24 stundir - 15.08.2008, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 2008 24stundir
Kartöflur eru til margs nytsam-
legar og hægt að nota þær í alls
kyns matseld. Hér er ein ljúffeng
súpa með kartöflum og blaðlauk.
2 msk. smjör
3 stórir blaðlaukar, smátt
skornir, aðeins hvítir
4 miðlungsstórar kartöflur,
smátt skornar og afhýddar
salt
1 bolli mjólk
1 eggjarauða
1 msk. smjör
Bræðið 2 msk. af smjöri á stórri
pönnu og snöggsteikið blaðlauk-
inn þar til hann er orðinn ljós-
brúnn. Setjið laukinn í stóran pott
ásamt kartöflunum og bætið við
vatni svo það nái rétt yfir græn-
metið. Setjið lok á pottinn og sjóð-
ið á miðlungshita þar til kartöfl-
urnar og blaðlaukurinn er
tilbúinn. Setjið grænmetisblönd-
una með vökva í blandara, kannski
reynist nauðsynlegt að gera þetta í
skömmtum. Hrærið saman mjólk
og bætið við vatni þar til rétta
áferðin er fengin. Setjið allt í pott,
sjóðið og fjarlægið pott af hellu.
Hrærið eggjarauðu í skál. Bætið
hálfum bolla af kartöflusúpunni
við eggjarauðuna og hrærið stöð-
ugt. Hellið blöndunni út í pottinn
aftur og hrærið vel. Smakkið til og
kryddið eftir smekk. Setjið kart-
öflusúpuna í fallega skál og hrærið
1 msk. af smjöri saman við.
Ljúffeng kartöflusúpa með blaðlauk
Kartöflur góðar í matseld
Súpa Ljúffeng kart-
öflusúpa með blaðlauk.
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@24stundir.is
„Íslensku kartöflurnar eru lang-
bestar, það er bara þannig,“ segir
Sigurbjartur Pálsson, kart-
öflubóndi á Skarði. Þrátt fyrir að
aðaluppskerutímabilið sé ekki haf-
ið tekur Sigurbjartur upp kartöflur
á hverjum degi. „Við tökum upp
kartöflur eins og markaðurinn
kallar eftir og við byrjuðum á því
12. júlí.“
Framleiðslan hefur aukist
Sigurbjartur viðurkennir að það
geti verið mikil vinna að vera kart-
öflubóndi. „Það eru mjög stórar
tarnir á vorin og haustin, bæði
niðursetning og uppskera og þá er
nauðsynlegt að fá sér utanaðkom-
andi aðstoð. Restina af árinu sé ég
um þetta ásamt fjölskyldunni en
kartöflurækt hefur gjörbreyst und-
anfarin ár. Núna tökum við allt
saman upp í stórar einingar, svona
500-700 kg einingar en áður var
þetta allt í 50 kg pokum sem voru
bornir á höndum. Samhliða því
sem vinnan hefur orðið léttari þá
hefur framleiðslan aukist. Þróunin
hefur verið mjög hröð undanfarin
ár og kartöflubændum hefur fækk-
að mjög mikið en að sama skapi
hafa þeir fáu sem eftir eru stækkað
verulega. Það er svipað mikið
framleitt af kartöflum en það eru
örfáir menn sem standa orðið í
því.“
Góð uppskera í ár
Sigurbjartur segir að allt útlit sé
fyrir að uppskeran í ár verði góð.
„En í kartöflurækt þá hefur manni
lærst það á löngum tíma að allt
getur gerst. Þótt það sé ekki nema
mánuður eftir af sprettunni þá get-
ur ein frostnótt rústað þessu. Ef
við fáum svipað tíðarfar næstu
þrjár vikurnar og hefur verið
undafarið þá lítur þetta vel út.
Uppskeran er fyrr á hverju ári og
það er vegna aukins hita. Sumrin
hafa verið góð og þurr en mikil
hlýindi og á heildina litið eru að
verða betri ræktunarskilyrði á Ís-
landi. En reyndar getur þetta líka
verið neikvætt og úrkoman er til
dæmis að breytast að mínu mati.
Það eru svo löng tímabil þar sem
veðrið er svipað.“
Útlit er fyrir að kartöfluuppskera í ár verði góð
Íslensku kartöflurnar
eru langbestar
➤ Sigurbjartur ræktar kartöflurá um þrjátíu hektara jörð.
➤ Það tekur yfirleitt um 2-3 vik-ur að taka upp kartöflurnar á
haustin.
➤ Það er nauðsynlegt að vinnalandið mjög vel á vorin en þá
fer jarðvinnslan fram.
➤ Sigurbjartur notar kartöflu-niðursetningarvél og kart-
öfluupptökuvél sér til að-
stoðar á vorin og haustin.
KARTÖFLURÆKTSigurbjartur Pálsson er
kartöflubóndi á Skarði en
þar ræktar hann kartöflur
á þrjátíu hektara jörð.
Hann segir kartöflu-
uppskeruna verða fyrr á
hverju ári enda sífellt
betri ræktunarskilyrði á
Íslandi.
Kartöflurækt Allt útlit er fyrir
að uppskeran verði góð í ár
þótt ein frostnótt gæti skaðað
uppskeruna verulega.
Kartöflubóndi Sigurbjartur Pálsson
Fæst í heilsubúðum og matvöruverslunum.
...og þú þarft nánast ekki annað krydd!
Herbamare er létt blanda af
hafsalti og lífrænt ræktuðum
kryddjurtum. Það er notað
jöfnum höndum í matargerð
og sem borðsalt.
Herbamare er kjörið til að krydda
fisk, salöt, egg, grænmeti, súpur,
sósur, pasta, grjón og kjötrétti
og einnig kjörið á allan grillmat.
Herbamare er að sjálfsögðu
algerlega laust við MSG
(monosodium glutamat)
VINSÆLASTA KRYDDBLANDAN ÚR SMIÐJU A. VOGEL
1 matsk. safieða 1 hylki.
Fæst í apótekum og heilsubúðum.
Ný
sen
din
g
Polarolje
Selolía, einstök olía
Gott fyrir:
Maga- og þarma starfsemi
Hjarta og æðar
Ónæmiskerfið
Liðina
Polarolían fæst í:
apótekum, Þín verlsun Seljabraut,
heilsuhúsum, Fjarðarkaupum,
og Melabúð
Meiri virkni
Hátt hlutfall Omega 3
fitusýrur
Fiskbúðinni Trönuhrauni
Í sérblaði 24 stunda um skóla og námskeið
sem út kemur fimmtudaginn, 21. ágúst,
er meðal annars rætt um gildi mennt-
unar, spjallað við fólk sem hefur lagt að
baki sérhæft nám sem nýtist í starfi, ýmis
góð ráð varðandi það að byrja í skólanum
og kíkt á skólabækurnar. Fjölbreytt og
skemmtilegt skólablað fyrir allan aldur.
Skóla & námskeið
Hafðu samband og fáðu gott pláss fyrir auglýsinguna þína
Auglýsingasímar:
Katrín Rúnarsd. 510 3727
kata@24stundir.is
Kolbrún Dröfn 510 3722
kolla@24stundir.is
Sé
rb
la
ð
fylgir 24 stundum fimmtudaginn 21. ágúst
um