24 stundir - 23.07.2008, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2008 24stundir
OFNÆMI… NEI TAKK
527 040
Neutral vörurnar eru
viðurkenndar af Ofnæmis-
og astmasamtökum
Norðurlanda
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
3
4
3
7
3
Tryggvi er 5. efnahagsráðgjafi ráðuneytisins
Sautján ár eru liðin frá því að
efnahagsráðgjafi var starfandi sein-
ast í forsætisráðuneytinu, en það
var árið 1991 samkvæmt upplýs-
ingum frá ráðuneytinu.
Tryggvi Þór Herbertsson verður
sá fimmti til að gegna því starfi
þegar hann tekur við 1. ágúst næst-
komandi. Fyrstur til að ráða í starf-
ið var Gunnar Thoroddsen þegar
hann réð til sín Þórð Friðjónsson
árið 1980 sem sinnti starfinu lengst
allra efnahagsráðgjafa til þessa, eða
í rúm sex ár.
Athygli hefur vakið að ráðning
Tryggva Þórs er tímabundin til
hálfs árs. Gréta Ingþórsdóttir, að-
stoðarmaður forsætisráðherra, seg-
ir hann hafa fengið leyfi frá störf-
um sínum hjá Askar Capital í sex
mánuði og því miðist ráðning hans
við þann tíma.
Ekki fengust svör frá ráðuneyt-
inu um hvort umræddur tími full-
nægði þörf ráðuneytisins fyrir
aukna efnahagsráðgjöf. þkþ
Sautján ár frá síðasta
efnahagsráðgjafa
„Svarti mánudagurinn“ var
mánudagurinn 17. mars kallaður.
Þá féll gengi íslensku krónunnar
meira en nokkru sinni áður á ein-
um degi eða um 7%. Í framhaldi
lýstu forsvarsmenn atvinnulífsins,
launþega, stjórnarandstöðunnar
og flestir aðrir yfir djúpum áhyggj-
um af stöðu mála. Menn höfðu
áhyggjur af því að vöruverð og af-
borganir af lánum, sérstaklega í er-
lendum gjaldmiðlum, ryki upp úr
öllu valdi með skelfilegum afleið-
ingum. Bent var á Seðlbankann,
ríkisstjórnina, alþjóðlega lána-
kreppu og krónuna sjálfa sem
sökudólga. En hvað hefur gerst síð-
an þá? elias@24stundir.is
Fjórir mánuðir eru nú liðnir frá „svarta mánudeginum“ þegar krónan féll meira á einum degi en nokkru sinni áður
Hvað hefur gerst á fjórum mánuðum?
1
Gengið Að kvöldi „svarta mánu-
dagsins“ stóð gengisvísitalan í
153,6 stigum en hún var 145,5 í
upphafi dags. Það þýðir að krón-
an veiktist um tæp 7%. Botni
náði krónan þó ekki þennan svar-
tamánudag í mars því að í lok
júní fór gengið í 168,2 stig. Á há-
degi í gær var hún hins vegar
161,4 stig sem þýðir að krónan
hefur veikst um rúm 5% und-
anfarna fimm mánuði.
Verðbólgan Í mars var verð-
bólgan 8,7% samanborið við
6,8% mánuðinn á undan. Í síð-
asta mánuði var hún komin í
12,7% og nú er því spáð af grein-
ingardeild Landsbankans að hún
nái hámarki í ágúst og verði þá
14%. Öll innkaup og afborganir
heimilanna hafa því aukist gríð-
arlega á undanförnum fjórum
mánuðum.
2
3
Seðlabankinn Stýrivextir
Seðlabankans voru snarlega
hækkaði með sérstakri vaxta-
ákvörðun 25. mars, úr 13,45% í
15%. Á næsta reglubundna vaxta-
ákvörðunardegi, þann 10. apríl,
voru þeir aftur hækkaðir, í 15,5%.
Seðlabankinn hækkar vexti til að
styrkja krónuna og til þess að ná
verðbólgumarkmiði sínu sem er
2,5% verðbólga.
Ríkisstjórnin Fljótlega var bent
á nauðsyn þess að styrkja gjald-
eyrisvaraforða Seðlabankans
verulega með erlendri lántöku til
þess að styrkja íslenskt efnahags-
líf. Alþingi veitti ríkisstjórninni
heimild til þess að taka 500 millj-
arða lán til verksins í lok maí.
Síðan hefur ekkert lán verið tekið
en gefin út skammtíma rík-
isskuldabréf fyrir 25 milljarða.
4
Hæstiréttur hefur staðfest úr-
skurð Héraðsdóms Reykjavík-
ur um að pólskur karlmaður
um tvítugt, sem nýlega var
dæmdur í 3 ára fangelsi fyrir
nauðgun, skuli sæta farbanni
þar til dómur fellur í máli
hans í Hæstarétti.
Fram kemur í dómi Hæsta-
réttar, að foreldrar mannsins
eru búsettir hér á landi og
hann býr hjá móður sinni.
Hann sagðist hins vegar þurfa
að fara til Póllands til að leita
til geðlæknis en hann hefði
verið í læknismeðferð þar og
þyrfti að halda henni áfram.
Of dýrt væri fyrir sig að leita
til geðlæknis hér á landi. mbl
Pólverji áfram í farbanni
Bið á Íslandi
Áfengis- og tóbaksverslun rík-
isins ætlar að opna verslun á
Flúðum en þá þurfa íbúar og
gestir ekki lengur að sækja
áfengi á Selfoss. „Ekki er búið
að finna stað,“ segir Sigrún
Ósk Sigurðardóttir, aðstoð-
arforstjóri ÁTVR, svo að enn
verður þurrt á Flúðum um
verslunarmannahelgi. áb
Ríkið á Flúðum
Ekkert áfengi
selt í sumar
Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur
thorakristin@24stundir.is
„Hér er húmornum alvarlega mis-
beitt,“ segir Styrmir Barkarson,
íbúi í Reykjanesbæ, um umfjöllun
um nokkra bæi landsins í blaði Ice-
land Express, Express yourself, sem
dreift er til farþega.
„Þetta fólk vinnur við landkynn-
ingu og á að taka starf sitt alvar-
lega,“ segir hann.
Keflavík: borg flóttans
Greinin fjallar um sjö staði sem
farið er um í hringferð um landið.
Fyrsti viðkomustaður er Reykjavík,
„borg óttans“ sem sögð er ógnvæn-
leg í samanburði við aðra staði á
landinu. Akureyri fær viðurnefnið
„borg táranna“ og sagt óhjákvæmi-
legt að bresta í grát þegar þangað sé
komið því „ef enn hefur ekkert
slæmt gerst ertu ekki að taka þessa
hringferð nógu alvarlega“.
Það er umfjöllunin um Keflavík
sem fer sérstaklega fyrir brjóstið á
Styrmi. Keflavík fær nafnið „borg
flóttans“ (e. City of Get Me Out of
Here) og er íbúafjöldi ekki tiltek-
inn heldur tekið fram að íbúum
fækki ört. Þá segir að þó flestir
heimsæki bæinn vegna flugvallar-
ins sé „í þessu fiskiþorpi hópur ein-
arðra íbúa sem glaðir hafna stór-
borgarglysinu fyrir „sveitaljóma“
Keflavíkur“.
Styrmir óttast að ferðamenn taki
umfjöllunina alvarlega. „Maður
veit það bara sem vanur ferðamað-
ur að ferðamenn fara alveg eftir því
sem sagt er í svona bæklingum. Og
Reykjanesbær á svo mikið í húfi.
Við erum rétt við flugvöllinn en
það fara allir framhjá okkur,“ segir
hann.
Verða nærgætnari næst
Lára Ómarsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Iceland Express, segir aug-
ljóst að umfjöllunin hafi verið
meint sem grín.
„En auðvitað er þetta mjög kald-
hæðinn húmor sem á ekki endilega
heima í svona blaði,“ segir hún.
Lára bendir á að þó hálft ár sé
liðið frá útgáfu blaðsins, sem næst
kemur út í september, hafi enginn
kvartað vegna málsins.
„Ég er ekki enn farin að skoða
efni næsta blaðs en við verðum
nærgætnari næst. Ég mun lesa efn-
ið vandlega yfir svo að það fari nú
ekki fyrir brjóstið á neinum,“ segir
hún.
Saklaust grín eða
ferðamannafæla?
Keflavík er kölluð „borg flóttans“ í umfjöllun í blaði Iceland Express Keflvíkingur ótt-
ast að blaðið fæli frá ferðamenn „Verðum nærgætnari næst,“ segir upplýsingafulltrúi IE
Fólksflótti Keflavík er
kölluð borg flóttans í
greininni.➤ Í greininni er ein málsgreinum hvern stað og fjallað um
Reykjavík, Borgarnes, Ak-
ureyri, Egilsstaði, Höfn, Vík í
Mýrdal og Keflavík.
➤ Hver staður fær viðurnefni ogríma þau öll. Þannig er Borg-
arnes borg nándarinnar, eða
City of Near, og Vík kölluð
bjórborgin, eða City of Beer.
➤ Höfundur er Íri sem hefur bú-ið hérlendis í tvö ár.
UMFJÖLLUNIN
24stundir/Þök
Karlmaður og kona á þrítugsaldri
voru handtekin í fyrrinótt í
Reykjanesbæ með 180 grömm af
hassi í plötum, ætlað til sölu.
Fólkið var í bíl þegar lögreglan
hafði afskipti af því og var fjög-
urra mánaða gamalt barn parsins
í bílnum.
Lögreglan á Suðurnesjum stöðv-
aði bílinn við reglubundið eft-
irlit. Karlmaðurinn var þá undir
stýri og reyndist hann undir
áhrifum vímuefna. Við leit í bíln-
um fundust síðan hassplöturnar.
Parið, ásamt barninu, gisti fanga-
geymslur lögreglu um nóttina.
Voru barnaverndaryfirvöld látin
vita í kjölfarið. Málið, sem er
nokkuð óvenjulegt, er litið mjög
alvarlegum augum af lögreglu.
Maðurinn hefur áður komið við
sögu lögreglu. mbl
Hasspar