24 stundir - 19.08.2008, Page 13
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 13
Heilmikil spenna er ístjórnmálunum ítengslum
við nýjan borg-
arstjórnarmeiri-
hluta. Alþýða
manna er þó ekki
spenntari en svo að
hún nennir vart að
svara skoðanakönnunum um
stuðning við flokka. Spennan er í
raun alveg bundin við stjórn-
málamennina sjálfa og langmest
er hún innan Framsóknarflokks-
ins eins og ævinlega þegar bitlinga
er von. Sjóðheit nöfn í nefnda-
kapli borgarinnar eru Björn Ingi
Hrafnsson og Lilja Dögg Al-
freðsdóttir, ásamt föður hennar,
Alfreð Þorsteinssyni, einum
reyndasta veltikarli íslenskra
stjórnmála.
Þótt spáð og spekúlerað séum bæði Björn IngaHrafnsson og Alfreð í
stjórn Orkuveitunnar sjá menn
annmarka á því að
Björn Ingi setjist
þar, því stjórnarseta
í Orkuveitu Reykja-
víkur samrýmist
varla ritstjórastöðu
á Markaði Frétta-
blaðsins. Þá þykir Alfreð fullmikil
afturganga í Reykjavík. En eins og
sést hefur í pólitík almennt og í
Reykjavík sérstaklega kemur fátt
lengur á óvart. Óskar Bergsson,
Óskarinn í Reykjavík, þarf að taka
fast á til að Reykvíkingum bregði
við. Hann mun hins vegar ætla að
tryggja sér vaska sveit í nefndir og
ráð sem geti meðfram störfum í
þágu borgarinnar bjargað flokkn-
um frá tortímingu í næstu kosn-
ingum.
Sjálfstæðismenn óttuðusthneyksli í Reykjavík, segirDV og býður Ólafi F.
Magnússyni að hrekja ýmsar
kjaftasögur um
ósiðsamlega hegðun
á knæpum borg-
arinnar að und-
anförnu. Mein-
hornin telja hins
vegar að hegðun
sjálfstæðismanna hafi verið sam-
fellt hneyksli allt frá því borg-
arstjórn Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar sprakk. Óþarft sé af þeim
að hræðast önnur hneyksli en
þeir framleiða daglega sjálfir – og
það bláedrú! Augljóslega er
flokksflótti víða brostinn á og
fleiri en Marsibil Sæmund-
ardóttir hyggja á vistaskipti. Þá
eru nýjar fréttir af F-listanum í
borgarstjórn boðaðar strax í dag.
beva@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Að undanförnu hefur talsvert
verið rætt um Strætó bs. Stjórn
fyrirtækisins hefur boðað enn
frekari niðurskurð á þjónustu til
að mæta auknum kostnaði, ekki
síst vegna hækkandi olíuverðs.
Ekki þykir mér þessi umræða bera
vott um mikinn áhuga á að efla
almenningssamgöngur og það er
háalvarlegt mál.
Í sumar hef ég tekið eftir því að
miklu fleiri en áður hjóla nú um
götur og gangstéttir höfuðborg-
arinnar. Ekki er ólíklegt að slæmt
efnahagsástand og hátt bensínverð
hafi þar eitthvað að segja. Al-
menningur hefur þannig brugðist
á sinn hátt við kreppunni en legg-
ur um leið sitt af mörkum til um-
hverfisins og fær í kaupbæti
ókeypis holla hreyfingu. Olía er
ekki óþrjótandi auðlind og ekki er
ólíklegt að olíuverð haldist hátt.
Að sama skapi er ljóst að við get-
um ekki haldið sífellt áfram að
auka útblástur gróðurhúsaloftteg-
unda en stór hluti þeirra á höf-
uðborgarsvæðinu kemur frá sam-
göngum. Því er mikilvægt að fólk
hafi aðra valkosti en einkabílinn.
Einkabíllinn var löngum heilög
kýr íslenskra hægrimanna en
m.a.s. þeir hörðustu í þeirra hópi
sjást nú á reiðhjólum og benda á
nauðsyn þess að hver og einn
leggi sitt af mörkum í þágu um-
hverfisins. Almenningssamgöngur
geta þar gegnt lykilhlutverki ef
vilji er fyrir hendi.
Strætósamgöngur víða um
heim eru með þægilegustu sam-
göngumátum sem hægt er að
finna. Hins vegar þarf að uppfylla
ákveðin skilyrði til að þær virki
sem skyldi. Aðalmálið er ferða-
tíðnin: Ferðir strætó þurfa að vera
mun tíðari en þær eru nú til að
hann sé þægilegur ferðamáti. Í
sumar fóru bílarnir á klukku-
stundar fresti og í sumum til-
fellum virtust allir bílar sem fóru í
sömu átt vera á sama tíma til að
tryggja að maður yrði stranda-
glópur! Ferðir á fimmtán mínútna
fresti á daginn og tuttugu til þrjá-
tíu mínútna fresti á kvöldin og
um helgar eru algjört lágmark til
að Strætó bs. virki sem skyldi.
Endurskoða þarf leiðakerfið sem
samþykkt var 2005 og meta
reynslu strætófarþega í þeim efn-
um. Endurskoða þarf gjaldfrjálsu
stefnuna – úr því að ákveðið hef-
ur verið að gefa vissum hópum
frítt í strætó er ekki kominn tími
til að gefa frítt á línuna? Ég tel þó
að sú aðgerð muni ekki skila eins
mikilli farþegafjölgun og tíðari
ferðir – í okkar samfélagi telst
tími jafnvel dýrmætari en pen-
ingar.
Þingmenn Vinstri grænna
lögðu fram lagafrumvarp nú í vet-
ur um breytingar á lögum um
virðisaukaskatt og lögum um ol-
íugjald og kílómetragjald. Þar
leggja þau Álfheiður Ingadóttir og
Árni Þór Sigurðsson til að fyr-
irtæki sem reki almenningssam-
göngur sitji við sama borð og fyr-
irtæki sem reka hópferðabifreiðar
og fái tvo þriðju hluta virðisauka-
skatts endurgreidda af nýjum al-
menningsvögnum. Ennfremur að
þau fái olíugjald að fullu end-
urgreitt. Miklu skiptir að ríkis-
valdið aðstoði sveitarfélögin eftir
fremsta vegni við rekstur almenn-
ingsvagna enda er það þjóðþrifa-
mál.
Síðan þurfa sveitarfélögin á
höfuðborgarsvæðinu að gera það
upp við sig hvort þau vilja leggja
meira fé í rekstur Strætó bs. sem
kostar þrjá milljarða á ári – eða
ráðast í fleiri mislæg gatnamót
(en mislæg þriggja hæða gatna-
mót Miklubrautar og Kringlumýr-
arbrautar kosta t.d. á bilinu sex til
12 milljarða) og vinna þannig að
framtíðarsýn þar sem fleiri nota
vistvænni samgöngumáta og
minna landrými fer undir bíla og
umferð (en sem stendur fer um
helmingur alls landrýmis í
Reykjavík undir bíla og umferð!).
Með slíkri framtíðarsýn fær al-
menningur valkost við einkabílinn
sem er betri fyrir umhverfið, hag-
kvæmari fyrir samfélagið og ein-
staklinginn og sparar okkur land-
rými á höfuðborgarsvæðinu.
Vonandi hefur stjórn Strætó bs.
þetta í huga þegar hún kemur
saman núna í lok ágúst til að
ræða hugsanlegan niðurskurð á
þjónustu.
Höfundur er varaformaður
Vinstri grænna
Strætó fyrir umhverfið
VIÐHORF aKatrín Jakobsdóttir
Með slíkri
framtíðarsýn
fær almenn-
ingur valkost
við einkabíl-
inn sem er
betri fyrir
umhverfið, hagkvæmari
fyrir samfélagið og ein-
staklinginn og sparar
okkur landrými á höf-
uðborgarsvæðinu.
– Afslátt eða gott verð?
Grennandi
meðferð
Rétt verð 55.700 kr.
Sumartilboð
29.200 kr.
CELLÓNUDD: Kemur blóðrásinni af stað, hjálpar til við
frekara niðurbrot og losar líkamann við eiturefni.
HÚÐBURSTUN: Opnar húðina og gerir leirnum kleift
að fara vel inn í hana.
HLJÓÐBYLGJUR: Brjóta niður fitu.
VAFNINGAR: Leir er borinn á húðina sem gerir hana
stinna, silkimjúka og er jafnframt mjög vatnslosandi.
Síðan er notaður Universal líkamsvafningur en með
honum missir þú að minnsta kosti 16 cm í hvert skipti.
FLABÉLOS: Að lokum er gott að fara í nokkrar mínútur
í Flabélos tækið.
hringið núna í síma 577 7007
Tíðindin úr borgarstjórn eru umræðuefni opins
fundar hjá Samfylkingarfélaginu í Reykjavík
miðvikudaginn, 20. ágúst, kl. 17 að
Hallveigarstíg 1
Gestur fundarins er Dagur B. Eggertsson
oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn
Fundarstjóri: Björk Vilhelmsdóttir,
borgarfulltrúi
NÝ STAÐA Í
BORGINNI
Allir velkomnir
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við