24 stundir - 19.08.2008, Síða 4
Ólafur F. Magnússon, fráfarandi
borgarstjóri, afhenti í gær fegrun-
arviðurkenningar vegna fegurstu
lóða fjölbýlishúsa og fyrirtækja, og
endurbóta á eldri húsum í Reykja-
vík. Afhendingin fór fram í Höfða,
á 222. afmælisdegi borgarinnar.
Lóð Birkimels 6, 6A og 6B, lóð
Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu
og lóð 1912 efh. við Klettagarða 19
hlutu allar viðurkenningar fyrir
fegustu lóðirnar. Viðurkenningar
fyrir endurbætur á eldri húsum
féllu hins vegar í skaut Þingholts-
stræti 7, Mjóuhlíð 4 og 6 og Birki-
mel 8, 8A og 8B. aí
Borgarstjóri veitti viðurkenningar í Höfða
Fegurstu lóðirnar
4 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 24stundir
„Brotist var inn í síðustu viku, en þjófarnir spenntu
upp glugga og skelltu sér í sturtu í leiðinni,“ segir
Snorri Magnússon, ungbarnasundkennari í sundlaug
Skálatúnsheimilisins í Mosfellsbæ.
„Þeir tóku rakkrem, boli og myndavél sem ég leyfi
foreldrum að taka á, m.a. ofan í vatninu,“ segir Snorri
en bætir við að hún sé þjófunum gagnslaus. „Vélin er
keypt erlendis og ég er með batteríið í hana,“ segir
hann og hvetur þjófana til að skila myndavélinni aftur.
„Sárast finnst mér að þeir tóku grísabaukinn minn,
sem ég nota til að safna fyrir góðan vin,“ segir Snorri
og bætir við að hann hafi verið í notkun í yfir 20 ár.
„Ég þarf ekki peninginn, þeir mega eiga hann, en ég
væri voðalega þakklátur að þeir myndu skila mér
grísnum um leið og myndavélinni,“ segir hann og bæt-
ir við að hægt sé að skila þýfinu fyrir utan umræddan
glugga. „Um er að ræða mjög persónulega muni og
það er afar erfitt fyrir okkur að missa vatnsmyndavél-
ina góðu,“ segir hann og tekur fram að ef þjófarnir
skili mununum, muni þeir ekki vera rukkaðir fyrir
sturtuna sem þeir tóku í leiðangri sínum.
asab@24stundir.is
Brutust inn og stálu persónulegum munum ungbarnasundkennara
Saknar myndavélar og bauks
Eftir Ásu Baldursdóttur
asab@24stundir.is
„Auðvitað brá manni við að frétta
af þessu, en ég verð á mörkunum
að sleppa við afleiðingar verkfall-
anna,“ segir Kristín Lind Alberts-
dóttir, verðandi móðir sem sett er á
8. september næstkomandi.
„Fyrstu verkföllin eru boðuð 4.
og 5. september, en mér líst alls
ekki á þetta neyðarúrræði en ég
styð ljósmæður heilshugar í barátt-
unni,“ segir hún.
Kristín Lind telur að ljósmæður
ættu að fá leiðréttingu launa með
tilliti til menntunar- og hæfnis-
krafna. „Ég trúi varla að ríkið vilji
ekki koma til móts við kvennastétt-
ir sem beittar eru misrétti varðandi
laun,“ segir hún.
„Þær eru sérfræðingar í því að
koma krílunum í heiminn,“ segir
Kristín, það sé ekki heillavænleg
staða að hugsa til þess að bráða-
þjónusta verði ein í boði í verkföll-
um.
Grafalvarleg staða
„Ljósmæður standa við kröfur
sínar í samningaviðræðum við rík-
ið,“ segir Guðlaug Einarsdóttir,
formaður Ljósmæðrafélags Íslands,
og bætir við að viðræðurnar
strandi á þeirri afstöðu ljósmæðra
að fá menntun og hæfni metna til
launa til jafns við aðrar sambæri-
legar stéttir í þjónustu við ríkið.
„Ríkisstjórnin verður að gera sér
grein fyrir alvöru málsins“.
Áhersla á bráðaþjónustu
Hildur Harðardóttir, sviðsstjóri
á kvennasviði Landspítalans, segir
að reynt verði að láta verkföllin
raska fæðingarþjónustu sem
minnst.
„Það er forgangsmál að sinna
allri bráðaþjónustu,“ segir hún.
„Ein ljósmóðir sem er í hjúkrunar-
félaginu og tveir læknar sem sinna
ómskoðunum,“ segir hún og bætir
við að ómskoðanir verði á bráða-
þjónustustigi. „Við sinnum að
sjálfsögðu bráðaþjónustu í áhættu-
mæðravernd, en annað verður að
bíða,“ segir Hildur. Kennarasam-
band Íslands lýsti í gær fullum
stuðningi við baráttu ljósmæðra og
skorar á ríkið að ganga strax til
samninga við ljósmæður og tryggja
þeim viðunandi kjör.
Óléttar kvíða
verkfallstíma
Ljósmæður boða til verkfalla í kjarabaráttu Ófrískar kvíðnar
Kristín Lind Styður
ljósmæður í baráttunni.
➤ Boðuð verkföll eru fimm tals-ins og hefjast 4.-5. september
og enda með ótímabundnu
verkfalli þann 29. september.
➤ Yfir 90% atkvæðabærra ljós-mæðra greiddu atkvæði um
boðaðar verkfallsaðgerðir
sem þær samþykktu nær ein-
róma.
VERKFALLSAÐGERÐIR
Talsmaður neytenda vill draga
úr umsýslu kostnaði vegna
smárra vörusendinga til Ís-
lands að utan. Talsmaðurinn
Gísli Tryggvason bendir á að
ef neytandi kaupir bækur,
geisladiska eða annað í
smáum stíl að utan bætist við
vsk. og í öðrum tilvikum toll-
ur. Umsýsla við að reikna vsk.
kostar 450 kr. - oft mun hærri
fjárhæð en vsk. sjálfur. Úr
þessu vill Gísli bæta þannig að
heim kominn pakki verði mun
ódýrari en nú er. Talsmaður
neytenda segir óhagkvæman
umsýslukostnað sem fyrst og
fremst byggja múra en litlu
skila í þjóðarbúið. bee
Gegn dýrum
diskum og dóti
Ódýrari pakka að utan
Það hefur gneistað á milli
þeirra Ólafs F. Magnússonar, frá-
farandi borgarstjóra, og Óskars
Bergssonar, borgarfulltrúa Fram-
sóknarflokksins, í vetur sem end-
urspeglar málefnalegar andstæð-
ur sem þeir standa fyrir. Það má
búast við nokkurri stefnubreyt-
ingu hjá meirihluta Sjálfstæðis-
flokksins í kjölfar þess að hann
fékk Óskar fyrir Ólaf F.
Ónýt hús?
Vikurnar áður en Ólafur F.
gekk úr „Tjarnarkvartettinum“
svokallaða og til liðs við Sjálf-
stæðisflokkinn var um fátt annað
talað í fjölmiðlum en húsafriðun
og framtíð húsanna við Laugaveg
4-6. Afstaða þeirra Óskars og
Ólafs til verndunar húsa í mið-
bænum var gjörólík. Fram-
kvæmdamaðurinn Óskar taldi
engan tilgang vera í því vernda
„ónýt hús“ eins og hann hefur
orðað það. Verndun 19. aldar
götumyndar Laugavegarins var
hins vegar eitt helsta baráttumál
hugsjónamannsins Ólafs F. í síð-
ustu kosningum. Þegar málefna-
samningur meirihluta F-lista og
Sjálfstæðisflokks var kynntur
kom í ljós að vernda ætti „eins og
kostur er“ húsin sem Óskar taldi
„ónýt“ en Ólafur F. menningar-
verðmæti. Síðan hafa þeir félagar
verið á gjörsamlega öndverðum
meiði í tengslum við fyrirhugaða
nýbyggingu Listaháskólans í mið-
borginni svo dæmi séu tekin.
Bitruvirkjun frestað
Ólafur F. hefur margsinnis lýst
því yfir að F-listinn sé „grænasta
framboðið“ í borgarmálunum.
Það kom því ekki á óvart að hann
hefði óskað Reykvíkingum til
hamingju með að stjórn Orku-
veitu Reykjavíkur hefði frestað
framkvæmdum við Bitruvirkjun.
Á sama fundi lýsti Óskar yfir
undrun vegna ákvörðunarinnar
sem hann sagði einkennast af
flumbrugangi. Síðar lagði Óskar
fram tillögu fyrir borgarráð um
að undirbúningi að framkvæmd-
um við Bitruvirkjun yrði haldið
áfram. Sú tillaga var felld og sagði
Kjartan Magússon, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins og stjórnar-
formaður Orkuveitunnar, í kjöl-
farið að hann væri „sannfærður
um að hafa tekið rétta og vel
ígrundaða ákvörðun“ þegar
Bitruvirkjun var frestað.
Skipt um skoðun?
Það er augljóst að Sjálfstæðis-
flokkurinn mun þurfa að breyta
töluvert um afstöðu í þessum
tveimur málum til þess að þókn-
ast Óskari. Að auki er líklegt að
brotthvarf Reykjavíkurflugvallar
úr Vatnsmýri komist aftur á dag-
skrá en Ólafur F. hefur hingað til
verið eini borgarfulltrúinn sem
lagst hefur alfarið gegn því.
Hverju breytir það
að fá Óskar inn?
Elías Guðjónsson
elias@24stundir.is
FRÉTTASKÝRING
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Á morgun hefst gæsaveiðitímabilið og eflaust margir
veiðimenn í rásmarkinu. Ekki er úr vegi að kanna verð
á algengum skotapökkum hjá veiðiverslunum. Þessi
könnun er alls ekki tæmandi en gefur vonandi hug-
mynd um kostnað. Rétt er að birta tegundir því sjálf-
sagt eru misjöfn gæði á skotum.
Skotið á 48 til 79 krónur
Þuríður
Hjartardóttir
NEYTENDAVAKTIN
Gæsaskot - 42 gr. hleðsla, stærð 2 ¾ “
Verslun Tegund Verð Stk.verð
Útilíf* Expr. (nr. 3,4) 1.199 48,0
Sportbúðin Hull (nr.4) 1.295 51,8
Hlað Hlað (nr.1,2,3)1.690 67,6
Intersport Eley (nr.1,3,4) 1.690 67,6
Vesturröst** Winch.
(nr.2,4)
790 79,0
*með 20% afslætti ** tíu stk.
Krókhálsi 1
Ps. tilvalið í kofagerð
og í sumarbústaðinn.
Þeir fást gefins
Fyrstur kemur fyrstur fær
Við vorum að fá nýja
límmiðaprentvél
Það væri synd að henda kössunum utan af henni