24 stundir - 23.07.2008, Page 21
24stundir MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2008 21
hvort slíkt gjald er innheimt. „Það
er ekkert rukkað annars staðar og
svo geta taxtar verið mismun-
andi,“ segir Kolbrún.
Þarf að vera samræmi
„Þetta er spurning um samræmi
og að allir sitji við sama borð,“
segir Kolbrún sem telur að það
þurfi að vekja athygli fólks á þessu
ósamræmi. Á bloggsíðu sinni
bendir hún jafnframt á að kostn-
aðurinn sé fólki ekki efst í huga
þegar einhver nákominn fellur frá.
„Fólk er eðlilega lítið að huga að
einstaka kostnaðarliðum á sama
tíma og það er að syrgja og mitt í
erfiðu ferli sem undirbúningur út-
farar ástvinar krefst,“ segir hún.
Ekki heimild til gjaldtöku
Kirkjugarðar Reykjavíkurpró-
fastsdæma hófu innheimtu líkhús-
gjalda árið 2004 en gjaldtökunni
var hætt árið 2006 í kjölfar álits
umboðsmanns Alþingis. Umboðs-
maður Alþingis taldi að ekki hefði
verið heimild í lögum fyrir Kirkju-
garða Reykjavíkurprófastsdæma
til að innheimta svokallað líkhús-
gjald fyrir geymslu á líkum í lík-
húsi kirkjugarðanna í Fossvogi.
Beindi hann þeim tilmælum til
Kirkjugarðanna að þeir tækju
gjaldtökuna til endurskoðunar.
Jafnframt beindi umboðsmaður
þeim tilmælum til dóms- og
kirkjumálaráðherra að hann tæki
sérstaklega til athugunar hvort
ákvæði laga um kirkjugarða,
greftrun og líkbrennslu séu nægi-
lega skýr um hvaða þjónustu ætl-
ast er til að kirkjugarðar láti al-
menningi endurgjaldslaust í té.
Ósamræmi Misjafnt er
hvort sérstakt gjald er
innheimt fyrir geymslu á
líkum í líkhúsi.
Ósamræmi í gjaldtöku fyrir geymslu á líki
Líkhúsdvölin á
við nótt á hóteli
Gjald fyrir geymslu á líki
getur samsvarað gistingu
á ágætis hóteli að sögn
Kolbrúnar Baldursdóttur.
Annars staðar er ekkert
gjald innheimt fyrir lík-
húsdvölina. Hún vill að
allir sitji við sama borð.
➤ Fyrir Alþingi liggur frumvarpum breytingar á lögum um
kirkjugarða, greftrun og lík-
brennslu.
➤ Frumvarpið er unnið á grund-velli tillagna nefndar sem
skipuð var af dóms- og
kirkjumálaráðherra.
BREYTINGAR Á LÖGUM
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Kolbrúnu Baldursdóttur sálfræð-
ingi brá í brún á dögunum þegar
hún fékk reikning fyrir útfarar-
þjónustu vegna andláts í fjölskyld-
unni. Á bloggsíðu sinni www.kol-
brunb.blog.is bendir hún á að
gjald fyrir geymslu á líki samsvari
allt að einnar nætur gistingu á
ágætis hóteli. „Líkgeymslugjald
fyrir þrjá sólarhringa var 19.000
krónur,“ segir Kolbrún í samtali
við 24 stundir. Hún bendir á að
misjafnt sé eftir sveitarfélögum
Íslendingar eru duglegir að grilla
á sumrin og á góðviðrisdögum
leggst grillangan yfir heilu hverf-
in. Líkt og annarri matargerð
fylgir grillinu viss hætta á mat-
arsýkingum, ekki síst þegar menn
eru að sýsla með hrátt kjöt. Ef
maður gætir hreinlætis og hefur
allt í röð og reglu dregur maður
úr þeirri hættu.
Gæta þarf þess að nota ekki sömu
töng fyrir hrátt kjöt og grillað.
Grillað kjöt og hrátt má ekki
heldur deila sama fati enda getur
það leitt til krossmengunar. Einn-
ig er mikilvægt að blóðvökvi
komist ekki í snertingu við tilbú-
inn mat og salöt og því mikilvægt
að nota sérstakt skurðbretti fyrir
grænmeti og aðra hrávöru.
Mikilvægt að steikja vel
Matvæli verða að ná að
minnsta kosti 75°C hita í gegn.
Unnar kjötvörur verður að gegn-
umsteikja. Að máltíð lokinni
verður að kæla afganga hratt nið-
ur, helst í ísskáp.
Ef svo illa vill til að kjötið
brennur við hjá manni verður
maður að skera brennda hlutann
af áður en þess er neytt. Það spill-
ir ekki aðeins bragðinu heldur
geta skaðleg og jafnvel krabba-
meinsvaldandi efni myndast.
Verði ykkur að góðu!
Grillað af öryggi
Neytendastofa gerði athugun á
ástandi verðmerkinga í 37 bak-
aríum á höfuðborgarsvæðinu
dagana 19.-24. júní. Brauðdeildir
verslana og stórmarkaða voru
ekki teknar fyrir að þessu sinni.
Annars vegar var ástand verð-
merkinga kannað í hillum og
borðum bakaríanna en hins vegar
í kælum.
Verðmerkingar voru almennt í
samræmi við ákvæði laga og
reglna og kemur í þeim tilfellum
ekki til frekari aðgerða af hálfu
Neytendastofu. Verðmerkingum í
hillum og borðum var ábótavant
hjá 6 bakaríum og í kælum hjá 13
bakaríum. Neytendastofa sendi
skriflegar athugasemdir til 13
bakaría þar sem verðmerkingum
var ábótavant og var þeim bak-
aríum gefinn frestur til að koma
verðmerkingum í samt lag. Að
þeim fresti loknum verður ástand
verðmerkinga kannað á ný og
gripið til aðgerða telji stofnunin
þess þörf.
Neytendastofa hyggst halda verð-
merkingaeftirliti sínu áfram og
skoða ástand verðmerkinga hjá
fleiri verslunum.
Verðmerkingar
yfirleitt í lagi
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Fólk er eðlilega lítið að huga að einstaka
kostnaðarliðum á sama tíma og það er að
syrgja og mitt í erfiðu ferli sem undirbúningur út-
farar ástvinar krefst.
www.ferdalag.is
40
60 80 100
120
Þegar komið er á Ísafjörð, eru aðeins nokkrir kílómetrar í viðbót til Bolungarvíkur,
út Skutulsfjörð, meðfram Óshlíð. Gefðu þér tíma á Vestfjörðum!
neytendur