24 stundir


24 stundir - 19.08.2008, Qupperneq 20

24 stundir - 19.08.2008, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 24stundir ugasta sauðfjárræktarland heims. Reyndar erum við mjög framarlega. Í dag kemur fjöldi bænda árlega til dæmis frá Noregi til að kynna sér sauðfjárrækt á Íslandi sem sýnir að við erum á réttri leið. Ísbú flytur í dag inn allt sem við- kemur örmerkjum og örmerkja- lestri í búfénaði. „Þar höfum við unnið að þróunarverkefni und- anfarin fjögur ár sem nú er að bera ávöxt. Við höfum í samstarfi við- tölvudeild Bændasamtaka Íslands, sláturleyfishafa, nokkur erlend fyr- irtæki auk bænda víðsvegar um landið verið að þróa lausnir. Faðir minn hefur farið tvisvar sinnum til Nýja-Sjálands vegna þessa verk- efnis. Ýmsar hindranir hafa verið í veginum en nú teljum við tímabært að kynna og bjóða bændum þessar lausnir. Á Landbúnaðarsýningunni á Hellu verðum við með örmerkja- lesara fyrir búfénað af öllum stærð- um og gerðum, vigtunarbúnað og fleira. Við höfum einnig flutt inn og selt til dæmis brynningarskálar fyrir allan búfénað, mjaltatæki fyrir sauðfé, ýmsar smávörur fyrir bú- Eftir Sigurð Boga Sævarsson sigbogi@simnet.is „Sauðfjárbúskapur hefur breyst mjög hratt á undanförnum tíu ár- um. Sú þróun mun halda áfram. Við verðum að vera vakandi, koma auga á tækifæri framtíðarinnar og nýta þau,“ segir Ásmundur Daða- son, sauðfjárbóndi og fram- kvæmdastjóri Ísbús ehf. Fyrirtækið flytur inn og selur ýmsar smávörur tengdar landbúnaði með sérstaka áherslu á sauðfé. Þannig var, að ýmsar vörur sem Ásmundur hafði hug á að nota í sínum búskap, voru ekki fáanlegar hérlendis auk þess sem honum þótti skorta þekkingu á þörfum sauðfjárbænda hjá fyr- irtækjum sem þjónusta bændur. Hann hóf því eigin innflutning. Með lausnir á réttri leið Ásmundur býr á Lambeyrum í Laxárdal í Dölum. Þar rekur hann ásamt eiginkonu sinni, Sunnu Birnu Helgadóttur, og föður sínum, Daða Einarssyni, eitt stærsta sauð- fjárbú landsins. Þau eru með um það bil 1.250 fjár á vetrarfóðrum og eru umsvifin í búrekstrinum býsna mikil. „Markmið íslenskra bænda hlýtur að vera að Ísland sé eitt öfl- fénað, áburð, rúlluplast og fleira,“ segir Ásmundur. 500 fjár á dag Í samvinnu við breskt fyrirtæki bauð Ísbú á síðasta ári upp á rún- ingsþjónustu hér á landi. Það gekk vel og býst Ásmundur við að enn fleiri nýti sér þessa þjónustu á þessu og næsta ári. „Hingað til lands koma sérhæfðir rúningsmenn sem eru að rýja allan ársins hring víðs- vegar um heiminn og hafa þetta að fullri vinnu. Afköstin eru mikil. Þessir menn rýja 300-350 fjár á meðal vinnudegi þar. Auk þess höf- um við verið að prófa ýmsar nýjar vörur tengdar rúningi og bjóðum eitt mesta úrval landsins af rúnings- vörum. Rúningssérfræðingur frá samstarfsfyrirtæki okkar í Bretlandi verður á sýningunni til að veita fag- lega ráðgjöf í þessum efnum. Við höfum einnig verið að flytja inn og eða selja brynningarskálar fyrir all- an búfénað, mjaltatæki fyrir sauðfé, ýmsar smávörur fyrir búfénað, áburð, rúlluplast og fleira.“ Með ríka þekkingu Enda þótt ábúendur á Lamb- eyrum hafi flutt inn landbún- aðarvörur um nokkurt skeið er það fyrst núna á Landbúnaðarsýning- unni á Hellu sem starfsemin er kynnt undir merkjum Ísbús. „Við leggjum ríka áherslu á að bjóða ein- göngu vörur sem við höfum ríka þekkingu á. Einnig kappkostum við að leita ávallt uppi nýjar vörur sem ekki hafa áður verið seldar hér- lendis.“ Rekið úr réttunum Ísbú býður upp á ýmsar vörur tengdar sauðfjárrækt, sem Ásmundur segir búgrein í mikilli þróun. Ísbú kynnir sauðfjártengdar vörur Örmerki og öflugir rúningsmenn ➤ Sauðfjárbúskapur hefurþróast hratt á undanförnum árum. ➤ Með fjölbreyttar búrekstr-arvörur. ➤ Styrkur að vera í Dölunum. ÍSBÚÁ Lambeyrum í Dölum er eitt stærsta sauðfjárbú landsins. Bóndinn þar starfrækir aukinheldur fyrirtækið Ísbú sem selur ýmsar smávörur sem gagnast fjárbændum vel. Hjónin Jón Ingi Jónsson og Jó- hanna Sveinsdóttir á Þórustöðum í Ölfusi hafa um árabil unnið að gerð Lifandi búháttasafns sem mun sýna búskap eins og hann var í kringum 1930 til 1940. Gestir eiga þar að geta horfið inn í þennan tíma og upplifað hann nákvæm- lega eins og hann var og séð skepn- urnar í sínu náttúrulega umhverfi, heyskap eins og þá tíðkaðist og séð hvernig mjólk og ull voru unnin. Einnig geta gestir hitt fyrir heim- ilisfólkið í fötum frá þessum tíma í sínum daglegu störfum allt árið um kring. Hjónin hafa verið fengin til þess að sjá um sýningu á gömlum bú- háttum á Landbúnaðarsýningunni á Hellu. Þar munu þau tjalda til öllu því sem við kemur búskap frá því um 1930 til 1945, eins og til dæmis hestdregnum vinnuvélum, heybandslest, heyvinnutækjum, mjólkurvinnslutækjum og fleiru. Einnig verða til sýnis myndskeið sem sýna gamla búskaparhætti, eins og ullarvinnu, túnrækt, kaup- staðarferðir og heyskap. Þá munu hjónin einnig kynna hugmynda- fræðina á bak við Lifandi búhátta- safn sem vonir standa til að munu rísa innan fárra ára á Ölfusi, en eins og er standa yfir viðræður við sveitarfélagið Ölfus um hentugt land undir Lifandi búháttasafn. Lifandi búháttasafn á Landbúnaðarsýningunni Horft inn í gamlan tíma Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur dista@24stundir.is Síðasta landbúnaðarsýning á vegum Búnaðarsambandsins var haldin ár- ið 1978. Búnaðarsamband Suður- lands endurvekur því gamla hefð með því að efna til veglegrar land- búnaðarsýningar. Sýningin er haldin í tilefni af 100 ára afmæli þess og þá verður bæjarhátíðinni Töðugjöldum á Hellu fléttað inn í dagskrá sýning- arinnar. Jóhannes Hr. Símonarson sér um framkvæmd sýningarinnar og er eðli málsins samkvæmt hlaðinn verk- efnum svo allt megi ganga upp enda er sýningin ein sú stærsta sinnar teg- undar sem haldin hefur verið hér- lendis. „Markmið sýningarinnar er að kynna fjölbreytni íslensks landbún- aðar, hátt tæknistig og þá miklu þekkingu sem er að finna innan greinarinnar,“ segir Jóhannes. „Við erum meðal fremstu þjóða hvað varðar tæknistig í landbúnaði þegar horft er til stærðar. Þróunin hefur verið hröð síðustu ár og margar greinar landbúnaðarins tekið mikl- um breytingum.“ Spurður um helstu breytingar segir Jóhannes þær augljósustu vera að hefðbundnum búum fari fækkandi en þau sem eftir eru séu stærri. „Þá er ákveðin framþróun að verða í hrossarækt með stórum hrossabúum, skógrækt og annars konar landnýtingu en áður hefur þekkst,“segir Jóhannes. Skemmtilegt fyrir börnin Jóhannes segir hátíðina hugsaða fyrir alla fjölskylduna og vel sé hug- að að börnum. „Við verðum ekki með barnagæslu á svæðinu og leggj- um áherslu á að fjölskyldan sé sam- an á sýningunni. Á henni verður margt á dagskrá sem heillar börn, veiði í tjörninni, leikir fyrir krakk- ana, hoppukastalar og þá finnst þeim spennandi að sjá öll dýrin á sýningunni, minka, refi, býflugur, endur og ótal fleiri. Ég trúi að við höfum sett saman fjölbreytta sýningu sem sé bæði fag- sýning og góð skemmtun fyrir fjöl- skyldufólk. Það ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi, hvort heldur er fólk úr landbúnaðargeiranum eða annars staðar frá.“ Töðugjöldin á Hellu Hin árlegu Töðugjöld á Hellu verða hluti af dagskrá sýningarinnar. Töðugjöld á Hellu hafa verið haldin síðan árið 1994 og jafnan fengið góða aðsókn. „Þetta er í fyrsta sinn sem Töðugjöldin verða hluti af öðr- um atburði,“ segir Gísli Stefánsson, umsjónarmaður hátíðarinnar. Gísli segir Töðugjöldin vera eina af elsta bæjarhátíðum landsins. Hátíðin á sér tuttugu ára sögu og ber nafn með rentu því hún er haldin í ágúst- mánuði eftir slátt. Gísli segir hátíð- ina upphaflega hafa verið haldna á Gaddstaðaflötum en undanfarin fjögur ár hafi hún verið haldin á Hellu. „Í ár var okkur boðið að vera með í samstarfi við Landbúnaðarsýn- inguna,“ segir Gísli. „Töðugjöldin verða því fléttuð í dagskrá sýning- arinnar. Við sjáum um kvöldvökuna sem verður einkar glæsileg á laug- ardagskvöld og verðum að auki með fjölmargar skemmtilegar uppá- komur og atriði á daginn. Á laug- ardagskvöldið verður varðeldur, brekkusöngur og flugeldasýning. Á sunnudaginn verður svo messa klukkan 14.00 í brekkunni þar sem sr. Guðbjörg Arnardóttir predikar. Nefna má að á kvöldvökum verð- ur söngur, glens og gaman og meðal þeirra sem fram koma eru Ingó og Veðurguðirnir, Hundur í óskilum og Álftagerðisbræður.“ 24stundir/Helgi Bjarnason Landbúnaðarsýning og bæjarfjör Gísli Stefánsson, umsjónarmaður Töðugjalda á Hellu, og Jóhannes Hr. Símonarson, framkvæmdastjóri Land- búnaðarsýningar, eru vongóðir um mikla aðsókn. Tækninýjungar og nýsköpun í landbúnaði Gjörbreyttur landbúnaður „Með landbúnaðarsýn- ingu á Gaddstaðaflötum er endurvakin gömul hefð,“ segir Jóhannes Hr. Símonarson sem segist bjartsýnn á að sýningin veki athygli á gjör- breyttum og metn- aðarfullum landbúnaði á Íslandi. Bæjarhátíðinni Töðugjöldum á Hellu er bætt við dagskrá sýning- arinnar.

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.