24 stundir - 19.08.2008, Síða 23
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 23
Mjólkursamsalan kynnir nýja
afurð sína, Krakkaskyr, á Land-
búnaðarsýningunni á Hellu.
„Skyrið kom á markað í byrjun júlí
og hefur fengið góðar viðtökur
neytenda,“ segir Erna Erlends-
dóttir og Guðný Steinsdóttir,
markaðsstjórar hjá MS. Á sýning-
unni mun Mjólkursamsalan einnig
leggja áherslu á hinn stóra flokk af
ab-vörum sem fyrirtækið fram-
leiðir. Meðal annars verða kynntar
nýjungar í ab-línunni, á borð við
ost í sneiðum og ab-mjólk. Enn-
fremur verður Krakkaskyr á boð-
stólum og gómsætir desert-ostar
kynntir.
Krakkaskyr hefur verið í þróun
hjá MS í um eitt ár. Mjólk-
ursamsalan hefur á undanförnum
misserum lagt áherslu á þróun syk-
urminni vara sem jafnframt inni-
halda engin sætuefni og er Krakka-
skyr þróað með það í huga.
„Með þessu erum við líka að
bregðast við auknum kröfum neyt-
enda um sykurskertar vörur og er
markhópurinn foreldrar sem hafa
áhuga á hollum vörum fyrir börn-
in sín. Í raun vorum við að hugsa
til sumarsins með því að leggja sér-
staka áherslu á útileiki og hreyf-
ingu í markaðssetningunni. Slag-
orð Krakkaskyrs er: Komdu út að
leika og eru gömlu góðu útileik-
irnir rifjaðir upp í auglýsingunum.
Jafnframt hefur fyrirtækið stutt við
ýmis íþróttamót og leikjanámskeið
krakka í sumar með því að gefa þar
fótbolta og skyr og hefur það
mælst vel fyrir,“ útskýra þær og
segja kröfur neytenda um syk-
urskertar vörur sem innihalda
jafnframt engin sætuefni fara vax-
andi.
„Við létum þó ekki staðar num-
ið þar heldur þrefölduðum við
einnig ávaxtamagnið og inniheldur
Krakkaskyr alls 20 prósent ávexti.
Með Krakkaskyri erum við komin
með vöru sem foreldrar geta treyst
að innihaldi minna af sykri og
meira af ávöxtum en aðrar sam-
bærilegar vörur. Krakkaskyr fæst
ennfremur hreint, án ávaxta og
sykurs,“ segir Guðný.
„Það er jafnan mikil eftirspurn
eftir skyri og skyrdrykkjum og ein
helsta sérstaða skyrs er einmitt hið
háa prótín- og kalkinnihald sem er
mikilvægt fyrir uppbyggingu
vöðva og beina. Fjölmargar rann-
sóknir hafa verið gerðar sem styðja
að mjólkurneysla stuðlar að aukn-
um vöðmamassa hjá íþróttafólki
og þar gegna mjólkurprótínin lyk-
ilhlutverki.“
sigbogi@simnet.is
Mikil eftirspurn er eftir skyri og skyrdrykkjum
Skyrið hefur sérstöðu
24stundir/G.Rúnar
Markaðsstýrur Mjólkursamsölunnar
Tónlistar- og knattspyrnukappinn
Ingó, Ingólfur Þórarinsson, mun
skemmta börnum á öllum aldri á
Landbúnaðarsýningunni laug-
ardaginn 23. ágúst milli klukkan
17 og 18. Þennan tíma verður
hann einn með gítarinn, að spila
og syngja. Á kvöldvökunni þennan
sama dag hyggst svo fullmönnuð
hljómsveit Ingós og Veðurguðanna
stíga á svið og spila fyrir brekku-
gesti sem eiga án efa eftir að taka
vel undir.
Ingó skemmtir
á laugardaginn
Það kostar aðeins 2.000 krónur á
Landbúnaðarsýninguna á Hellu og
því engin afsökun fyrir því að
skella sér ekki á sýninguna. Sýn-
ingin hentar öllum í fjölskyldunni
og börn sem eru 14 ára og yngri frá
frítt inn. Það þarf aðeins að greiða
einu sinni fyrir aðgang að sýning-
arsvæðinu en hver gestur fær arm-
band sem gerir honum kleift að
koma og fara af sýningarsvæðinu
að vild.
Ódýr og
fjölskylduvæn
Það eru margir sem ætla að leggja
land undir fót og skella sér á Land-
búnaðarsýninguna og þar á meðal
eru húnvetnskir bændur. Þeir ætla
sér í hópferð á Hellu, leigja sér
rútu og renna suður yfir heiðar og
berja sunnlenska kollega sína og
Landbúnaðarsýninguna augum.
Það er Búnaðarsamband Húna-
þings og Stranda sem hefur veg og
vanda af skipulagningu sýning-
arinnar.
Húnvetningar
á sýningu
Vátryggingafélag Íslands Ármúla 3 108 Reykjavík Sími 560 5000 vis.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Landbúnaðartrygging VÍS er nauðsynleg öllum bændum
sem vilja hafa tryggingamál sín á hreinu.
Sérstakir þjónustufulltrúar bænda hafa verið skipaðir fyrir hvern landshluta.
Þeir veita bændum alla ráðgjöf varðandi tryggingarverndina.
Hafðu tryggingamálin á hreinu. Kynntu þér Landbúnaðartryggingu VÍS.
Allar nánari upplýsingar fást á næstu þjónustuskrifstofu VÍS.
TRYGGIR:
• Allt búfé, hey og kjarnfóður, áhöld og tæki á hefðbundnum búum
• Ábyrgðartrygging bænda
BÆTIR:
• Brunatjón
• Óveðurstjón
• Tjón á bústofni af völdum raflosts
• Tjón á bústofni vegna umferðar
• Tjón á fóðri vegna kolunar
• Ábyrgðartjón vegna bús og tækja
ER BÚIÐ RÉTT
TRYGGT?