuna minna en svari þeim kostnaði sem
bærinn leggur til verkefnisins. Nið-
urstaðan er sú að hætta frekar en að
hvetja skólafólkið til að taka sig á í þessum
efnum. – Það er ekkert til sem heitir frítt,
segir bæjarstjórinn í anda læriföðurins
Miltons Friedman sem sagði að hádeg-
isverðurinn væri aldrei ókeypis. En gam-
aldags stjórnmálamenn eru heldur ekki
ókeypis. Hvað þá bílamengun úr Garða-
bæ. Bæjarstjórinn hefði allt eins getað
snúið dæminu á haus til að meta þann
ávinning sem bæjarfélögin öll hafa af því
að draga úr mengun, bílastæðavanda og
umferðarþunga. En hann vill frekar
standa og telja hausa eins og gamaldags
funksjóner í Sovét.
Ókeypis bílamengun úr Garðabæ
YFIR STRIKIÐ
Hvað kosta
gamaldags
stjórnmál?
Þóra Kristín
Ásgeirsdóttir
vill frítt í strætó.
24 LÍFIÐ
Þó það sé ekki önnur plata í Ferða-
laga-seríu Magga Eiríks og KK í
burðarliðnum leggja
þeir samt land undir fót.
KK og Maggi Eiríks
af stað í ferðalag
»32
Tónlistarmaðurinn Paul Simon
spilaði eitthvað fyrir alla á tónleik-
unum í Laugardalshöll.
Fær þrjár og hálfa fyrir.
Paul Simon var með
góðgæti fyrir alla
»35
Gagnrýnanda blaðsins fannst nýj-
asta gamanmynd Rob Schneider,
Big Stan, einum of
grunnhyggin..
Stóri-Stan er ekkert
svo fyndinn
»34
● Beittara blað
„Þetta leggst bara
rosalega vel í mig.
Ég hlakka til,“ seg-
ir Bryndís Björg-
vinsdóttir, meist-
aranemi í
þjóðfræði og nýr
ritstjóri Stúd-
entablaðsins. Bryndís hefur góða
reynslu af hvers konar ritstjórn-
arstörfum og segist hún muna án
efa innleiða nýja hluti inn í Stúd-
entablaðið og nýta þá þekkingu
sem fyrirfinnst innan háskólans.
„Mér finnst að Stúdentablaðið ætti
að vera að tengja saman fræði og
samtímann og vera með gagnrýni,
vera með svolítið beittar klær.“
● Frítt í bíó
„Við ætlum að
bjóða í bíó í
kvöld,“ segir
Kristín Andrea
Þórðardóttir,
kvikmyndafram-
leiðandi og einn
af Vinum Tíbet.
„Við ætlum að sýna stórmyndina
Kundun í Kaffi Hljómalind og
allir eru velkomnir. Eftir sýn-
inguna verður síðan fræðsla um
ástandið í Tíbet í dag, bætir
Kristín Andrea við. „Við í Vin-
um Tíbet ætlum að hafa kvik-
myndasýningar mánaðarlega hér
eftir, ýmist heimildarmyndir eða
kvikmyndir,“ segir hún að lok-
um.
● Uppskeruhátíð
„Þetta er upp-
skeruhátíð bæði
ræktunarlega séð
og í reiðmennsku.
Hér koma allir
hestamenn og
rjóminn af bestu
gæðingum lands-
ins og gríðarleg stemning,“ segir
Fjölnir Þorgeirsson en hann
keppir í þriðja sinn á landsmóti á
föstudaginn og þá í 150 m skeiði.
Fjölnir segir það draum hvers
hestamanns að vinna landsmót og
að keppnin leggist vel í sig.
„Mottóið er að ef maður er ekki
fljótastur þá er maður flottastur!“
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við