24 stundir


24 stundir - 19.08.2008, Qupperneq 6

24 stundir - 19.08.2008, Qupperneq 6
Eftir Elías Jón Guðjónsson elias@24stundir.is „Ég hugsa að kaflinn um lands- skipulagið verði látinn bíða,“ segir Kjartan Ólafsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins og varaformaður umhverfisnefndar Alþingis, að- spurður hvort búið sé að greiða úr ágreiningi um landsskipulagskafla í frumvarpi að nýjum skipulagslög- um. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinanr og formaður umhverfisnefndar, býst við að leyst verði úr ágreiningi áður en þing kemur saman í byrjun september. „Ég held að áhyggjur af lands- skipulaginu séu flestar ástæðulaus- ar og það hljóti að vera tiltölulega hægur vandi að skerpa og skýra þau ákvæði þannig að allir geti ver- ið sæmilega sáttir við þau,“ segir Helgi. Situr líklega á hakanum Kjartan segir að sá kafli frum- varps að skipulagslögum sem fjallar um landsskipulag hafi ein- faldlega verið tekinn út fyrir sviga og ekkert hafi verið unnið í honum í sumar. „En aðrir hlutar hafa verið sendir út til umsagnar eftir að nefndin gerði sínar tillögur að breytingum og ég á von á því að það fari fyrir þingið þegar það kemur saman,“ segir Kjartan. Að- spurður hvort líkur séu á því að kaflinn um landsskipulagið verði tekinn upp aftur á næsta þingi segir hann að svo gæti farið að hann yrði látinn sitja á hakanum. „Ég get ekkert um það sagt í rauninni,“ segir Kjartan aðspurður um lík- urnar á því og bætir við: „Það er ekki vilji Sambands íslenskra sveit- arfélaga að hann verði tekinn upp. Við sjálfstæðismenn höfum ekki áhuga á því heldur.“ Útilokar ekkert Helgi segir að nefndin muni freista þess í ágúst að ná samkomu- lagi um landsskipulagið áður en þingi verður haldið áfram í byrjun september. „Það er nefndarinnar að fjalla um málið og ég ætla ekki að útiloka eitt eða neitt í vinnslu þess eða annarra,“ segir Helgi og bætir við: „Það á eftir að koma í ljós hvernig landið liggur í því. Þessi þáttur málsins hefur bara ekki verið til neinnar umfjöllunar í nefndinni þannig að ég held að það eigi bara eftir að reyna á það,“ segir Helgi. Landsskipulagið mun líklega bíða  Kjartan Ólafsson býst ekki við að ákvæði um landsskipulag verði hluti skipulagslaga  Helgi Hjörvar segir að reynt verði að leysa málið áður en þing kemur saman ➤ Þórunn Sveinbjarnardóttirumhverfisráðherra hefur lagt mikla áherslu á að ákvæði um landsskipulagsáætlun verði hluti af nýjum skipulags- lögum. ➤ Hún hefur meðal annars bentá að slík áætlun gæti verið verið verkfæri fyrir stjórnvöld við umhverfisvernd. ➤ Samband íslenskra sveitarfé-laga hefur aftur á móti lagst alfarið gegn hugmyndinni sem það kallar „aðför að sjálfstjórnarrétti sveitarfé- laga“. SKIPULAGSLÖG 24stundir/Frikki Þórunn Sveinbjarnardóttir Hef- ur lagt mikla áherslu á ákvæði um landsskipulagsáætlun. 6 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 24stundir Skráning í Reykjavíkurmaraþon Glitnis hefur verið góð og ef fram fer sem horfir stefnir í metþátttöku um næstu helgi. Á föstudaginn höfðu liðlega 20 prósentum fleiri skráð sig til leiks en um svipað leyti í fyrra. Frímann Ari Ferdinandsson, framkvæmdastjóri Reykjavíkur- maraþons, segir að ef skráningin þróist með svipuðum hætti þessa síðustu daga og hún gerði í fyrra, stefni í metþátttöku í hlaupinu. Hann segir þó ómögulegt að segja hvort svo verði. „Veðrið getur sett strik í reikninginn og eins getur verið að fólk sýni meiri fyrirhyggju í ár og skrái sig fyrr og lækki þannig skráningargjöldin.“ Alls tóku 11.457 hlauparar þátt í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis á síð- asta ári, en þar af hlupu um sjö þúsund í götuhlaupi maraþonsins og liðlega 4.400 börn tóku þátt í Latabæjarhlaupinu á lóð Háskóla Íslands. atlii@24stundir.is Styttist í Reykjavíkurmaraþon Glitnis Stefnir í metþátttöku Elías Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri fjár- málasviðs N1, segir að útreikningar Landssambands kúabænda á álagningu olíufélaganna séu fráleitir. Samkvæmt útreikningum landssambandsins hefur álagning olíufélaganna hækkað um 23 prósent á síð- ustu tólf mánuðum. Þetta segir Elías einfaldlega vera alrangt. „Það eru þvílíkar staðreyndavillur í þessum útreikningum að það tekur því varla að svara þessu. Þar fyrir utan eru menn eingöngu að skoða heims- markaðsverð á olíu og gengi krónunnar en taka ekkert tillit til vaxtastigs eða annarra kostnaðarliða.“ Már Erlingsson, innkaupastjóri hjá Skeljungi, segir að í útreikningi kúabænda sé ekki tekið tillit til fjár- magnskostnaðar og því gefi þessi útreikningur ekki rétta mynd af kostnaðarþróun. Standa við útreikninga Þórólfur Sveinsson, formaður Landssambands kúa- bænda, segir að þar á bæ standi menn við útreikn- ingana. „Þetta rímar við útreikninga sem Félag ís- lenskra bifreiðaeigenda hefur verið að gera sem segir sitt. Við teljum ekki innistæðu fyrir þessu.“ Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra skoraði í gær á olíufélögin að lækka eldsneytisverð í ljósi lækk- andi heimsmarkaðsverðs á olíu. Samkeppni á markaði ætti að leiða til slíkrar lækkunar. freyr@24stundir.is Forráðamenn olíufélaganna gagnrýna útreikninga kúabænda Segja útreikningana fráleita Garðyrkjubændur á Flúðum hafa áhyggjur af ásókn fólks í garðana sem þeir eru búnir að upp- skera úr og ásókn í afskurð af káli sem þeir hafa fleygt. „Ég vona bara að afskurðurinn, sem rotnar fljótt og rottur hafa kannski farið í, sé ekki notaður til manneldis,“ segir Reynir Jónsson, garðyrkjubóndi á Flúðum. Þorleifur Jóhannesson, sem einnig er garðyrkjubóndi á Flúð- um, segir þá sem komið hafa til sín hafa beðið um leyfi. „Sá sem færði mér nafnspjaldið sitt var frá kín- verska sendiráðinu. Þetta er af- skaplega elskulegt fólk og kurteist og það hefur komið færandi hendi og gefið mér hvítvín og eitt og ann- að. Fólkið spurði hvort það mætti fara í garðana sem ég var búinn að uppskera úr og taka afganga og af- skurð sem fellur til þegar maður snyrtir kálið í sendingar. Ég gaf þeim fúslega leyfi til þess. Þau virð- ast geta nýtt þetta betur en við og líta á þetta sem sóun á verðmæt- um.“ Þorleifur segir komum Kínverj- anna í kálgarðana hafa fjölgað seinni hluta sumars. Samkvæmt frásögnum annarra bænda hefur verið farið í kálgarða án leyfis. Þorleifur telur að um mis- skilning hafi verið að ræða. „Þeir átta sig kannski ekki á því hver á hvaða garð. Ég fyrir mína parta hef ekki orðið var við neitt misjafnt.“ Þeir sem létu greipar sópa fyrir rúmri viku í skólagörðunum við Dalbæ í Elliðaárdal báðu börnin og þá öldruðu sem þar eru með garða ekki um leyfi. „Ég tel að þar hafi ekki verið börn að verki. Það sem var valið, einkum spergilkál, sellerí og hvítkál, var orðið fullþroskað og skorið á fagmannlegan hátt. Þetta er rosalega sárt fyrir börnin,“ segir Kristín Júlíana Erlendsdóttir, um- sjónarmaður skólagarðanna. ingibjörg@24stundir.is Kínverjar duglegir að nýta það sem til fellur í kálgörðum Hirða afskurðinn af kálinu Herkúles-flugvél bandarísku strandgæslunnar lenti í gær á Reykjavíkurflugvelli en hing- að er vélin komin til að taka þátt í björgunaræfingu sem fram fer í vikunni með Land- helgisgæslu Íslands. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Landhelgisgæslunni verð- ur æfð björgun farþega skemmtiferðaskips sem lendir í áföllum á hafinu milli Ís- lands og Grænlands. Fyrir um það bil ári voru stofnuð formleg samtök 18 strandgæslustofnana á svæð- inu sem kallast North Atlantic Coast Guard Forum. Bandaríkin og gæslan Æfa saman björgun á hafi Gylfi Arnbjörnsson fram- kvæmdastjóri Alþýðu- sambands Íslands vill ekki láta uppi hvort hann gefi kost á sér sem forseti sambands- ins kom- andi árs- fundi þess í lok október næst- komandi. Ingibjörg R. Guð- mundsdóttir varaforseti ASÍ sagðist fyrr í sumar vera að hugsa málið en ekki náðist í hana nú. fr Forsetakjör hjá ASÍ Ekkert fram- boð komið Grófinni 13a • 230 Reykjanesbæ • Sími: 534-2900 • jon@arcticwear.is Opnunartími: Mánudaga til föstudaga 08:00 til 19:00 Laugardaga 08:00-17:00 Arctic Wear er einnig endursöluaðili Norska vinnufataframleiðandans 15-50% afslátt í ágúst. Arctic Wear er þekkt vörumerki á Íslandi sem sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á vinnufatnaði, öryggisfatnaði, útivistarfatnaði og öryggisskóm. Við erum flutt í Reykjanesbæ og til að halda upp á ný opnaða heildverslun okkar bjóðum við

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.