24 stundir - 19.08.2008, Blaðsíða 14

24 stundir - 19.08.2008, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 24stundir Innritun hefst miðvikudaginn 20. ágúst og stendur til 27. ágúst Nemendur skólans þurfa að staðfesta umsóknir sínar á skrifstofu skólans Engjateigi 1 sem er opin virka daga kl. 12 - 18. Jafnframt eru nemendur beðnir að afhenda afrit af stundaskrám sínum. Nokkur pláss laus í forskóla í Árbæ og Breiðholti. I . Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@24stundir.is Hann var rekinn frá Woolworth- verslanakeðjunni bresku fyrir tæp- um fjörutíu árum. Nú fer hann fyr- ir hópi fjárfesta sem vilja kaupa all- ar smásöluverslanir keðjunnar. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Malcolm Walker kemur að versl- anakeðju með þessu hætti, því þeg- ar Baugur var í forsvari kaupenda að Iceland-verslanakeðjunni í Bret- landi fyrir rúmum þremur árum, þá var Walker einmitt ráðinn til að stýra fyrirtækinu, sem hann hafði stofnað árið 1970 en verið hrakinn frá árið 2001. Frá því var greint í fjölmiðlum nú um helgina að Baugur hefði lagt fram tilboð í smásöluhluta Wool- worth-verslanakeðjunnar, sem rek- ur yfir 800 verslanir í Bretlandi, og sem Baugur á um 11% hlut í. Wal- ker fór fyrir tilboðinu en stjórn Woolworth hafnaði svo til strax. Segir í frétt á fréttavef Financial Times (FT) að fáir gerir ráð fyrir að málinu sé þar með lokið. Smásölu- hlutinn hafi gengið illa, því 1,7 milljarða punda sala keðjunnar hafi ekki skilað nokkrum hagnaði. Hefur skilað góðum árangri Marcolm Walker er sextíu og tveggja ára að aldri, fæddur í Huddersfield í Vestur-Yorkskíri í Bretlandi, kvæntur og þriggja barna faðir. Hann hóf störf hjá Woolworth-verslanakeðjunni árið 1964. Þaðan var hann rekinn ásamt félaga sínum, Peter Hinchcliffe, ár- ið 1970. Yfirmaður þeirra hafði komist að því að þeir hefðu til hlið- ar við störf sín hjá keðjunni komið á fót eigin verslun, fyrstu Iceland- frystivöruversluninni. Við tók vinna við að koma þeirri keðju á laggirnar, sem gekk vel mestöll þau liðlega þrjátíu ár sem hann starfaði þar, en samkvæmt frétt í Guardian skilaði keðjan hagnaði í 29 ár á þeim tíma sem hann stýrði henni samfellt frá árinu 1970 til 2001. Árið 1975 voru Iceland-verslan- irnar orðnar 15 talsins í Norður- Wales. Fyrirtækið var svo skráð í kauphöllinni í London árið 1984 og voru verslanirnar þá orðnar 760 talsins víðs vegar um Bretland. Erfiðleikar fóru að koma upp í rekstri Iceland í lok tíunda áratug- ar síðustu aldar, en fyrirtækið hafði þá fært sig úr sölu á frosnum vörum eingöngu yfir í sölu á líf- rænt ræktuðum matvörum. Tók starfinu í hefndarhug Walker hætti hjá Iceland á árinu 2001. Þá hafði hann selt hlutabréf í fyrirtækinu rétt áður en afkomu- viðvörun frá því var send út. Var hann sakaður um að nýta sér inn- herjaupplýsingar en var síðar hreinsaður af öllum ákærum. Einu ári eftir að Baugur keypti Iceland-keðjuna og Walker tók aft- ur við, sagði hann í samtali við Morgunblaðið að hefndarhugur hefði ráðið talsverðu um að hann tók við starfinu. Ólíklegt er að slíkt eigi við nú, því líklegt er að hann líti á það sem happ að hafa verið rekinn frá Woolworth árið 1970. Hann fór aftur inn í kuldann  Malcolm Walker sneri aftur til Iceland-verslanakeðjunnar  Sag- an gæti endurtekið sig varðandi smásöluverslanir Woolworth Stjórnandinn Bundnar eru vonir við að Malcolm Walker geti snúið rekstr- inum við hjá Woolworth. ➤ Marcolm Walker, sem er 62ára að aldri, hóf störf hjá Wo- olworth árið 1964. ➤ Hann var rekinn frá Wool-worth árið 1970, en þá hafði hann stofnað Iceland. ➤ Honum var ýtt út úr Icelandárið 2001 en kom aftur inn í kuldann með Baugi 2005. STJÓRNANDINN MARKAÐURINN Í GÆR              ! "##                      !   " #  $    % &'()* &   + ,- ./-  0        12    '    '3.   .4 2  *5 / 62 62, , 7  ,      8 2    8     ,/  !  "                                                     7,   6 , 9   " & ;< =>? @A< B >CD ;<< ;DA @=@ @=> =C= DC? =A; DB; =DA D>D = CBC + CB? ?@= <DB AB@ =AA B;= ?; DA> ?<< C< C=< AC? >D; BD; ?BB >> ?C? >@< < ==A <=> CA= B@; ? A;@ @@@ + + + + ;;C C<= <<< + + DEC? =E?; >@EC< @E;@ ;=ED= ;?E>< ;CE== C>DE<< >?E?< AAE;< BEAC @EC; @<E;< ><DE<< ;C><E<< >?@E<< ;??E<< + + + + BA@=E<< ;<E<< + DEC@ =E?@ B<E<< @E>D ;=EC= ;?EB= ;CEC< C>@E<< >?E=< AAE?< BE@= @EC= @;E<< ><@E<< ;CB<E<< >=;E<< ;?CE<< >;E@< + + AE=< B@><E<< ;<E=< =E<< ./  ,  ? = ;< =? >@ > + DD B= @ ;; BC C + > B ;< + + + + ;; + + F  , , ;A A ><<A ;A A ><<A ;A A ><<A ;A A ><<A ;A A ><<A ;A A ><<A ;= A ><<A ;A A ><<A ;A A ><<A ;A A ><<A ;A A ><<A ;A A ><<A ;A A ><<A ;? A ><<A ;A A ><<A ;A A ><<A ;A A ><<A ;D C ><<A ;B A ><<A D ;> ><<C B D ><<A ;A A ><<A ;? A ><<A C B ><<A ● Úrvalsvísitala Kauphallar OMX á Íslandi hækkaði um 1,94% í gær og var lokagildi hennar 4.397,95 stig. ● Mest var hækkun á bréfum Færeyjabanka, eða um 4,64%, og þá hækkaði gengi Straums- Burðaráss um 3,94% og Eikar banka um 3,75%. ● Gengi bréfa Bakkavarar lækkaði um 0,34% í gær og var það eina fé- lagið sem lækkaði í verði í við- skiptum gærdagsins. ● Heildarvelta í kauphöllinni var 18,3 milljarðar dala og þar af var velta með hlutabréf 3,4 milljarðar króna. ● Mestu munaði um 840 milljóna króna viðskipti með bréf Lands- bankans, en þá nam velta með bréf Kaupþings 630 milljónum og Glitnis 575 milljónum króna. Peningamálastefnan virkar ekki og því er ákjósanlegra að taka upp evru hér á landi til að tryggja verð- stöðugleika. Þetta sagði Jón Steinsson, dósent í hagfræði við Columbia-háskólann í New York, í fyrirlestri í Háskóla Íslands í gær um stöðu efnahagsmála. Sagði hann vandamál sem íslensk stjórnvöld horfðu fram á vera tvenns konar; annars vegar að ná niður verðbólguvæntingum og hins vegar að auka trúverðugleika íslensks fjármálalífs. mbl.is Evran ákjósanlegri Hremmingarnar á dönskum hús- næðismarkaði hafa nú náð yfir til Svíþjóðar. Húsnæðisverð í Málmey og svæð- inu þar í kring hefur lækkað svip- að og í Kaupmannahöfn, og tals- vert meira en víðast hvar annars staðar í Svíþjóð. Þetta kemur fram í frétt í danska viðskipta- blaðinu Børsen. Er þar vitnað í Per Johnler, aðstoðarforstjóra fasteignafélagsins Fastighets- byrån í Svíþjóð. Húsnæðisverð í Danmörku lækk- aði um 9,3% á fyrsta fjórðungi þessa árs og var lækkunin svipuð í Málmey. Síðastliðna tólf mánuði lækkaði húsnæðisverðið í Svíþjóð hins vegar að jafnaði um 3% en um 10% í Málmey. gjg Vandinn dreifist til Svíþjóðar Spá harðri lend- ingu í Bretlandi Viðskiptaráð Bretlands spáir því að allt að 300 þúsund manns missi vinnuna þar í landi fram til ársins 2011 og að atvinnulausir verði þá um tvær milljónir, samkvæmt Tim- esOnline. Gangi spáin eftir verður atvinnuleysið svipað og þegar Verkamannaflokkurinn tók við völdum. gjg Mikilvægt hlutverk lífeyrissjóða Stærstu lífeyrissjóðir landsins lánuðu sjóðfélögum sínum samtals 14 milljarða króna á fyrstu sjö mánuðum þessa árs til fasteignaviðskipta. Íbúðalánasjóður lánaði á sama tímabili 33 milljarða. „Af þessum tölum má glöggt sjá að lánveitingar lífeyrissjóðanna hafa sem fyrr mikilvægu hlutverki að gegna í viðskiptum með fasteignir landsmanna á sama tíma og viðskiptabankar og sparisjóðir hafa dregið verulega úr lánum til fasteignakaupa.“ Svo segir í frétt á heimasíðu Landssamtaka lífeyrissjóða á netinu (ll.is). Einnig segir að mikilvægt hlutverk lífeyrissjóðanna hafi gjarnan gleymst í umræðunni um fasteignamarkaðinn. Bæði séu þeir þýðing- armikil uppspretta fjármagns til Íbúðalánasjóðs með kaupum íbúða- bréfa og jafnframt hafi þeir um áratugi verið stórir lánveitendur á fast- eignamarkaði með lánveitingum til sjóðfélaga. gjg Ekki hrifinn Alan Greenspan, fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna, er ekki hrifinn af því hvernig rík- isstjórn Bush ætlar að leysa hálf- opinberu íbúðalánasjóðina úr þeirri snöru sem þeir hafa komið sér í vegna undirmálslánanna þar í landi, samkvæmt viðtali við Wall Street Journal. gjg FÉ OG FRAMI frettir24stundir.is a Var hann sakaður um að nýta sér innherjaupplýsingar en var síðar hreinsaður af öllum ákærum. SALA JPY 0,7425 0,99% EUR 120,50 0,98% GVT 157,25 0,98% SALA USD 81,88 1,17% GBP 152,85 0,71% DKK 16,156 0,97%

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.